
Helga Vala Helgadóttir, lögmaður og fyrrverandi þingkona Samfylkingarinnar, segist skilja vel ákvörðun Hildar Björnsdóttur um að leita frekar samstarfs við „líkt þenkjandi fólk“ í borgarstjórn Reykjavíkur en að leita samstarfs „út á jaðarinn hægra megin“.
Þetta kemur fram í Facebook-færslu sem Helga Vala birti þar sem hún fjallar um stjórnarmyndunarviðræður eftir borgarstjórnarkosningarnar.
„Ég óska Hildi Björnsdóttur velfarnaðar í sínu krefjandi starfi sem framundan er,“ skrifar hún.
Helga Vala segir jafnframt að niðurstaða kosninganna gefi ekki tilefni til að líta svo á að kjósendur vilji ákveðna flokka við stjórn borgarinnar.
„Það að fá rúm 10 % í kosningum eru ekki skýr skilaboð um að íbúar Reykjavíkur vilji þann flokk við stjórn borgarinnar. Bara alls ekki,“ skrifar hún og vísar þar til Miðflokksins.
Gagnrýnir orðræðu Miðflokksins
Helga Vala gagnrýnir einnig viðbrögð fólks úr Miðflokknum eftir kosningarnar og segir orðræðuna ekki auka traust á flokknum.
„Þessi orðræða miðflokksfólks eftir kosningar og í dag er alls ekki til þess fallin að auka traust á að sá flokkur geti sýnt ábyrgð og stillingu sem er nauðsynleg við stjórn sveitarfélags, sem er að sinna nærþjónustunni,“ skrifar hún.
Að lokum segist Helga Vala skilja að Hildur hafi „haldið spilunum þétt að sér“.
„Svo skil ég vel, miðað við viðbrögð órólegu deildarinnar í Sjálfstæðisflokknum, að Hildur hafi haldið spilunum þétt að sér. Hún þurfti einfaldlega vinnufrið frá þessari deild, sem mér sýnist aðallega skipuð eldri körlum sem mögulega deila ekki alveg reynsluheimi með Hildi.
Hlakka til að sjá samkomulagið i næstu viku.“
