1
Peningar

Japis enn og aftur gjaldþrota

2
Innlent

Mollý nú löglegt á Íslandi

3
Minning

Margrét Jónsdóttir er fallin frá

4
Pólitík

„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“

5
Heimur

Paola Márquez látin aðeins 30 ára gömul

6
Innlent

Fundu rúma milljón í reiðufé í bíl

7
Heimur

Ferðamaður lést á Kanarí

8
Heimur

Matt Brown látinn aðeins 43 ára gamall

9
Fólk

Draumaeinbýli í miðbænum til sölu

10
Innlent

Innkalla hættulegar bílstólafestingar

Til baka

Nafnlaus gagnrýni á bæjarstjórn birtist á götum Fjarðabyggðar

„Þessi fjögur ár hafa einkennst af skítkasti og persónulegum orðaskiptum af hálfu oddvita Sjálfstæðisflokksins“

Mótmælabréf
MótmælabréfiðBréfið var meðal annars hengt á útsýnisskilti á Hólmahálsinum
Mynd: Aðsend

Ónafngreindir aðilar hengdu í nótt upp fjölda bréfa víðs vegar um Fjarðabyggð þar sem lýst er yfir mikilli óánægju með núverandi meirihluta í sveitarfélaginu. Í morgun höfðu sum þeirra þegar verið fjarlægð.

Í textanum, sem dreift var á prentuðum miðum, er gagnrýni beint að störfum bæjarstjórnar á yfirstandandi kjörtímabili. Þar er því haldið fram að óánægja íbúa hafi sjaldan verið meiri og að andrúmsloft í sveitarfélaginu sé þungt.

Einnig er gagnrýnt að umræðan í sveitarstjórnarmálum hafi einkennst af persónulegum deilum og neikvæðni frekar en uppbyggilegu samstarfi. Í bréfunum er sérstaklega vísað til vinnubragða Sjálfstæðisflokksins og því haldið fram að flokkurinn hafi lagt ofuráherslu á gagnrýni á aðra fremur en að byggja upp eigið traust.

Þá kemur fram að íbúar upplifi þjónustu sveitarfélagsins hafa versnað og að gjöld hafi hækkað, auk þess sem samskipti við bæjaryfirvöld séu ófullnægjandi. Fullyrt er að mikilvægar ákvarðanir hafi verið teknar án nægilegs samráðs við íbúa.

Í lok textans er skorað á breytingar í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga 2026 og kemur fram skýr andstaða við núverandi meirihluta.

Ekki liggur fyrir hver eða hverjir standa að dreifingu skilaboðanna, en ljóst er að málið hefur vakið athygli meðal íbúa í morgunsárið.

Mótmælabréfið

Mótmælabréfið

Bæjarstjórnarkosningar 2026

Í manna minnum hefur óánægja íbúa Fjarðabyggðar sjaldan mælst jafn mikil og með þann meirihluta sem nú skipar bæjarráð í fjarðabyggð, líkt og raunin hefur verið undanfarin fjögur ár, eða frá síðustu sveitarstjórnarkosningum. Andrúmsloftið er þungt og óánægjan er áþreifanleg. Þetta má meðal annars sjá á ótal færslum íbúa, bæði á samfélagsmiðlum (Facebook) og í samtölum sín á milli síðustu fjögur árin.

Frá upphafi þessa kjörtímabils hafa þessi fjögur ár einkennst af skítkasti og persónulegum orðaskiptum af hálfu oddvita Sjálfstæðisflokksins, þar sem umræðan hefur sjaldan verið málefnaleg gagnvart einstaklingum í öðrum flokkum. Í stað þess að vinna saman og leita lausna á uppbyggilegan hátt hefur frekar verið lögð áhersla á að gagnrýna aðra flokksmenn opinberlega og fara í persónulegt niðurrif, bæði á samfélagsmiðlum og í samskiptum sýnum við almenning, til dæmis á kaffistofum vinnustaða. Slík vinnubrögð eru hvorki fagleg né traustvekjandi — heldur beinlínis skaðleg fyrir traust og samstarf innan sveitarfélagsins.

