
Karlmaður hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, árás með járnröri og fíkniefnabrot samkvæmt ákæru sem gefin hefur verið út af héraðssaksóknara en Morgunblaðið greindi frá.
Samkvæmt ákærunni stakk maðurinn annan mann fyrir utan Réttarholtsskóla í september 2024. Brotaþolinn hlaut stungusár á vinstri síðu og mjöðm auk skurðar- og yfirborðsáverka á úlnlið og hendi.
Þá er maðurinn sakaður um að hafa ráðist á annan mann fyrir utan Mjóddina með járnröri. Þar hafi hann slegið manninn tvívegis í höfuðið með þeim afleiðingum að hann hlaut tvo opna skurði í hársverði.
Auk þess er maðurinn ákærður fyrir fíkniefnabrot eftir að lögregla fann 70 MDMA-töflur í vörslum hans við leit.
Brotaþolarnir tveir krefjast samtals fimm milljóna króna í miskabætur.