1
Innlent

Reykvíkingur nær ekki í eiginmann sinn og vill skilja

2
Heimur

Handtekinn fyrir að berja hund

3
Peningar

Þrettán á Seltjarnarnesi sem eru loðin um lófanna

4
Heimur

Trump með óvenjulegt útspil við Kanada

5
Pólitík

Kristrún sendir Rússlandsstjórn tóninn

6
Innlent

Sonur þingmanns grunaður um morð

7
Pólitík

Katrín Jakobsdóttir talar á útifundi Áfram Ísland

8
Fólk

Sána og sex svefnherbergi til sölu í draumahúsi

9
Innlent

Réðst á mann og ók svo á hann

10
Landið

Hvetja fólk til að sýna aðgát í Vestmanneyjum

Til baka

Dagur B. og Stefán E. deila um stórútgerðirnar

„Jæja kerlingin mín.“

Dagur B. Eggerts
Dagur B. EggertssonStefán bað um gögn og fékk þau
Mynd: Víkingur

Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingin og fyrrverandi borgarstjóri, segir nýja skýrslu frá Hagfræðistofnun Háskóli Íslands sýna að 20 stærstu útgerðarfyrirtæki landsins hafi átt yfir 400 milljarða króna í öðrum félögum í árslok 2024.

Í Facebook-færslu vísar Dagur til orðaskipta sem hann hefur átt í við Stefán Einar Stefánsson, siðfræðing og þáttastjórnanda hjá Morgunblaðinu, um áhrif og umfang stórútgerðarinnar í íslensku atvinnulífi. Stefán Einar skrifaði athugasemd við aðra færslu Dags þar sem hann krafðist gagna um staðhæfingar þingmannsins sem hann setti fram í pistli í Morgunblaðinu. Í pistlinum spyr hann hvort stórútgerðin sé að eignast Ísland.

Dagur birtir skjáskot af athugasemd Stefáns Einars þar sem siðfræðingurinn krefur hann um gögn, máli sínu til stuðnings.

Stefán skrifaði: „Hvað á "stórútgerðin" stóran hluta af íslensku atvinnulífi?

Það er mikilvægt að þú getir svarað því með vísan í einhver haldbær gögn. Eða skipta staðreyndir engu máli?“

Dagur segir í nýju færslunni, skýrsluna sem hann bendir Stefáni á hafa verið unna að hans beiðni og birt á vef Alþingis síðdegis.

„Það sem blasir við er að fyrirtækin áttu yfir 400 milljarða í öðrum félögum. Það er greinilega varlega áætlað og ekki allt talið,“ skrifar hann.

Þingmaðurinn segist lengi hafa haft áhyggjur af auknum umsvifum stórútgerðarinnar og telur þróunina geta haft víðtæk áhrif á íslenskt samfélag.

„Ég hef lýst þeim áhyggjum að stórútgerðin sé að eignast Ísland ef svona heldur áfram, vegna ofurhagnaðar af sameiginlegri auðlind þjóðarinnar, án þess að borga eðlileg veiðigjöld og aðgangi að hagstæðum lánum í evrum,“ skrifar Dagur í nýju færslunni.

Í færslunni segir hann jafnframt að hann hafi verið krafinn um gögn og rök fyrir fullyrðingum sínum og birtir nú skýrsluna sem svar við þeirri gagnrýni.

„Ég hef verið krafin svara - og beðin um rök og gögn. Þau eru komin. Gjörðið svo vel!“ skrifar hann.

Við fyrri færsluna hafði Dagur svarað siðfræðingnum á eftirfarandi máta:

„Stefán Einar Stefánsson gjörðu svo vel karlinn minn. https://www.althingi.is/.../157/fylgiskjol/s1225-f_IV.pdf“

Siðfræðingurinn svarar Degi og sakar hann um lygar.

„Jæja kerlingin mín. Þetta skjal er til lítils gagns enda staðfestir það að þú hefur haldið fram ósannindum.

