1
Fólk

„Jónsson fullkomnaði fjölskylduna“

2
Heimur

Dánarorsök Sam Neill kunngjörð

3
Heimur

Fyrrverandi eiginkona Eminem flutt á sjúkrahús eftir sjálfsvígstilraun

4
Fólk

Sanna sælleg og sæt í sólinni

5
Innlent

Stal sjö milljónum af HHÍ og er nú gjaldþrota

6
Innlent

Íslendingar nældu sér í gullverðlaun

7
Fólk

Átta leiðir til að stórbæta líðan innikatta

8
Innlent

Ógeðfelldar athugasemdir látnar falla síendurtekið

9
Innlent

Bestu og verstu rökin gegn Evrópusambandsaðild Íslands

10
Heimur

Breska glæpakvendið handtekið á Tenerife

Til baka

Arndís R. Magnúsdóttir, Gunnar Geir Kristjánsson

Endar Fáskrúðsfjörður sem brothætt byggð?

Gunnar Geir Kristjánsson

Þegar við hjónin fluttum til Fáskrúðsfjarðar árið 2007 ríkti bjartsýni á Austurlandi. Álverið á Reyðarfirði var að rísa, atvinnulíf í sókn og sameining sveitarfélaga kynnt sem leið til að styrkja svæðið í heild án þess að einstök byggðarlög misstu sérstöðu sína eða þjónustu.

Eftir að hafa skoðað húsnæðismarkaðinn á svæðinu ákváðum við að festa rætur á Fáskrúðsfirði. Þar var góð þjónusta, stutt í vinnu og samfélagið lifandi. Á þessum tíma var hér banki, pósthús, apótek, vínbúð, verslun og heilsugæsla með lækni flesta virka daga.

Nú, tæpum tveimur áratugum síðar, er staðan allt önnur.

Þjónustan hefur horfið hver af annarri. Nú hefur jafnframt verið tilkynnt að Vínbúðinni verði lokað 1. júní næstkomandi. Eftir standa lögreglustöð og kjörbúð sem helstu þjónustueiningar ríkis og samfélags í firðinum.

Það sem þó vekur hvað mestar áhyggjur er að læknisþjónusta hefur verið færð burt úr byggðarlaginu.

Í svörum Guðjóns Haukssonar, forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands, kemur fram að ástæður þessa séu fyrst og fremst manneklan innan heilbrigðiskerfisins og aukin áhersla á miðlæga teymisvinnu á Reyðarfirði. Það eru skiljanleg rök út frá rekstri kerfisins, en fyrir íbúana breytir það ekki afleiðingunum.

Niðurstaðan er einföld: tæplega 800 íbúar Fáskrúðsfjarðar þurfa nú að sækja almenna læknisþjónustu til Reyðarfjarðar.

Sú vegalengd kann að virðast lítil á blaði, en raunveruleikinn er annar. Fyrir eldri borgara, fólk án einkabíls eða einstaklinga sem þurfa reglulega þjónustu getur þetta verið verulegt álag — bæði fjárhagslega og félagslega.

Raunkostnaður við eina slíka ferð getur auðveldlega numið 4–6 þúsund krónum þegar tekið er tillit til eldsneytis, slits og almenns reksturs bifreiðar. Ef aðeins 100 íbúar fara eina slíka ferð í mánuði nemur kostnaðurinn mörgum milljónum króna á ári — kostnaði sem áður var borinn af kerfinu sjálfu en hefur nú í reynd verið færður yfir á íbúana.

Þar við bætist tímasóun, aukið álag á vegakerfið og meiri umferð milli byggðarlaga.

Þá er staða almenningssamgangna á svæðinu langt frá því að vera fullnægjandi. Strætóferðir milli staða á suðurfjörðum henta illa fólki sem þarf að sækja heilbrigðisþjónustu, sérstaklega eldri borgurum sem geta þurft að bíða klukkustundum saman eftir næstu ferð — oft við erfiðar veðuraðstæður.

Þessi þróun hefur einnig áhrif langt út fyrir sjálfa þjónustuna. Þegar grunnþjónusta hverfur hefur það óhjákvæmilega áhrif á aðdráttarafl samfélagsins, fasteignamarkað og framtíðartrú íbúa.

Fasteignir á svæðinu verða síður eftirsóknarverðar þegar aðgengi að heilbrigðisþjónustu, verslun og öðrum grunninnviðum veikist. Fyrir fólk sem hefur lagt aleigu sína í heimili á staðnum getur slíkt þýtt raunverulega verðrýrnun eigna og aukna óvissu um framtíð samfélagsins.

