1
Fólk

Einstök paradís úti á landi komin á sölu

2
Innlent

Íhugar að fara í mál við Sigfús

3
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

4
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

5
Minning

Björgvin Birgisson er fallinn frá

6
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

7
Innlent

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir

8
Skoðun

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

9
Innlent

Draumur Hannesar rættist ekki í Brasilíu

10
Heimur

Segir dularfulla skepnu hafa náðst á myndavél í Mexíkó

Til baka

Ari Trausti varar við afleiðingum jöklarýrnunar

„Mikilvægt er að búa landsmenn undir þessar „sviðsmyndir“.“

Ari Trausti Guðmundsson
Ari Trausti GuðmundssonAri Trausti varar Íslendinga við breyttri sviðsmynd
Mynd: Facebook

Jarðeðlisfræðingurinn og fyrrum forsetaframbjóðandinn Ari Trausti Guðmundsson varar við víðtækum áhrifum hraðrar jöklarýrnunar á Íslandi í nýrri Facebook-færslu og segir ljóst að breytingarnar muni snerta bæði náttúru og samfélag.

Í færslunni bendir hann á að hækkandi hitastig og breytt úrkomumynstur valdi því að jöklar landsins hopi hratt og að afleiðingarnar geti orðið margvíslegar ef þróunin heldur áfram.

Hann nefnir meðal annars að vatnsbúskapur landsins muni taka breytingum, þar sem ár geti minnkað eða horfið og nýir farvegir myndast. Þá muni áhrifin einnig ná til orkukerfisins, þar sem vatnsaflsvirkjanir geti eftir tímabundið aukið rennsli farið að framleiða mun minna.

Ari Trausti bendir einnig á að breytingar geti orðið á grunnvatnsflæði og votlendi, auk þess sem stór svæði sem áður voru undir jökli geti orðið að örfoka sand- og leirsvæðum sem gróa hægt upp.

Hann varar jafnframt við aukinni náttúruvá, þar á meðal flóðahættu vegna fleiri jökullóna, tíðari jökulhlaupa og aukinnar hættu á skriðuföllum og berghlaupum. Þá geti hætta á eldgosum undir jöklum aukist með tilheyrandi flóðum og gjóskufalli.

Í færslunni kemur einnig fram að landris geti orðið hratt á jökulsvæðum og að veðurfar geti breyst, meðal annars með aukinni úrkomu og breyttum hitastigi yfir hálendinu. Þá muni ásýnd landsins taka miklum breytingum.

Að mati Ara Trausta er mikilvægt að búa landsmenn undir þessar sviðsmyndir. „Mikilvægt er að búa landsmenn undir þessar „sviðsmyndir“ og aðlaga samfélagið að þeim - stunda þá vinnu af elju, þekkingu og fyrirhyggju,“ segir hann að lokum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Sjö ára stúlka sem særðist í skotárás í skóla komin af gjörgæslu
Heimur

Sjö ára stúlka sem særðist í skotárás í skóla komin af gjörgæslu

Þrjú börn og kennari létust í árásinni
Ísland getur ekki bannað ísraelskum ferðamönnum komu að eigin frumkvæði
Innlent

Ísland getur ekki bannað ísraelskum ferðamönnum komu að eigin frumkvæði

Guðmundur Andri ætlaði á svið en örlögin höfðu önnur plön
Fólk

Guðmundur Andri ætlaði á svið en örlögin höfðu önnur plön

Nú er komið að þér, Krist­rún!
Skoðun

Svanur Már Snorrason

Nú er komið að þér, Krist­rún!

Leyniskjöl Pentagon afhjúpa frásagnir af dularfullum verum í Utah
Heimur

Leyniskjöl Pentagon afhjúpa frásagnir af dularfullum verum í Utah

Um sjötíu á sakamannabekk eftir milljónaránið
Innlent

Um sjötíu á sakamannabekk eftir milljónaránið

Lögreglan kölluð til vegna þriggja ára fótboltasnillings
Myndband
Sport

Lögreglan kölluð til vegna þriggja ára fótboltasnillings

„Skoða þarf aðrar leiðir en að drepa álftir“
Innlent

„Skoða þarf aðrar leiðir en að drepa álftir“

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir
Innlent

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir

Sagðist tilbúinn að játa morð gegn því að fá ostasteikarsamloku
Myndband
Heimur

Sagðist tilbúinn að játa morð gegn því að fá ostasteikarsamloku

Móðir flúði meint mygluhús með börnin en þarf að borga
Innlent

Móðir flúði meint mygluhús með börnin en þarf að borga

Vopnað lögreglulið kallað út vegna hótana í Bærum
Heimur

Vopnað lögreglulið kallað út vegna hótana í Bærum

Innlent

Ísland getur ekki bannað ísraelskum ferðamönnum komu að eigin frumkvæði
Innlent

Ísland getur ekki bannað ísraelskum ferðamönnum komu að eigin frumkvæði

„Sú ákvörðun er hjá framkvæmdastjórn ESB sem hefur ekki beitt þeirri heimild gegn Ísrael“
„Ég nenni ekki enn einni einkavæðingu á innviðum“
Innlent

„Ég nenni ekki enn einni einkavæðingu á innviðum“

Um sjötíu á sakamannabekk eftir milljónaránið
Innlent

Um sjötíu á sakamannabekk eftir milljónaránið

„Skoða þarf aðrar leiðir en að drepa álftir“
Innlent

„Skoða þarf aðrar leiðir en að drepa álftir“

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir
Innlent

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir

Móðir flúði meint mygluhús með börnin en þarf að borga
Innlent

Móðir flúði meint mygluhús með börnin en þarf að borga

Loka auglýsingu