Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fimmtán ára stóð Andrea í hárinu á glæpamönnum og gafst ekki upp

„Það er þetta með hug­rekkið, það er smit­andi“

Fimmtán ára stóð Andrea í hárinu á glæpamönnum og gafst ekki upp
Andrea Róberts­dóttir Mynd: Aðsend/Silla Páls

Andrea Róberts­dóttir, fram­kvæmda­stjóri FKA, Félags kvenna í atvinnu­líf­inu, hefur komið víða við á sínum ferli og prófað ýmis­legt. Hún hefur meðal ann­ars starfað sem fram­kvæmda­stjóri, for­stöðu­maður, mannauðs­stjóri, verk­efna­stjóri og ráð­gjafi og safnað að sér mik­illi reynslu úr ólíkum áttum atvinnu­lífs­ins. Í vor var hún jafn­framt til­nefnd til Stjórn­enda­verð­launa Stjórn­vísi.

Andrea sett­ist á dög­unum niður í ítar­legt við­tal þar sem hún opnar sig um ýmis­legt, bæði úr starfi og einka­lífi. Þar fer hún yfir rúm­lega tveggja ára­tuga feril sinn, áskor­an­irnar sem hafa orðið á vegi hennar og reynsl­una af því að leiða fólk, byggja upp vinnu­staða­menn­ingu og takast á við breyt­ingar.

En það er ekki bara stjórn­and­inn Andrea sem fær að njóta sín í við­tal­inu. Hún ræðir einnig um lífið utan vinn­unnar, móð­ur­hlut­verkið, nátt­úr­una og ýmis­legt annað sem hefur mótað hana í gegnum tíð­ina.

Ferill Andreu hefur verið fjöl­breyttur og spannar meðal ann­ars atvinnu­líf, fjöl­miðla og félaga­sam­tök. Í við­tal­inu gefur hún les­endum tæki­færi til að kynn­ast mann­eskj­unni á bak við starfs­heitið og segir frá ýmsu sem sjaldnar ratar upp á yfir­borðið.

Reynslunni ríkari

Andrea á tvo syni og mann og býr fjöl­skyldan í Garðabæ.

„Við vildum vera hluti af sveita­sam­fé­lagi og bjuggum fyrstu ár eldri stráks­ins í Kjós í stórum skógi á land­bún­að­ar­lóð en fluttum svo í Garða­bæ­inn til ömmu ald­ar­innar, mömmu minnar, sem hefur verið ein mesta stoð og stytta í líf­inu. Það er engu líkt að eign­ast börn og dreng­ina elska ég enda­laust. Það er dásam­legt að sjá þá þroskast og verða sjálf­stæða. Það er svo magnað að hugsa til þess að störfin sem þeir fara að vinna þegar þeir verða full­orðnir er ekki einu sinni búið að finna upp. Það eru svo mörg tæki­færi hjá ungu fólki og ég get lært svo margt af þeim. Með mann­inum mínum finnst mér best að vera í iðn­að­ar­manna­gall­anum eða á fjöllum. Yngri dreng­ur­inn minn er 15 ára og stóri strák­ur­inn minn nýorð­inn 18 ára og því miklar breyt­ingar. Við höfum alltaf lagt áherslu á að hafa síma­lausa sam­veru við mat­ar­borðið og borða saman kvöld­mat. Við höfum gaman að því að ferð­ast, hlusta á tón­list og fara í sund. Þá er ekki eins spenn­andi að vera með mér eins mikið og áður en þeir segja að ég sé besta mamman. Það er mín mesta gæfa að hafa unnið mömmu­lottóið og fengið dreng­ina í mitt líf – þeir eru skóla­stjór­arnir í líf­inu og ævin­týra­ráð­herrar.“

Andrea er spurð um lífs­reynslu sem hefur mótað hana og nefnir hún ævin­týr­lega ferð. Hinn stóri heimur heill­aði og árið 2006 seldi hún bíl­inn og íbúð­ina og fór ein í bak­poka­ferða­lag í nokkra mán­uði um Suð­austur-Asíu.

„Það var eins og að krækja sér í eina ef ekki tvær meistara­gráður. Það gat verið mjög flókið að vera ung kona ein á ferð með allt á bak­inu en eins og alltaf, án þess að vaða út í ein­hverja vit­leysu, þá vil ég ekki láta ótt­ann skemma fyrir mér og fór í þessa mögn­uðu ferð. Ég gisti á far­fugla­heim­ili og gisti­heim­ilum og ferð­að­ist til nokk­urra landa og kom heim læs­ari á ólíka menn­ingu og reynsl­unni rík­ari. Ég kynnt­ist alls konar fólki, borð­aði alls konar mat, gisti á furðu­legum stöðum, skoð­aði ótal staði og and­aði að mér fram­andi menn­ingu. Þetta bak­poka­ferða­lag er eitt af því sem kemur upp í hug­ann þegar ég er spurð um lífs­reynslu sem hefur mótað mig. Annað sem kemur upp í hug­ann er þegar ég 15 ára og Hrund vin­kona mín 16 ára vorum að vinna sem rekstr­ar­stjórar á ham­borg­ara­stað myrkr­anna á milli til að safna fyrir ferð til Ibiza. Við vorum búnar kaupa miða til að fara einar út í frí og fjör en síðan fengum við ekki útborgað. Nú eins og bestu vin­konur gera á gelgj­unni er að fá sér lög­fræð­ing. Við fengum okkur lög­fræð­ing til að fá launin og án þess að fara í mála­rekst­ur­inn og alla sól­ar­sög­una þá end­uðum við í eft­ir­minni­legri ferð einar á Ibiza um sum­arið eins og til stóð. Þegar ég sé fimmtán ára ung­linga í dag þá sé ég alltaf betur hvað við vorum seigar að fá okkur lög­fræð­ing og standa í hár­inu á glæpa­mönnum. Ef ég væri lög­fræð­ingur og fengi okkur vin­kon­urnar inn á skrif­stofu myndi ég espast öll upp og vilja allt fyrir þessi krútt gera. Ég er svo stolt af þessum stelpum að hafa fengið sér lög­fræð­ing og mér finnst við svo hug­rakkar. Það er þetta með hug­rekkið, það er smit­andi og það er svo gaman að hafa víkkað þæg­inda­hring­inn og haft kjark til þess snemma á lífs­leið­inni. Ég er þakk­lát fyrir vin­átt­una.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu