1
Innlent

Heimir Örn aftur dæmdur fyrir umsáturseinelti

2
Innlent

Alnafni ráðherra dæmdur í fangelsi

3
Innlent

Auglýsa eftir sjö prestum

4
Fólk

Halla stórglæsileg í afmælisveislu

5
Innlent

Líkir Sönnu við Zohran Mamdani

6
Landið

Ók rútu við Landmannalaugar án réttinda

7
Fólk

Óska eftir tilboðum í stórkostlegt einbýli við tennisvöll

8
Innlent

Bílvelta í Mosfellsbæ

9
Heimur

Opna bókabúð án bóka í New York

10
Heimur

20 þúsund manns mættu á ólöglega teknóhátíð þrátt fyrir sprengjuhættu

Til baka

Helgi Rafn Guðmundsson

Íþróttaskólinn NÚ – framsýn nálgun á nám og íþróttir

Helgi Rafn Guðmundsson
Helgi Rafn Guðmundsson
Mynd: Aðsend

Á Reykjavíkurveg 50 í Hafnarfirði starfar NÚ, sjálfstætt starfandi grunnskóli sem leggur sérstaka áherslu á samspil náms og íþrótta. Skólinn var stofnaður árið 2016 og er því að hefja sitt 10. starfsár. Í NÚ eru um 100 nemendur, í 8.–10. bekk. Með litlum samstilltum hópi skapast náið samfélag þar sem hver nemandi fær rými til að blómstra bæði í bóklegum greinum og íþróttum.

Sérstaða skólans

NÚ fylgir grunnskólalögunum og aðalnámskrá grunnskóla en nálgast námið á annan hátt en hefðbundnir grunnskólar með sterkri tengingu við íþróttir og uppbyggingu einstaklingsins. Skóladagurinn hefst klukkan 9 á morgnana en yfir myrkustu mánuðina, desember og janúar, hefst kennsla klukkan 10. Þessi sveigjanleiki er hluti af markmiði skólans að styðja við vellíðan og árangur unglinga á mikilvægum uppvaxtarárum.

Í NÚ er meginþorri bóklegs náms sett upp sem vendinám. Þar er nemendum kennt að skipuleggja sitt eigið nám og noa tölvur og forrit til að skipuleggja sig og skila inn verkefnum. Það er mikill kostur fyrir íþróttamenn að hafa námið rafrænt þar sem hægt er að vinna verkefni í keppnis- og æfingaferðum og einnig er verið að undirbúa nemendur fyrir framhalds- og háskóla þar sem mikið af náminu er á tölvutæku formi.

Íþróttir í fyrirrúmi

Nemendur fá tækifæri til að æfa íþróttir sínar samhliða náminu. Þeir sem æfa knattspyrnu, handbolta og körfubolta geta farið á akademíuæfingar í sinni grein tvisvar í viku á skólatíma. Í NÚ er hefðbundin íþrótta- og sundkennsla en einnig er styrktarþjálfun vikulega fyrir alla nemendur skólans. Nemendur fá ítarlegar íþróttamælingar sem venjulega standa eingöngu afreksíþróttafólki til boða og þá eru íþróttafræðingar innan skólans sem hjálpa til við að þjálfa og álagsstýra nemendum ef þess er þörf.

Þar að auki starfar í skólanum bæði íþróttasálfræðingur og markþjálfi sem styðja við nemendur í markmiðasetningu, sjálfstrausti og andlegum styrk – lykilþáttum í velgengni bæði á vellinum og í námi.

Í skólanum eru námsfög sem snúa að líkamlegri og andlegri þjálfun og vellíðan. Þar er til dæmis farið ítarlega í svefn, næringu, meiðslaforvörn, hugarþjálfun, markmiðasetningu og hvernig er hægt að hámarka árangur sem íþróttamaður, bæði innan vallar og utan.

Eftirspurnin mikil

Eftirspurn eftir skólavist í NÚ er mikil og því miður komast ekki allir að sem vilja. Þau pláss sem opnast árlega fyllast á augabragði. Þetta sýnir vel hversu mikil þörf er fyrir skóla þar sem íþróttir og nám eru samþætt á jafn árangursríkan hátt og NÚ býður upp á.

Framtíðarsýn

Markmið NÚ er að skapa vettvang þar sem ungir íþróttamenn fá tækifæri til að þroska hæfileika sína án þess að þurfa að velja á milli náms og íþrótta. Með fagfólki sem flest hefur íþróttabakgrunn er stuðningurinn bæði faglegur og raunhæfur.

NÚ stefnir að því að opna annan skóla í Mosfellsbæ árið 2026 og nú þegar er mikill áhugi á að stofna sambærilega skóla víðsvegar um landið.

Skólinn hefur á örfáum árum skapað sér sérstöðu í íslensku skólaumhverfi og sýnt fram á að hægt er að sameina hefðbundið nám og metnaðarfullar íþróttaæfingar á árangursríkan hátt.

Höfundur er kennari við NÚ

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Eigendur Sóltúns handteknir
Innlent

Eigendur Sóltúns handteknir

Framkvæmdar voru húsleitir hjá þeim
Ferðamenn á Kanarí geta andað léttar
Heimur

Ferðamenn á Kanarí geta andað léttar

Hjólreiðamaður hryggbrotinn eftir að ekið var á hann
Myndband
Heimur

Hjólreiðamaður hryggbrotinn eftir að ekið var á hann

Trump segist hafa gert „þjóðsöng samkynhneigðra“ aftur vinsælan
Myndband
Heimur

Trump segist hafa gert „þjóðsöng samkynhneigðra“ aftur vinsælan

Asískir karlmenn dæmdir fyrir skjalafals
Innlent

Asískir karlmenn dæmdir fyrir skjalafals

Gríðarstór gersemi í Garðabæ til sölu
Myndir
Fólk

Gríðarstór gersemi í Garðabæ til sölu

Fluttur á bráðamóttöku eftir slys í Hafnarfirði
Innlent

Fluttur á bráðamóttöku eftir slys í Hafnarfirði

Einn handtekinn eftir að hafa sett rottueitur í barnamat
Heimur

Einn handtekinn eftir að hafa sett rottueitur í barnamat

Alnafni ráðherra dæmdur í fangelsi
Innlent

Alnafni ráðherra dæmdur í fangelsi

Kieran Smyth ákærður fyrir morðtilraun á Norður-Írlandi
Heimur

Kieran Smyth ákærður fyrir morðtilraun á Norður-Írlandi

20 þúsund manns mættu á ólöglega teknóhátíð þrátt fyrir sprengjuhættu
Heimur

20 þúsund manns mættu á ólöglega teknóhátíð þrátt fyrir sprengjuhættu

Skoðun

Eflum og byggjum upp Eyrina
Skoðun

Darri Rafn Hólmarsson

Eflum og byggjum upp Eyrina

Hulan fellur
Skoðun

Ragnar Erling Hermannsson

Hulan fellur

Ég er kominn heim
Skoðun

Ragnar Erling Hermannsson

Ég er kominn heim

Burt með dýraeftirlit hjá Matvælastofnun
Skoðun

Magnús Georg Jensen Margeirsson

Burt með dýraeftirlit hjá Matvælastofnun

Kæra borgarstýra
Skoðun

Ragnar Erling Hermannsson

Kæra borgarstýra

Þegar leyndardómar Evrópu komu til Íslands
Skoðun

Ragnar Erling Hermannsson

Þegar leyndardómar Evrópu komu til Íslands

Loka auglýsingu