1
Pólitík

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

2
Fólk

Sjaldgæft raðhús til sölu í einni fjölmennustu götu landsins

3
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

4
Innlent

Ók eins og brjálæðingur í Hvalfjarðarsveit

5
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

6
Innlent

Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi

7
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

8
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

9
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

10
Heimur

Flugáhöfn þurfti að stöðva kynferðislega iðju í háloftunum

Til baka

Yrðlingur dregur að fjölda ferðamanna

Snýr aftur til náttúrunnar með haustinu

Tófan Stjarna
„Stjarna sýnir af sér einstaka hegðun og virðist að minnsta kosti að hluta til telja sig vera hund.“
Mynd: Austurbrú

Tófan Stjarna dvelur nú á Mjóeyri á Eskifirði og nýtur mikilla vinsælda meðal gesta og heimamanna. Í rúman áratug hafa yrðlingar sótt á Mjóeyri á hverju vori, alist þar upp í návist fólks og dýra, og haldið aftur til náttúrunnar þegar haustar. Að sögn Antons Bergs Sævarssonar, hjá ferðaþjónustunni á Mjóeyri, hefur Stjörnu tekist óvenju vel að aðlagast lífinu á eyrinni og tileinkað sér siði heimahunda á svæðinu, segir á síðu Austurbrúar.

Sérstakt samband við heimilishundinn

Stjarna sýnir af sér einstaka hegðun og virðist að minnsta kosti að hluta til telja sig vera hund. Hún hefur myndað náið samband við tíkina Skottu, sem hefur tekið henni opnum örmum þrátt fyrir töluverðan stærðar- og aldursmun. Ljósmyndir og myndbönd sem Esther Ösp Gunnarsdóttir tók fyrir markaðsteymi Austurbrúar (Visit Austurland) sýna dýrin að leik, og hefur þessi sjón dregið fjölda ferðamanna á svæðið sem gera sér ferð til þess að fylgjast með samskiptum þeirra.

Tófan Stjarna
Mynd: Austurbrú

Snýr aftur til náttúrunnar með haustinu

Dvöl Stjörnu á Mjóeyri er þó aðeins tímabundin. Þegar hausta tekur verða refirnir á svæðinu smám saman sjálfstæðari, fara í lengri leiðangra upp til fjalla uns þeir snúa endanlega til síns heima í náttúrunni. Anton Berg líkir þessu við það þegar mannfólkið vex úr grasi, verður fullorðið og flytur að heiman til að spreyta sig á eigin spýtum.

Tófan Stjarna
Mynd: Austurbrú

Á vit frægðarinnar líkt og forverarnir

Dæmi eru um að refir frá Mjóeyri hafi náð landsathygli. Refurinn Jarl ólst þar upp en flutti síðar í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn í Reykjavík þar sem hann varð þekktur sem „Spádómsrefurinn Jarl“ og spáði fyrir um úrslit leikja á Evrópumótinu í handknattleik með góðum árangri. Óvíst er hvort Stjarna búi yfir sambærilegri spádómsgáfu, en velt hefur verið upp þeim möguleika að hún gæti spáð fyrir um úrslit leikja á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu sem nú stendur yfir. Þangað til það kemur í ljós eru allir velkomnir á Mjóeyri að heilsa upp á Stjörnu.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Alex Ferguson var einum degi frá því að taka við Arsenal
Sport

Alex Ferguson var einum degi frá því að taka við Arsenal

„Frábært félag, það þarf bara að hrista aðeins upp í hlutunum.“
Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

María Rut segir stjórnarandstöðuna heltekna af Evrópu
Pólitík

María Rut segir stjórnarandstöðuna heltekna af Evrópu

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö
Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö

Sverrir Bergmann vill stoppa leyfislausa tónlist í pólitískum áróðri
Pólitík

Sverrir Bergmann vill stoppa leyfislausa tónlist í pólitískum áróðri

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens
Heimur

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens

Dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir árás á sambýliskonu sína
Innlent

Dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir árás á sambýliskonu sína

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni
Myndir
Fólk

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni

Grein sálfræðings um að læra að opna sig
Skoðun

Dávur í Dali

Grein sálfræðings um að læra að opna sig

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall
Heimur

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl
Heimur

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl

Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum
Heimur

Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum

Landið

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil
Landið

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil

Ferðamálastofa fundaði um öryggi Stuðlagils
Stefndu sér í lífshættu í Reynisfjöru
Myndband
Landið

Stefndu sér í lífshættu í Reynisfjöru

Forbes vekur athygli á nýju ferðamannagjaldi á Íslandi
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferðamannagjaldi á Íslandi

Furðuverur fæðast í fjárhúsinu
Landið

Furðuverur fæðast í fjárhúsinu

Yngsti rafvirki Íslandssögunnar útskrifaður á Akureyri
Landið

Yngsti rafvirki Íslandssögunnar útskrifaður á Akureyri

Íslenskur fjallaskáli meðal þeirra bestu í Evrópu
Landið

Íslenskur fjallaskáli meðal þeirra bestu í Evrópu

Loka auglýsingu