1
Peningar

Icelandair skerðir þjónustu við farþega

2
Landið

Bergey valin fram yfir tíu aðra umsækjendur

3
Pólitík

Dóttir fyrrverandi forsætisráðherra aðstoðar núverandi borgarstjóra

4
Fólk

Níu matvæli sem aldrei ætti að gefa köttum

5
Fólk

Ofurkrúttlegt og agnarsmátt einbýli til sölu

6
Fólk

Einmanaleg glíma þeirra sem rjúfa fjölskyldubönd

7
Pólitík

Þórður Snær hvetur Íslendinga til að hlusta á Bjarna Ben

8
Innlent

Dæmdir fyrir að stela milljónaskartgripum í Hafnarfirði

9
Fólk

Draumaraðhús í Garðabæ sett á sölu

10
Innlent

Sækir gegn íslenska ríkinu en varar við ESB

Til baka

Björn Leví gagnrýnir Morgunblaðið harðlega

„Ekki einu sinni að reyna að vera hlutlaust“

Andrés Magnússon
Andrés MagnússonBjörn Leví gagnrýnir orð Andrésar
Mynd: Brynhildur Jensdóttir

Björn Leví Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður Pírata, gagnrýnir Morgunblaðið harðlega í nýrri Facebook-færslu í kjölfar ummæla Andrésar Magnússonar blaðamanns um að enginn fjölmiðill geti verið fullkomlega hlutlaus.

Björn Leví segir umræðuna ekki snúast um að ætlast til fullkomins hlutleysis, heldur um að fjölmiðlar leitist við að vera málefnalegir og heiðarlegir í umfjöllun sinni.

„Ég held það sé enginn að biðja um fullkomið hlutleysi. En að minnsta kosti snefil af sjálfsvirðingu gagnvart málefnalegri umræðu,“ skrifar hann.

Hann segir Morgunblaðið hafa sýnt „fullkomna hlutdrægni“ í umfjöllun um fjölmörg mál og telur að blaðið reyni ekki einu sinni að gæta hlutlægni í ákveðnum málaflokkum.

„Það er öllum augljóst sem vilja sjá það að Morgunblaðið er ekki einu sinni að reyna að vera hlutlaust í ákveðnum málaflokkum,“ segir Björn Leví.

Hann gengur enn lengra og heldur því fram að í slíkum málum starfi blaðið fremur sem „keyptur dreifingaraðili“ en sjálfstæður fjölmiðill.

„Í þeim málaflokkum er blaðið ekki fjölmiðill heldur keyptur dreifingaraðili sem setur ekki “auglýsing“ sem merkingu á viðkomandi “fréttir“,“ skrifar hann og tekur fram að það sé hans persónulega mat.

Björn Leví segir jafnframt að ummæli Andrésar um að enginn fjölmiðill geti verið fullkomlega hlutlaus feli í sér útúrsnúning á þeirri gagnrýni sem Morgunblaðið hafi sætt.

„Umræðan snýst ekkert um neina fullkomnun á þeim vettvangi. Hún snýst um að reyna að vera hlutlaus. Hún snýst um að viðurkenna þegar það tekst ekki. Að gera grein fyrir hagsmunaárekstrum. Að gera greinarmun á skoðunum og gögnum,“ skrifar hann.

Hann tekur fram að gagnrýni sín beinist ekki að almennri fréttamennsku eða störfum blaðamanna á gólfinu.

„Ég er að tala um pólitíkina. Nafnlausu pistlana. Allt annað en er skrifað af blaðamönnum á gólfinu sem eru bara að sinna sínu fagi almennt séð mjög vel,“ segir Björn Leví.

Í lok færslunnar bætir hann við að svipaða gagnrýni megi vissulega færa fram á hendur öðrum fjölmiðlum, en að hans mati sé Morgunblaðið komið lengst frá því að reyna að gæta hlutleysis í pólitískri umfjöllun.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Líkfundur við Austurbæjarskóla
Innlent

Líkfundur við Austurbæjarskóla

Lögregla vinnur nú að því að bera kennsl á hinn látna
Heilbrigðiseftirlitið innkallar krydd vegna aðskotahluta
Innlent

Heilbrigðiseftirlitið innkallar krydd vegna aðskotahluta

„Okkur þykir það mjög leitt“
Innlent

„Okkur þykir það mjög leitt“

Skilur að Ása Berglind vilji ekki mæta í spjallþátt
Innlent

Skilur að Ása Berglind vilji ekki mæta í spjallþátt

Baywatch-stjarna skellir sér á OnlyFans
Heimur

Baywatch-stjarna skellir sér á OnlyFans

Limminnsti maður heims fer í aðgerð
Heimur

Limminnsti maður heims fer í aðgerð

„Ég hugsa að við tímum ekki að selja þetta“
Peningar

„Ég hugsa að við tímum ekki að selja þetta“

Brjóstabrandari forsætisráðherra Ástralíu fór fyrir brjóstið á mörgum
Heimur

Brjóstabrandari forsætisráðherra Ástralíu fór fyrir brjóstið á mörgum

Landskjörstjórn segir Morgunblaðið fara með rangt mál
Innlent

Landskjörstjórn segir Morgunblaðið fara með rangt mál

Fyrrum bæjarfulltrúi gerður að framkvæmdastjóra
Peningar

Fyrrum bæjarfulltrúi gerður að framkvæmdastjóra

Segir múslimskar konur settar í búr á Íslandi
Myndband
Innlent

Segir múslimskar konur settar í búr á Íslandi

Sæstrengur færður vegna Harry Potter-aðdáenda
Heimur

Sæstrengur færður vegna Harry Potter-aðdáenda

Ofurkrúttlegt og agnarsmátt einbýli til sölu
Myndir
Fólk

Ofurkrúttlegt og agnarsmátt einbýli til sölu

Pólitík

Dóttir fyrrverandi forsætisráðherra aðstoðar núverandi borgarstjóra
Pólitík

Dóttir fyrrverandi forsætisráðherra aðstoðar núverandi borgarstjóra

Lætur Nei-sinna fá á baukinn í nýjum texta við sígilt lag
Pólitík

Lætur Nei-sinna fá á baukinn í nýjum texta við sígilt lag

Naumur meirihluti fyrir áframhaldandi aðildarviðræðrum við ESB
Pólitík

Naumur meirihluti fyrir áframhaldandi aðildarviðræðrum við ESB

Þórður Snær hvetur Íslendinga til að hlusta á Bjarna Ben
Pólitík

Þórður Snær hvetur Íslendinga til að hlusta á Bjarna Ben

Hvað ætlar þú að kjósa í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu?
Könnun
Pólitík

Hvað ætlar þú að kjósa í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu?

„Mikið er þetta innilega lágkúrulegt hjá Ólafi Ragnari“
Pólitík

„Mikið er þetta innilega lágkúrulegt hjá Ólafi Ragnari“

Loka auglýsingu