1
Heimur

Flugvél á leið frá Tenerife sneri við eftir hópslagsmál um borð

2
Heimur

Orrustuþota hrapaði skammt frá Moskvu

3
Innlent

Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi undan Húsavík

4
Fólk

Anna Marsý trúlofuð en týndi hringnum

5
Heimur

Dómari skipar Trump að afhenda gögn

6
Heimur

Dánarorsök Kaylee Hottle staðfest eftir banaslys

7
Heimur

Karlmenn flykkjast í háreyðingu eftir að stuttbuxur voru leyfðar í vinnunni

8
Heimur

Gagnrýnendur hrósa nýrri þáttaröð Klovn

9
Heimur

Kona ákærð fyrir morð á breskri fjögurra barna móður í Frakklandi

10
Heimur

U16 landsliðsmenn Englendinga lentu í slagsmálum

Til baka

Einn fluttur á slysadeild eftir umferðarslys

Sjúkrabíll
Sjúkrabíll á ferðMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Víkingur

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í gærkvöldi og nótt en meðal verkefna voru umferðarslys, meint fíkniefnaakstur og innbrot.

Tilkynnt var um umferðarslys í Reykjavík þar sem einn einstaklingur var fluttur á slysadeild með minniháttar meiðsli. Þá var einn ökumaður handtekinn á vettvangi, grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Sá var vistaður í fangaklefa að lokinni sýnatöku.

Þá var ökumaður stöðvaður fyrir of hraðan akstur eftir að hafa mælst á 122 kílómetra hraða á klukkustund þar sem leyfilegur hámarkshraði er 80 kílómetrar á klukkustund. Ökumaðurinn var sektaður á vettvangi.

Lögregla hafði einnig afskipti af ökumanni bifhjóls sem reyndist aka ökutækinu án þess að það væri rétt skráð. Þá var viðkomandi jafnframt án gildra ökuréttinda og ekki með viðeigandi öryggisbúnað. Var hann sektaður vegna brotanna.

Tilkynnt var um innbrot í Kópavogi þar sem fjórir aðilar sáust á öryggismyndavélum brjóta sér leið inn í húsnæði. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu flúðu þeir af vettvangi þegar öryggiskerfi hússins fór í gang.

Einnig var annar ökumaður handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Sá var færður á lögreglustöð í hefðbundið ferli lögreglu.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi undan Húsavík
Innlent

Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi undan Húsavík

Þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð á vettvang
U16 landsliðsmenn Englendinga lentu í slagsmálum
Myndband
Heimur

U16 landsliðsmenn Englendinga lentu í slagsmálum

Barnaheill varar við neyðarástandi fyrir þungaðar konur í Venesúela

Skip Paul Watsons snýr aftur til Íslands
Innlent

Skip Paul Watsons snýr aftur til Íslands

Gagnrýnendur hrósa nýrri þáttaröð Klovn
Heimur

Gagnrýnendur hrósa nýrri þáttaröð Klovn

Dómari skipar Trump að afhenda gögn
Heimur

Dómari skipar Trump að afhenda gögn

Smotrich segir Ísrael engan áhuga hafa á að hjálpa Bandaríkjunum í stríðinu
Heimur

Smotrich segir Ísrael engan áhuga hafa á að hjálpa Bandaríkjunum í stríðinu

Dánarorsök Kaylee Hottle staðfest eftir banaslys
Heimur

Dánarorsök Kaylee Hottle staðfest eftir banaslys

Flugvél á leið frá Tenerife sneri við eftir hópslagsmál um borð
Heimur

Flugvél á leið frá Tenerife sneri við eftir hópslagsmál um borð

Orrustuþota hrapaði skammt frá Moskvu
Heimur

Orrustuþota hrapaði skammt frá Moskvu

Karlmenn flykkjast í háreyðingu eftir að stuttbuxur voru leyfðar í vinnunni
Heimur

Karlmenn flykkjast í háreyðingu eftir að stuttbuxur voru leyfðar í vinnunni

Anna Marsý trúlofuð en týndi hringnum
Fólk

Anna Marsý trúlofuð en týndi hringnum

Kona ákærð fyrir morð á breskri fjögurra barna móður í Frakklandi
Heimur

Kona ákærð fyrir morð á breskri fjögurra barna móður í Frakklandi

Innlent

Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi undan Húsavík
Innlent

Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi undan Húsavík

Þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð á vettvang
Barnaheill varar við neyðarástandi fyrir þungaðar konur í Venesúela
Innlent

Barnaheill varar við neyðarástandi fyrir þungaðar konur í Venesúela

Skip Paul Watsons snýr aftur til Íslands
Innlent

Skip Paul Watsons snýr aftur til Íslands

Íranska samfélagið skorar á Ísland að fordæma aftökur ungra mótmælenda

Breyttur útivistartími barna
Innlent

Breyttur útivistartími barna

Loka auglýsingu