1
Heimur

Flugvél á leið frá Tenerife sneri við eftir hópslagsmál um borð

2
Heimur

Orrustuþota hrapaði skammt frá Moskvu

3
Innlent

Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi undan Húsavík

4
Fólk

Anna Marsý trúlofuð en týndi hringnum

5
Heimur

Dómari skipar Trump að afhenda gögn

6
Heimur

Dánarorsök Kaylee Hottle staðfest eftir banaslys

7
Fólk

Daði og fjölskylda á ferð um landið

8
Heimur

Gagnrýnendur hrósa nýrri þáttaröð Klovn

9
Heimur

Karlmenn flykkjast í háreyðingu eftir að stuttbuxur voru leyfðar í vinnunni

10
Heimur

Móðir Ben Needham hafnar kenningu lögreglu

Til baka

Gabríel Douane dæmdur líkamsárásir og rán

Réðst meðal annars á fangaverði

Gabríel Douane
Gabríel Douane BoamaHefur hlotið marga dóma í gegnum árin.

Karlmaður dæmdur í fangelsi fyrir rán, hótanir og ítrekaðar líkamsárásir

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Gabríel Douane Boama í fangelsi fyrir fjölda alvarlegra brota, þar á meðal rán, hótanir, líkamsárásir og fíkniefnalagabrot. Málið var umfangsmikið og byggði á þremur aðskildum ákærum sem sameinaðar voru í einu dómsmáli.

Samkvæmt dóminum var Gabríel meðal annars sakfelldur fyrir líkamsárás í verslun Hagkaups við Skeifuna í júlí árið 2023 þar sem maður hlaut augntóftarbrot eftir að hafa verið sleginn með krepptum hnefa í andlitið.

Eitt brot tengdist atviki sem átti sér stað í bifreið í Reykjavík í febrúar 2024. Þar taldi dómurinn sannað að Gabríel hefði hótað konu með hnífi með þeim hætti að hún óttaðist um líf sitt og heilsu. Vitni lýstu því að hann hefði beint hníf að hálsi hennar eftir að hún bað hann um að fara út úr bifreiðinni. Dómurinn taldi framburð brotaþola trúverðugan þrátt fyrir ákveðið ósamræmi í frásögnum vitna.

Í sama atviki var Gabríel jafnframt sakfelldur fyrir rán. Samkvæmt niðurstöðu dómsins neyddi hann ökumann bifreiðarinnar til að afhenda sér iPhone 14 farsíma með því að hóta honum með hnífi. Síminn fannst síðar í fórum hans þegar lögregla handtók hann á Akranesi tveimur dögum síðar. Dómurinn hafnaði skýringu Gabríels um að hann hefði óvart farið með símann og taldi framburð hans „ótrúverðugan og í raun fjarstæðukenndur“.

Hann var einnig fundur sekur í ákæru sem laut að ofbeldi gegn fangavörðum á Litla-Hrauni sumarið 2024. Þar réðst hann á þrjá fangaverði og veitti þeim áverka með hnefahöggum. Einn þeirra hlaut skurð á höfði og annar heilahristing.

Einnig var hann sakfelldur fyrir líkamsárás gegn samfanga á Litla-Hrauni í mars 2025. Brotaþoli hlaut meðal annars tannbrot, augntóftarbrot og skurð við augabrún eftir árásina. Öryggismyndavélar úr fangelsinu sýndu Gabríel fara inn í klefa brotaþolans rétt áður en hann kom út blóðugur í andliti.

Dómurinn taldi sannað að Gabríel hefði gerst sekur um öll brotin sem honum voru gefin að sök, að hluta til með játningum hans sjálfs og að hluta til með vitnisburðum, myndbandsupptökum og öðrum rannsóknargögnum. Refsing hans var ákveðin með hliðsjón af fjölda brota og alvarleika þeirra.

Var hann dæmdur í 12 mánaða fangelsi og þarf að greiða fórnarlömbum sínum 1.800.000 króna í miskabætur.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Krefst rannsóknar á tengslum Barrons Trump við Tate-bræðurna
Heimur

Krefst rannsóknar á tengslum Barrons Trump við Tate-bræðurna

Donald Trump segist ekki ætla að skipta sér að framsalsmáli bræðranna
Sigmundur Davíð jarmar um Þorgerði Katrínu
Pólitík

Sigmundur Davíð jarmar um Þorgerði Katrínu

Þrettán ára drengur ákærður fyrir skotárás í Svíþjóð
Heimur

Þrettán ára drengur ákærður fyrir skotárás í Svíþjóð

Gulla Jónsdóttir sópar að sér verðlaunum
Myndir
Fólk

Gulla Jónsdóttir sópar að sér verðlaunum

Halla Tómasdóttir í góðum gír á Hömrum
Myndir
Landið

Halla Tómasdóttir í góðum gír á Hömrum

Utanríkisráðuneytið forðast efnisleg svör um fund Marco Rubio
Pólitík

Utanríkisráðuneytið forðast efnisleg svör um fund Marco Rubio

Flugvél rann út af flugbraut í úrhellisrigningu
Myndband
Heimur

Flugvél rann út af flugbraut í úrhellisrigningu

Daði og fjölskylda á ferð um landið
Myndband
Fólk

Daði og fjölskylda á ferð um landið

Rússneskur auðjöfur vígði miðstöð gyðinga
Innlent

Rússneskur auðjöfur vígði miðstöð gyðinga

Minnast hryðjuverkanna í Noregi í Vatnsmýrinni
Myndir
Innlent

Minnast hryðjuverkanna í Noregi í Vatnsmýrinni

Netárás lamaði heimasíður fjölmargra aðila á Austurlandi
Landið

Netárás lamaði heimasíður fjölmargra aðila á Austurlandi

Innlent

Rússneskur auðjöfur vígði miðstöð gyðinga
Innlent

Rússneskur auðjöfur vígði miðstöð gyðinga

Auðjöfurinn er styrktaraðili sjóðs sem styður ólöglegar landnemabyggðir
Íranska samfélagið skorar á Ísland að fordæma aftökur ungra mótmælenda
Innlent

Íranska samfélagið skorar á Ísland að fordæma aftökur ungra mótmælenda

Minnast hryðjuverkanna í Noregi í Vatnsmýrinni
Myndir
Innlent

Minnast hryðjuverkanna í Noregi í Vatnsmýrinni

Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi undan Húsavík
Innlent

Alvarlegt slys um borð í skemmtiferðaskipi undan Húsavík

Barnaheill varar við neyðarástandi fyrir þungaðar konur í Venesúela
Innlent

Barnaheill varar við neyðarástandi fyrir þungaðar konur í Venesúela

Skip Paul Watsons snýr aftur til Íslands
Innlent

Skip Paul Watsons snýr aftur til Íslands

Loka auglýsingu