Auðvitað skilja flestir að erfitt getur verið að manna sérhæfða þjónustu á landsbyggðinni. En þegar þjónusta hverfur smám saman án þess að sambærilegar lausnir komi í staðinn vaknar eðlilega spurningin hvert stefnir.

Hvenær verður byggð talin „brothætt“?

Er það þegar fólki fækkar? Þegar atvinnu fækkar? Eða þegar grunnþjónusta samfélagsins er farin að hverfa ein af annarri?

Þegar stjórnvöld tala um að styrkja landsbyggðina þarf sú stefna að sjást í verki — ekki aðeins í orðum. Annars skapast sú tilfinning meðal íbúa að þróunin sé einfaldlega sú að flytja þjónustu, störf og innviði í burtu þar til samfélögin veikjast smám saman af sjálfu sér.

Spurningin sem stendur eftir er því ekki aðeins hvernig eigi að reka þjónustu á Austurlandi, heldur hvort samfélög eins og Fáskrúðsfjörður eigi raunverulega framtíð fyrir sér sem fullgilt byggðarlag — eða hvort því verði hægt og rólega látið blæða út. A

Arndís R. Magnúsdóttir
Arndís R. MagnúsdóttirMeðhöfundur pistilsins
Mynd: Aðsend

Höfundar eru eldri borgarar á Fáskrúðsfirði.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Stjörnulífvörður látinn í umferðarslysi
Heimur

Stjörnulífvörður látinn í umferðarslysi

Gætti Kardashian-fjölskyldunnar, Lewis Hamilton, Kevin Hart, Nicki Minaj og fleiri stjarna
Stal sjö milljónum af HHÍ og er nú gjaldþrota
Innlent

Stal sjö milljónum af HHÍ og er nú gjaldþrota

Þórhallur dæmdur fyrir grófa líkamsárás á fyrrverandi kærustu
Innlent

Þórhallur dæmdur fyrir grófa líkamsárás á fyrrverandi kærustu

Ósætti vegna nýrrar brúar yfir Breiðholtsbraut
Innlent

Ósætti vegna nýrrar brúar yfir Breiðholtsbraut

Olís innkallar sólgleraugu vegna öryggisgalla
Peningar

Olís innkallar sólgleraugu vegna öryggisgalla

Bestu suðurkóresku húðvörurnar
Fólk

Bestu suðurkóresku húðvörurnar

Palestínumaður spyr hver hafi fjármagnað nýja menningarmiðstöð gyðinga
Innlent

Palestínumaður spyr hver hafi fjármagnað nýja menningarmiðstöð gyðinga

Alvarleg staða í stærðfræðikennslu á Íslandi
Innlent

Alvarleg staða í stærðfræðikennslu á Íslandi

15 fæðutegundir sem vinna gegn einkennum breytingaskeiðsins
Fólk

15 fæðutegundir sem vinna gegn einkennum breytingaskeiðsins

Starfslok slökkviliðsstjóra tengjast fjárreiðum
Innlent

Starfslok slökkviliðsstjóra tengjast fjárreiðum

Breska glæpakvendið handtekið á Tenerife
Heimur

Breska glæpakvendið handtekið á Tenerife

Rithöfundur hrósar Yellowstone fyrir að þyrma vísundi eftir árás á ferðamann
Heimur

Rithöfundur hrósar Yellowstone fyrir að þyrma vísundi eftir árás á ferðamann

Skoðun

Fórnarlömb til slátrunar
Skoðun

Ragnar Erling Hermannsson

Fórnarlömb til slátrunar

Þegar heimili verður að víglínu: Saga einstæðrar móður í auga hvirfilbylins
Skoðun

Margrét Rut Eddudóttir

Þegar heimili verður að víglínu: Saga einstæðrar móður í auga hvirfilbylins

Helvítis útlendingar!
Skoðun

Ragnar Erling Hermannsson

Helvítis útlendingar!

Opið bréf til dómsmálaráðherra
Skoðun

Alma Hafsteinsdóttir

Opið bréf til dómsmálaráðherra

Tilkynning, leiðréttingar og andsvar vegna aðalfundar Sósíalistaflokks Íslands
Skoðun

Jón Ferdínand Estherarson

Tilkynning, leiðréttingar og andsvar vegna aðalfundar Sósíalistaflokks Íslands

Sekmeth
Skoðun

Ragnar Erling Hermannsson

Sekmeth

Loka auglýsingu