Þar segir meðal annars: Samtals áttu félög tengd 20 stærstu kvótahöfum útgerðir með kvóta að verðmæti 59 milljarðar króna í lok árs 2024, eins og sjá má í neðstu línu töflunnar hér á eftir. Þar af námu fjárfestingar síðustu tíu ára 15 milljörðum. Eignir í öðrum íslenskum fyrirtækjum námu 73 milljörðum, en hreinar fjárfestingar tengdra félaga í þeim undanfarin tíu ár voru 46 milljarðar. Erlendar eignir tengdra félaga voru litlar.

Þetta staðfestir að fjárfestingar í ótengdum greinum eru ekki miklar. Það er eiginlega rannsóknarefni að þær skuli ekki vera meiri.

Viss um að útgerðarfélögin hefðu viljað fá ókeypis lóðir frá þér. Það telst reyndar ekki til fjárfestinga heldur gjafagjörninga. Ömurlegra.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Trump með óvenjulegt útspil við Kanada
Heimur

Trump með óvenjulegt útspil við Kanada

„Hafið tilbúinn pakka af batteríum“
54 einstaklingar munu ekki fá áframhaldandi starf hjá borginni
Pólitík

54 einstaklingar munu ekki fá áframhaldandi starf hjá borginni

Tveir létust í nautahlaupi í Mexíkó
Myndband
Heimur

Tveir létust í nautahlaupi í Mexíkó

Alríkisdómari hafnar kröfu Ghislaine Maxwell um frelsi
Heimur

Alríkisdómari hafnar kröfu Ghislaine Maxwell um frelsi

Hvetja fólk til að sýna aðgát í Vestmanneyjum
Landið

Hvetja fólk til að sýna aðgát í Vestmanneyjum

Katrín Jakobsdóttir talar á útifundi Áfram Ísland
Pólitík

Katrín Jakobsdóttir talar á útifundi Áfram Ísland

Handtekinn fyrir að berja hund
Heimur

Handtekinn fyrir að berja hund

„Ef ég er að fela þetta þá væri það erfiðara“
Fólk

„Ef ég er að fela þetta þá væri það erfiðara“

Skelfing í Portúgal þegar maður ók á hóp ungmenna og lögreglumenn
Heimur

Skelfing í Portúgal þegar maður ók á hóp ungmenna og lögreglumenn

Kristrún sendir Rússlandsstjórn tóninn
Pólitík

Kristrún sendir Rússlandsstjórn tóninn

Sigfús fasteignasali kærir þjóðaratkvæðagreiðsluna
Pólitík

Sigfús fasteignasali kærir þjóðaratkvæðagreiðsluna

Eigandi 49ers sakaður um vændiskaup
Sport

Eigandi 49ers sakaður um vændiskaup

Dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að „móðga hetjur“
Heimur

Dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að „móðga hetjur“

Pólitík

54 einstaklingar munu ekki fá áframhaldandi starf hjá borginni
Pólitík

54 einstaklingar munu ekki fá áframhaldandi starf hjá borginni

„Markmiðið er að tryggja að fjármunir borgarinnar nýtist sem best í þágu Reykvíkinga“
Ragnar Þór skipar nýja nefnd
Pólitík

Ragnar Þór skipar nýja nefnd

Katrín Jakobsdóttir talar á útifundi Áfram Ísland
Pólitík

Katrín Jakobsdóttir talar á útifundi Áfram Ísland

Kristrún sendir Rússlandsstjórn tóninn
Pólitík

Kristrún sendir Rússlandsstjórn tóninn

Sigfús fasteignasali kærir þjóðaratkvæðagreiðsluna
Pólitík

Sigfús fasteignasali kærir þjóðaratkvæðagreiðsluna

Segir líkindi milli Nei-manna og MAGA
Pólitík

Segir líkindi milli Nei-manna og MAGA

Loka auglýsingu