Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

„Ég nenni ekki enn einni einkavæðingu á innviðum“

Íhuga að selja Ljós­leiðar­ann

Björn Leví Gunnarsson
Björn Leví Gunn­ars­son Er fyrr­ver­andi þing­maður

Björn Leví Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi þing­maður Pírata, gagn­rýnir harð­lega hug­myndir um mögu­lega sölu Ljós­leið­ar­ans og segir fjar­skipta­inn­viði ekki frá­brugðna öðrum grunn­innviðum sam­fé­lags­ins.

Hlut­hafa­fundur Ljós­leið­ar­ans sam­þykkti í gær að veita umboð til aðgerða sem gætu leitt til breyt­inga á eign­ar­haldi félags­ins. Ljós­leið­ar­inn er að fullu í eigu Orku­veit­unnar og er sam­þykkt hlut­hafa­fund­ar­ins háð stað­fest­ingu eig­enda Orku­veit­unnar.

Hildur Björns­dóttir, borg­ar­stjóri Reykja­víkur, sagði í sam­tali við Morg­un­blaðið að hún væri spennt fyrir þeirri veg­ferð sem nú væri fram undan. Hún sagði lengi hafa verið lögð áhersla á að Ljós­leið­ar­inn yrði seldur þar sem félagið væri ekki hluti af grunn­rekstri Orku­veit­unnar.

Að mati borg­ar­stjóra liggja tölu­verð verð­mæti í félag­inu sem mætti nýta í þágu borg­ar­búa, meðal ann­ars til nið­ur­greiðslu skulda eða mik­il­vægra inn­viða­fjár­fest­inga.

Björn Leví tekur allt annan pól í hæð­ina og gagn­rýnir hug­mynd­ina harð­lega í færslu á Facebook.

„Afsakið, en þetta er hörmu­leg hug­mynda­fræði. Þetta er ekk­ert öðru­vísi en að selja vega­kerfið, raf­orku­dreif­ingu, vatns­lagnir og fleira í þeim dúr. Verð­mætin í þessum innviðum eru að þurfa ekki að borga undir gróða­fíkn fákeppn­innar,“ skrifar Björn Leví.

Hann efast jafn­framt um að sala félags­ins og mögu­leg nið­ur­greiðsla skulda skili sér í raun til borg­ar­búa. Þvert á móti telur hann hættu á að kostn­aður þeirra auk­ist ef grunn­inn­viðir fær­ist í hendur einka­að­ila.

Björn Leví spyr meðal ann­ars hvort fyr­ir­hug­aðri sölu fylgi lof­orð um skatta­lækk­anir í sam­ræmi við lægri skuldir og varar við því að borgin nýti aukið fjár­hags­legt svig­rúm til frek­ari skuld­setn­ingar.

Hann kallar jafn­framt eftir skýr­ari skil­grein­ingu á því hvað telj­ist til grunn­inn­viða og segir hið opin­bera bera ábyrgð á að tryggja íbúum öruggan og hag­kvæman aðgang að slíkum innviðum.

„Ég nenni ekki enn einni einka­væð­ingu á innviðum sem hið opin­bera byggði upp,“ skrifar Björn Leví.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum