Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Leitaði til umboðsmanns vegna þvingaðrar lyfjagjafar

Samkvæmt kvörtuninni hafði einstak­ling­urinn verið færður á stofnunina með lögreglu­valdi

Fólk í Reykjavík
Fólk í Reykja­vík Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Brynhildur Jensdóttir

Umboðs­maður Alþingis tók ekki til meðferðar kvörtun einstaklings vegna vistunar á sjúkra­stofnun og þvingaðrar lyfja­gjafar þar sem lög gera ráð fyrir að slíkar ákvarðanir séu bornar undir dómstóla. Málinu var lokið með bréfi 24. september 2026 en niður­staðan var birt á vefsíðu umboðs­manns í byrjun október.

Kvörtunin barst umboðs­manni 28. ágúst og laut að vistun viðkomandi á sjúkra­stofnun og lyfjagjöf gegn vilja hans. Samkvæmt kvörtuninni hafði einstaklingurinn verið færður á stofnunina með lögreglu­valdi og dvalið þar áfram.

Í niður­stöðu umboðs­manns er ítarlega fjallað um ákvæði lögræðis­laga. Þar kemur meðal annars fram að læknir geti ákveðið nauðungar­vistun einstaklings en slík frelsis­skerðing megi ekki standa lengur en í 72 klukku­stundir án samþykkis sýslu­manns. Með samþykki sýslu­manns getur vistun staðið í allt að 21 sólar­hring að uppfylltum skilyrðum laganna.

Þá er sérstak­lega tekið fram að einstaklingur sem vistaður er gegn vilja sínum geti borið ákvörðun um nauðungar­vistun undir dómstóla. Sama gildir um þann sem gert hefur verið að sæta þvingaðri lyfjagjöf eða annarri meðferð.

Umboðs­maður benti jafnframt á að starfs­svið embættisins taki ekki til ákvarðana stjórn­valda þegar lög gera sérstak­lega ráð fyrir að leitað sé leið­réttingar fyrir dómstólum.

Þar sem lögræðislög kveða á um sérstaka leið til að bera bæði nauðungar­vistun og þvingaða meðferð undir dómstóla taldi umboðs­maður skilyrði ekki uppfyllt til að taka kvörtunina til efnislegrar meðferðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim