Dýraverndarsamband Íslands og Samtök um dýravelferð á Íslandi kalla eftir breytingum á lögum svo viðurkenndum dýraverndarsamtökum verði heimilt að kæra stjórnvaldsákvarðanir sem varða velferð dýra. Samtökin segja núverandi fyrirkomulag skapa „rof í réttarvernd dýra“ hér á landi.
Samtökin segja mikið skorta á almennan aðgang að réttlæti fyrir hönd dýra á Íslandi. Dýraverndarsamtök geti í dag ekki borið ákvarðanir Matvælastofnunar (MAST), sem fer með eftirlit með velferð dýra, undir æðra stjórnvald.
Þar með séu möguleikar samtakanna til að gæta hagsmuna dýra innan stjórnsýslunnar takmarkaðir eða jafnvel engir. Að mati samtakanna samræmist það illa mikilvægu hlutverki þeirra við að gæta hagsmuna og velferðar dýra.
Kæru vegna starfsleyfis Ísteka vísað frá
Samtökin benda meðal annars á mál sem kom upp í sumar þegar íslensk og erlend dýraverndarsamtök kærðu ákvörðun MAST til atvinnuvegaráðuneytisins.
Kæran laut að ákvörðun MAST um að veita Ísteka hf. skilyrt starfsleyfi til blóðtöku úr fylfullum hryssum vegna lyfjaframleiðslu. Samtökin kröfðust þess að ákvörðunin yrði ógilt eða, til vara, endurskoðuð.
Að mati samtakanna uppfyllir blóðmerahald ekki skilyrði þeirrar reglugerðar sem starfsemin fellur undir. Þau vísa meðal annars til þess að ekki eigi að heimila notkun dýra í vísindaskyni ef hægt sé að ná sama markmiði með öðrum aðferðum.
Samtökin segja slíka valkosti vera fyrir hendi, meðal annars þar sem fjöldi frjósemislyfja sé á markaði auk aðferða í búfjárrækt sem ekki krefjist notkunar lyfja.
Þrátt fyrir þetta, og þrátt fyrir neikvæða umsögn fagráðs um velferð dýra, hafi MAST veitt Ísteka skilyrt starfsleyfi í vor.
Atvinnuvegaráðuneytið tók hins vegar ekki efnislega afstöðu til þeirra sjónarmiða sem fram komu í kærunni. Kærunni var vísað frá á þeim grundvelli að dýraverndarsamtökin hefðu ekki nægilega beina og lögvarða hagsmuni af málinu til að teljast aðilar þess.
Segja þetta endurtaka sig
Dýraverndarsamband Íslands og Samtök um dýravelferð á Íslandi segja þetta ekki einsdæmi.
Erindum dýraverndarsamtaka vegna ákvarðana og málsmeðferðar MAST sé ítrekað vísað frá með þeim rökum að samtökin teljist ekki eiga aðild að málunum.
Afleiðingin sé sú að ákvarðanir stjórnvalda sem varði velferð dýra geti farið hjá því að sæta efnislegri endurskoðun æðra stjórnvalds.
„Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns eða kært stjórnvaldsákvarðanir sem hafa áhrif á velferð þeirra,“ segja samtökin.
Þegar samtökum sem hafi það hlutverk að gæta hagsmuna dýra sé jafnframt synjað um aðild að slíkum málum myndist að þeirra mati „augljóst rof í réttarvernd dýra“.
Vilja sambærilega heimild og umhverfissamtök hafa
Samtökin kalla nú eftir því að við heildarendurskoðun laga um velferð dýra, sem nú er til meðferðar hjá atvinnuvegaráðuneytinu, verði skýr lagaheimild sett inn um kæruheimildir dýraverndarsamtaka.
Þau vilja að viðurkenndum dýraverndarsamtökum verði heimilt að kæra stjórnvaldsákvarðanir sem varða velferð dýra, að sambærilegum skilyrðum uppfylltum og gilda um umhverfisverndarsamtök.
„Efla þarf réttarvernd dýra á Íslandi. Dýraverndarsamtök verða að geta leitað réttar fyrir hönd dýra innan stjórnsýslunnar,“ segja samtökin.































Athugasemdir