1
Innlent

Heimir Örn aftur dæmdur fyrir umsáturseinelti

2
Innlent

Alnafni ráðherra dæmdur í fangelsi

3
Innlent

Auglýsa eftir sjö prestum

4
Fólk

Halla stórglæsileg í afmælisveislu

5
Innlent

Líkir Sönnu við Zohran Mamdani

6
Landið

Ók rútu við Landmannalaugar án réttinda

7
Fólk

Óska eftir tilboðum í stórkostlegt einbýli við tennisvöll

8
Innlent

Bílvelta í Mosfellsbæ

9
Heimur

Opna bókabúð án bóka í New York

10
Heimur

20 þúsund manns mættu á ólöglega teknóhátíð þrátt fyrir sprengjuhættu

Til baka

Ákall frá fjölskyldu Möggu Stínu

Félagsmenn félagsins Ísland Palestínu mótmæla við stjórnarráðið
Magga Stína
Mynd: Víkingur

Aðfaranótt 8.október 2025 var áhöfn skipsins Conscience og átta annarra báta sem sigldu undir merkjum Frelsisflotans (e.Freedom Flotilla) áleiðis til Gaza rænt af Ísrael á alþjóðlegu hafsvæði. Þeirra á meðal er móðir okkar, systir og dóttir, Margrét Kristín Blöndal, betur þekkt sem Magga Stína. Þeim er nú siglt áleiðis til Ashdod hafnar, en við höfum misst allt samband við Möggu Stínu og aðra skipverja. 

Við fjölskyldan biðlum til íslenskra stjórnvalda að beita sér með öllum mætti fyrir því að ísraelsk yfirvöld leysi hana úr haldi tafarlaust, sem og aðra í áhöfn Frelsisflotans.

Um borð í The Conscience, skipinu sem Margrét Kristín sigldi með, voru hátt í hundrað heilbrigðisstarfsmenn, blaðamenn og friðarsinnar í fullkomlega lögmætum erindagjörðum: að koma neyðaraðstoð og heilbrigðisstarfsfólki til þjáðra og sveltandi íbúa Gaza. Um borð voru lífsnauðsynjar á borð við lyf, hjúkrunarvörur og mataraðstoð upp á 13 milljónir króna, hjálpargögn sem er kerfisbundið haldið frá Gazasvæðinu af ísraelskum stjórnvöldum.

Ísrael stendur engin ógn af þeim skipum sem sigla merkjum Frelsisflotans. Engu að síður hafa ísraelsk stjórnvöld gert skipin sem á undan sigldu upptæk með ofbeldi og ógnunum, rænt skipverjum og fargað matvælum og lyfjum sem um borð voru. Fréttir bárust í kjölfarið af illri meðferð Ísraels á fólkinu sem haldið er í Ktzi’ot-fangelsinu. Þeim hefur verið misþyrmt, neitað um næringu, vatn, svefn og lífsnauðsynleg lyf tekin af þeim. Mannréttindi þeirra eru virt að vettugi, rétt eins og Ísrael hefur virt mannréttindi palestínsku þjóðarinnar að vettugi allt frá byrjun hernáms og þjóðarmorðs Ísraels í Palestínu. 

Áhyggjur okkar fjölskyldu Möggu Stínu og vina hennar eru eðlilega miklar af framvindu mála. Einkum þegar hugað er að þeirri meðferð sem hún kemur að öllum líkindum til með að verða fyrir af hendi Ísraelshers. 

Við skorum á íslensku ríkisstjórnina og almenning að fordæma ólöglega handtöku Ísraela á almennum borgurum og krefjast þess að allir sjálfboðaliðar verði látnir lausir tafarlaust.

Elsa María Blöndal
Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir
Sólveig Hauksdóttir,
dóttir, systir og móðir Möggu Stínu.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Ferðamenn á Kanarí geta andað léttar
Heimur

Ferðamenn á Kanarí geta andað léttar

Hjólareiðamaður hryggbrotinn eftir að ekið var á hann
Myndband
Heimur

Hjólareiðamaður hryggbrotinn eftir að ekið var á hann

Trump segist hafa gert „þjóðsöng samkynhneigðra“ aftur vinsælan
Myndband
Heimur

Trump segist hafa gert „þjóðsöng samkynhneigðra“ aftur vinsælan

Asískir karlmenn dæmdir fyrir skjalafals
Innlent

Asískir karlmenn dæmdir fyrir skjalafals

Gríðarstór gersemi í Garðabæ til sölu
Myndir
Fólk

Gríðarstór gersemi í Garðabæ til sölu

Fluttur á bráðamóttöku eftir slys í Hafnarfirði
Innlent

Fluttur á bráðamóttöku eftir slys í Hafnarfirði

Einn handtekinn eftir að hafa sett rottueitur í barnamat
Heimur

Einn handtekinn eftir að hafa sett rottueitur í barnamat

Alnafni ráðherra dæmdur í fangelsi
Innlent

Alnafni ráðherra dæmdur í fangelsi

Kieran Smyth ákærður fyrir morðtilraun á Norður-Írlandi
Heimur

Kieran Smyth ákærður fyrir morðtilraun á Norður-Írlandi

20 þúsund manns mættu á ólöglega teknóhátíð þrátt fyrir sprengjuhættu
Heimur

20 þúsund manns mættu á ólöglega teknóhátíð þrátt fyrir sprengjuhættu

Skoðun

Eflum og byggjum upp Eyrina
Skoðun

Darri Rafn Hólmarsson

Eflum og byggjum upp Eyrina

Hulan fellur
Skoðun

Ragnar Erling Hermannsson

Hulan fellur

Ég er kominn heim
Skoðun

Ragnar Erling Hermannsson

Ég er kominn heim

Burt með dýraeftirlit hjá Matvælastofnun
Skoðun

Magnús Georg Jensen Margeirsson

Burt með dýraeftirlit hjá Matvælastofnun

Kæra borgarstýra
Skoðun

Ragnar Erling Hermannsson

Kæra borgarstýra

Þegar leyndardómar Evrópu komu til Íslands
Skoðun

Ragnar Erling Hermannsson

Þegar leyndardómar Evrópu komu til Íslands

Loka auglýsingu