1
Innlent

Icelandair sigraði hóp bifvélavirkja

2
Fólk

Selja einbýli með 5.000 fermetra lóð á höfuðborgarsvæðinu

3
Fólk

„Þetta krabbamein er það besta sem hefur komið fyrir mig.“

4
Pólitík

Segir orð Þorgerðar Katrínar innantóm

5
Innlent

Ætluðu að flytja 18 kíló af kóki í Ármúla

6
Innlent

Fór með börnin frá Íslandi án samþykkis föðurins

7
Peningar

Dýr veruleiki blasir við leigjendum á Íslandi

8
Heimur

Dularfullur fylgdarmaður sendiherra Trump vekur spurningar

9
Innlent

Hafnfirðingur missti hemilinn á gestunum

10
Heimur

Klámstjarnan Bonnie Blue stöðvuð af lögreglu

Til baka

Jón Þröstur mögulega myrtur af leigumorðingja sem fór mannavillt

Talið er mögulegt að leigu­morðingi hafi ætlað að myrða ann­an Íslend­ing sem heim­sótti Írland á sama tíma og Jón Þröstur, en þetta kem­ur fram í um­fjöll­un Irish Times um málið

Jón Þröstur
Mál Jóns Þrastar hefur vakið mikla athygliRannsóknin er í fullum gangi.
Mynd: Aðsend

Fjöl­skylda Jóns Þrast­ar Jóns­son­ar tel­ur ekki óhugs­an­di að hann hafi verið myrt­ur af leigu­morðingja í Dublin á Írlandi fyr­ir mis­tök.

Í um­fjöll­un The Irish Times segir að lög­reglu­menn frá Írlandi séu vænt­an­leg­ir til Íslands í tengsl­um við rann­sókn­ina á hvarfi Jóns Þrast­ar en síðast er vitað um ferðir hans í Dublin í fe­brú­ar fyrir sex árum.

Í til­kynn­ingu frá ís­lensku lög­regl­unni kemur fram að samþykkt rétt­ar­beiðni liggi fyr­ir. Til standi að taka skýrsl­ur af tæplega fjörutíu manns vegna máls­ins.

Eins og margoft hefur komið fram þá hvarf Jón Þröst­ur spor­laust í heim­sókn sinni til Dublin, en þangað fór hann til að taka þátt í pókermóti.

Ljóst er að írska lög­regl­an hef­ur sett þunga í rann­sóknina og hafa meðal ann­ars verið fram­kvæmd­ar fjór­ar leit­ir í Dublin á und­an­förnum mánuðum með aðstoð spor­hunda.

Í um­fjöll­un The Irish Times er sagt að írska lög­regl­an telji að hér á landi sé að finna fólk er kunni að hafa vitn­eskju um hvarf Jóns Þrast­ar, en vilji mögulega eigi ræða við lög­regluna á Íslandi og von­ast írska lög­regl­an til að fólkið sé til­búið að ræða við írska lög­reglu­menn.

Írsk­ir sem og ís­lensk­ir lög­reglu­menn hitt­ust ný­verið í í Haag í Hollandi. Mótuðu þá stefnu er varðar auk­inn þunga í rann­sókn­ina.

Jón Þröst­ur fór fótgang­andi frá hót­el­inu er hann dvaldi á; náðust mynd­ir af honum í ör­ygg­is­mynda­vél nálægt inn­gangi hjúkr­un­ar­heim­il­is við hlið hót­els­ins.

Hef­ur írska lög­regl­an ekki frek­ari upp­lýs­ing­ar um af­drif hans og þá hafa eng­in um­merki um hann fund­ist í langan tíma.

Jón Þröstur hafði aldrei áður komið til Írlands; átti þar enga vini eða fjöl­skyldu, að því er fram kem­ur í um­fjöll­un The Irish Times.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Kona alvarlega slösuð eftir líkamsárás í Kópavogi
Innlent

Kona alvarlega slösuð eftir líkamsárás í Kópavogi

Karlmaður á fimmtugsaldri í haldi lögreglu.
Svara versnandi líðan barna
Innlent

Svara versnandi líðan barna

Ný barnabók kennir börnum að greina á milli góðra og vondra leyndarmála
Myndir
Menning

Ný barnabók kennir börnum að greina á milli góðra og vondra leyndarmála

Fasteignamarkaðurinn fastur í keðjum
Innlent

Fasteignamarkaðurinn fastur í keðjum

Rússar hóta Bretum kjarnorkuárás
Heimur

Rússar hóta Bretum kjarnorkuárás

Erlendum nemendum fjölgar á meðan færri Íslendingar fara utan
Innlent

Erlendum nemendum fjölgar á meðan færri Íslendingar fara utan

Kafari sem tók þátt í björgun taílensku fótboltastrákanna látinn 44 ára
Heimur

Kafari sem tók þátt í björgun taílensku fótboltastrákanna látinn 44 ára

Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning
Pólitík

Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning

Karlmenn taka leynilega upp myndbönd af konum til að græða peninga
Heimur

Karlmenn taka leynilega upp myndbönd af konum til að græða peninga

Íranar vara við orkuskorti í vetur eftir árásir Bandaríkjanna og Ísraels
Heimur

Íranar vara við orkuskorti í vetur eftir árásir Bandaríkjanna og Ísraels

Öllu starfsfólki NetApp á Íslandi sagt upp
Innlent

Öllu starfsfólki NetApp á Íslandi sagt upp

Ísland dælir milljörðum í menntakerfið en kennslutíminn mun styttri en erlendis
Innlent

Ísland dælir milljörðum í menntakerfið en kennslutíminn mun styttri en erlendis

Sala sýklalyfja fyrir dýr jókst um rúm 21 prósent
Innlent

Sala sýklalyfja fyrir dýr jókst um rúm 21 prósent

Innlent

Kona alvarlega slösuð eftir líkamsárás í Kópavogi
Innlent

Kona alvarlega slösuð eftir líkamsárás í Kópavogi

Karlmaður á fimmtugsaldri í haldi lögreglu.
Ísland dælir milljörðum í menntakerfið en kennslutíminn mun styttri en erlendis
Innlent

Ísland dælir milljörðum í menntakerfið en kennslutíminn mun styttri en erlendis

Svara versnandi líðan barna
Innlent

Svara versnandi líðan barna

Fasteignamarkaðurinn fastur í keðjum
Innlent

Fasteignamarkaðurinn fastur í keðjum

Erlendum nemendum fjölgar á meðan færri Íslendingar fara utan
Innlent

Erlendum nemendum fjölgar á meðan færri Íslendingar fara utan

Öllu starfsfólki NetApp á Íslandi sagt upp
Innlent

Öllu starfsfólki NetApp á Íslandi sagt upp

Loka auglýsingu