Nú eru bæjarstjórnarkosningar fram undan og allir flokkar hafa sýnt fagleg vinnubrögð, pósta skemmtilegum vídeóum á samfélagsmiðla af raunhæfum markmiðum og allri þeirri vinnu sem er í gangi. Það sem sker sig þó úr eru vinnubrögð Sjálfstæðisflokksins. Þar virðist sú nálgun ríkjandi að afla sér fylgis með neikvæðri umræðu og sífelldri gagnrýni á aðra flokka og einstaklinga, í stað þess að byggja upp eigið traust með verkum. Við íbúar þessa sveitarfélags erum orðin ansi þreytt á þessu endalausa skítkasti og væli. Við viljum sjá samvinnu og virðingu fyrir öðru fólki og flokkum — ekki þessa stöðugu sundrungu — og að allri þessari orku og tíma sé varið í eitthvað jákvætt og uppbyggilegt fyrir Fjarðabyggð.

Jafnframt hefur verið lögð áhersla á að draga fram það fáa sem vel hefur gengið í Fjarðabyggð á síðustu fjórum árum og gortað sig af því á samfélagsmiðlum, líkt og það sé eingöngu þeirra flokki að þakka. Í ljósi þess má rifja upp orðatiltæki á borð við „oft glymur hæst í tómri tunnu“ eða að „skreyta sig með stolnum fjöðrum“. Íbúar vita hins vegar betur og gleyma ekki svo auðveldlega hvernig síðustu fjögur ár hafa í raun verið.

Þjónustan í sveitafélaginu er nú verri en nokkru sinni fyrr og gjöld hafa hækkað upp úr öllu valdi. Erindum bæjarbúa er ekki svarað, og þegar svör berast eru þau oft mjög loðin, óskýr og talað í hringi. Mikilvægar ákvarðanir hafa verið teknar án nægilegs samráðs við íbúa og án þess að hagsmunir þeirra hafi verið hafðir að leiðarljósi.

Það er ekki nóg að vera með fullt af flottum orðum í ræðum sínum og riti sem gervigreindin hefur sennilega skrifað og klæðast jakkafötum ef maður er með allt niðrum sig og illa skeindur bak við dulargervið. Kjörnir fulltrúar starfa í umboði íbúanna, og núverandi staða er ekki ásættanleg. X-D nei takk 

Íbúar kalla eftir breytingum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu auglýst laust til umsóknar
Innlent

Embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu auglýst laust til umsóknar

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu fer með stjórn lögregluliðs í stærsta lögregluumdæminu
„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“
Pólitík

„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“

Fundu rúma milljón í reiðufé í bíl
Innlent

Fundu rúma milljón í reiðufé í bíl

Mollý nú löglegt á Íslandi
Innlent

Mollý nú löglegt á Íslandi

Ofbeldisfullur lögreglumaður rekinn eftir rannsókn
Myndband
Heimur

Ofbeldisfullur lögreglumaður rekinn eftir rannsókn

Paola Márquez látin aðeins 30 ára gömul
Heimur

Paola Márquez látin aðeins 30 ára gömul

Hundar halda áfram að bíta fólk í Reykjavík
Innlent

Hundar halda áfram að bíta fólk í Reykjavík

Bjarndýr réðst á fólk inn í verksmiðju
Heimur

Bjarndýr réðst á fólk inn í verksmiðju

Innkalla hættulegar bílstólafestingar
Innlent

Innkalla hættulegar bílstólafestingar

Útlendingar mættu ekki fyrir dóm
Innlent

Útlendingar mættu ekki fyrir dóm

Draumaeinbýli í miðbænum til sölu
Myndir
Fólk

Draumaeinbýli í miðbænum til sölu

Landið

Ekið á gangandi vegfaranda
Landið

Ekið á gangandi vegfaranda

Lögreglan leitar að vitnum
Séra Arnaldur blessar Árborg
Landið

Séra Arnaldur blessar Árborg

Dimma fannst á lífi í Rauðavatnsskógi
Landið

Dimma fannst á lífi í Rauðavatnsskógi

Dimma týnd á ný eftir átök við annan hrafn
Landið

Dimma týnd á ný eftir átök við annan hrafn

Æfir fyrir sögulegt sund niður Lagarfljótið
Landið

Æfir fyrir sögulegt sund niður Lagarfljótið

Jim Ratcliff flaug þyrlu á rjúpnaskotsvæði sitt í stað þess að keyra
Landið

Jim Ratcliff flaug þyrlu á rjúpnaskotsvæði sitt í stað þess að keyra

Loka auglýsingu