1
Fólk

Guðmundur Ingi opnar sig um krabbameinsgreiningu

2
Pólitík

Bjarni Ben fær aukavinnu hjá ríkinu

3
Innlent

Birgir Rafn valinn fram yfir 20 manns

4
Fólk

Fimm hlutir sem konur taka strax eftir hjá karlmönnum

5
Peningar

Íslandsbanki stefnir Húsvíkingi vegna láns sem tekið var í appi

6
Fólk

Þriggja hæða einbýlishús í Eyjum leitar nýrra eigenda

7
Innlent

Enginn þingmaður þáði boðsmiða á NAZA

8
Innlent

Lögmaður dæmds morðingja segir fangelsisvistina neikvæða

9
Innlent

Vinsælir barnabílstólar innkallaðir vegna öryggishættu

10
Innlent

Þrír ökumenn fluttir á sjúkrahús

Til baka

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið

„Ríkisstjórnin hamast við að moka flórinn eftir þessa sóða, en þeir standa á hliðarlínunni hrópandi ókvæðisorð“

Sigmundur Davíð, Guðrún Hafsteindóttir og Lilja Alfreðsdóttir
Formenn þriggja stjórnmálaflokkaBjörn Birgis hjólar í stjórnarandstöðuna
Mynd: BHJ

Björn Birgisson, samfélagsrýnir og fyrrverandi ritstjóri frá Grindavík, sparar ekki stóru orðin í nýrri Facebook-færslu þar sem hann gagnrýnir stjórnarandstöðuna harðlega en færslur hans vekja að jafnaði mikla eftirtekt og umræðu. Í nýju færslunni sakar Björn fyrri ríkisstjórn um að hafa skilið eftir gríðarlegar skuldir og segir núverandi stjórnvöld þurfa að taka til eftir hana.

Björn beinir spjótum sínum einkum að Sjálfstæðisflokknum, en hann gagnrýnir einnig Vinstri græn, Framsóknarflokkinn og Miðflokkinn.

„Aðallega Sjallarnir sem aldrei á að hleypa að opinberu fjármagni eða stjórnun af nokkru tagi,“ skrifar Björn og segir Vinstri græn vera á líknardeildinni. Þá líkir hann stöðu Framsóknarflokksins við einhvers konar lömunarveiki og segir Miðflokkinn ekkert kunna annað en að rífa kjaft.

Mest fer fyrir gagnrýni Björns á fjármál ríkisins og þann halla sem hann segir fyrri ríkisstjórn hafa skilið eftir.

„Við síðustu stjórnarskipti stóð halli fjárlaganna í 805 milljörðum. Slíkur halli er skuld fyrir framtíðina að greiða,“ skrifar hann.

Til að undirstrika gagnrýni sína tekur Björn dæmi af smærri fyrirtækjum og segir að ef verslun eða pylsuvagn safnaði hlutfallslega sambærilegum skuldum á sjö árum yrðu eigendur þeirra gjaldþrota og jafnvel dæmdir til fangelsisvistar.

Hann segir núverandi ríkisstjórn þurfa að takast á við afleiðingar fjármálastjórnar fyrri ríkisstjórnar og líkir stöðunni við það sem gerðist í kjölfar efnahagshrunsins árið 2008.

„Ríkisstjórnin hamast við að moka flórinn eftir þessa sóða, en þeir standa á hliðarlínunni hrópandi ókvæðisorð,“ skrifar Björn.

Hann gagnrýnir jafnframt þá hugmynd að stjórnarandstaðan taki aftur við stjórnartaumunum og segir að þeir sem hafi skapað vandann séu nú meðal þeirra sem gagnrýni hvernig tekið sé á honum.

Í lok færslunnar vísar Björn til myndar sem fylgir henni og á að sýna Ísland með fjárlagagatinu. Hann beinir spurningu að þeim sem hann telur bera ábyrgð á hallanum og veltir fyrir sér hvort þeir ætli að greiða skuldirnar með skattalækkunum.

„Ætla þeir sem grófu holuna að borga þessa skuld með lækkun skatta í landi tækifæranna í útgerðinni?“ spyr Björn að lokum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Þrír ökumenn fluttir á sjúkrahús
Innlent

Þrír ökumenn fluttir á sjúkrahús

Vilhjálmur prins vill ekkert hafa með Harrý bróður sinn að gera
Heimur

Vilhjálmur prins vill ekkert hafa með Harrý bróður sinn að gera

Birgir Rafn valinn fram yfir 20 manns
Innlent

Birgir Rafn valinn fram yfir 20 manns

Judi Dench neyðist til að leggja leikferilinn á hilluna
Heimur

Judi Dench neyðist til að leggja leikferilinn á hilluna

Ragnar Þór boðar frekari breytingar á fæðingarorlofi
Pólitík

Ragnar Þór boðar frekari breytingar á fæðingarorlofi

Vinsælir barnabílstólar innkallaðir vegna öryggishættu
Innlent

Vinsælir barnabílstólar innkallaðir vegna öryggishættu

Fyrrum eiginmaður Katie Price sýknaður af nauðgunarákærum
Heimur

Fyrrum eiginmaður Katie Price sýknaður af nauðgunarákærum

Fimm hlutir sem konur taka strax eftir hjá karlmönnum
Fólk

Fimm hlutir sem konur taka strax eftir hjá karlmönnum

Tíu menn vernduðu Jason Alexander þegar skothvellur heyrðist í nágrenninu
Myndband
Heimur

Tíu menn vernduðu Jason Alexander þegar skothvellur heyrðist í nágrenninu

Fyrrverandi eiginkonan mætti á heimilið og hóf skothríð
Heimur

Fyrrverandi eiginkonan mætti á heimilið og hóf skothríð

Maður látinn eftir smit af veiru sem leggst á búfé
Heimur

Maður látinn eftir smit af veiru sem leggst á búfé

Bjarni Ben fær aukavinnu hjá ríkinu
Pólitík

Bjarni Ben fær aukavinnu hjá ríkinu

Ólafur Ragnar segir hagvöxt ekki segja alla söguna
Innlent

Ólafur Ragnar segir hagvöxt ekki segja alla söguna

Pólitík

Ragnar Þór boðar frekari breytingar á fæðingarorlofi
Pólitík

Ragnar Þór boðar frekari breytingar á fæðingarorlofi

„Það er að virka betur en lagt var upp með“
Sigurður Ingi lætur Kristrúnu heyra það og krefst aðgerða
Pólitík

Sigurður Ingi lætur Kristrúnu heyra það og krefst aðgerða

Bjarni Ben fær aukavinnu hjá ríkinu
Pólitík

Bjarni Ben fær aukavinnu hjá ríkinu

Ráðuneytið herðir þrýstinginn á Apple
Pólitík

Ráðuneytið herðir þrýstinginn á Apple

Ummæli Elliða um meinta skaðsemi múslima tekin fyrir á Alþingi
Pólitík

Ummæli Elliða um meinta skaðsemi múslima tekin fyrir á Alþingi

Nanna segir Viðreisn leika aðalhlutverkið í froðu og frösum
Pólitík

Nanna segir Viðreisn leika aðalhlutverkið í froðu og frösum

Loka auglýsingu