1
Pólitík

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

2
Fólk

Sjaldgæft raðhús til sölu í einni fjölmennustu götu landsins

3
Heimur

Læknir fannst látinn á heimili þar sem börn gistu

4
Innlent

Ók eins og brjálæðingur í Hvalfjarðarsveit

5
Heimur

Taugaveiklaður Tenerife-flugfarþegi handtekinn

6
Innlent

Skagamaður tekinn ölvaður við akstur og með tugi lítra af ólöglegu áfengi

7
Heimur

Bíllinn í klessu en ástin í fullu fjöri

8
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

9
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

10
Heimur

Flugáhöfn þurfti að stöðva kynferðislega iðju í háloftunum

Til baka

Neitar sök í meintri hópárás á Bíladögum

„Ég er ekki manneskja sem sækist eftir slagsmálum, átökum eða vandræðum“

Leiftur
Leiftur McQueen-bílinn hans AhmedSvo sannarlega glæsilegur.
Mynd: Ahmed Khalidsson/Facebook

Eigandi svokallaðs McQueen Camaro-bíls hefur stigið fram og vísað á bug ásökunum um aðild að líkamsárás sem átti sér stað á Akureyri fyrr í júní í tengslum við Bíladaga.

Litlar opinberar upplýsingar liggja fyrir um meinta árás en að sögn óstaðfestra frásagna á Facebook réðst hópur á mönnum á 17 ára dreng af fyrra bragði. Aðrir segja að drengurinn hafi, ásamt vinahópi sínum, gengið í strokk á öðrum manni og aðrir komið þeim manni til hjálpar.

Í færslu sem hann birti á Facebook segist Ahmed Khalidsson hafa orðið fyrir miklu hatri og ásökunum á samfélagsmiðlum undanfarna daga vegna þess að bíll hans hafi sést á svæðinu þegar atvikið átti sér stað.

Ahmed segir að hann hafi eingöngu mætt á Bíladaga til að taka þátt í bílasýningu og njóta viðburðarins ásamt öðrum bílaáhugamönnum. Hann hafi lagt mikla vinnu í að undirbúa bíl sinn fyrir hátíðina og hafnar því alfarið að hafa komið að slagsmálum eða öðru óláta.

Samkvæmt frásögn hans var hann inni á veitingastað og að borða þegar umrætt atvik átti sér stað. Þótt bíll hans hafi verið lagður fyrir utan segir hann það ekki vera sönnun þess að hann hafi átt nokkra aðild að málinu.

„Ég er ekki manneskja sem sækist eftir slagsmálum, átökum eða vandræðum,“ skrifar Ahmed og segist miður sín yfir því að fólk dragi ályktanir og dreifi ásökunum án þess að fyrir liggi staðreyndir eða sannanir.

Hann vísar einnig á bug ummælum sem hafi birst á samfélagsmiðlum þess efnis að hann hafi sérmerkt bíl sinn til að vekja athygli ungs fólks. Slíkar fullyrðingar eigi sér enga stoð í raunveruleikanum og séu dæmi um ósanngjarna umfjöllun og fordóma.

Ahmed segist einungis vilja koma sannleikanum á framfæri og hreinsa nafn sitt. Hann skorar jafnframt á þá sem haldi öðru fram að leggja fram raunverulegar sannanir fyrir fullyrðingum sínum.

Að lokum hvetur hann fólk til að sýna ábyrgð í umræðu á samfélagsmiðlum og forðast að dreifa ósönnum sögusögnum.

„Orð geta haft miklar afleiðingar, sérstaklega þegar þau byggja ekki á staðreyndum,“ segir hann í færslunni.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Alex Ferguson var einum degi frá því að taka við Arsenal
Sport

Alex Ferguson var einum degi frá því að taka við Arsenal

„Frábært félag, það þarf bara að hrista aðeins upp í hlutunum.“
Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október
Fólk

Sex hlutir sem þú ættir að þvo í október

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael
Pólitík

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

María Rut segir stjórnarandstöðuna heltekna af Evrópu
Pólitík

María Rut segir stjórnarandstöðuna heltekna af Evrópu

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö
Heimur

Kona lést eftir hnífsárás fyrir utan matvöruverslun í Malmö

Sverrir Bergmann vill stoppa leyfislausa tónlist í pólitískum áróðri
Pólitík

Sverrir Bergmann vill stoppa leyfislausa tónlist í pólitískum áróðri

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens
Heimur

Rússi dæmdur í sex ára fangelsi eftir að hafa synt til Litháens

Dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir árás á sambýliskonu sína
Innlent

Dæmdur í skilorðsbundið fangelsi fyrir árás á sambýliskonu sína

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni
Myndir
Fólk

Linda Ben fagnaði tímamótum í sólinni með fjölskyldunni

Grein sálfræðings um að læra að opna sig
Skoðun

Dávur í Dali

Grein sálfræðings um að læra að opna sig

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall
Heimur

Rússar hafna farsóttarhættu eftir dularfullt dauðsfall

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl
Heimur

Flugfarþegi tók málin í eigin hendur og stal dráttarbíl

Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum
Heimur

Konan úr kynlífsmyndbandi Kevin Hart gæti borið vitni gegn honum

Landið

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil
Landið

Björgunarbúnaður og bætt öryggi til skoðunar við Stuðlagil

Ferðamálastofa fundaði um öryggi Stuðlagils
Stefndu sér í lífshættu í Reynisfjöru
Myndband
Landið

Stefndu sér í lífshættu í Reynisfjöru

Forbes vekur athygli á nýju ferðamannagjaldi á Íslandi
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferðamannagjaldi á Íslandi

Furðuverur fæðast í fjárhúsinu
Landið

Furðuverur fæðast í fjárhúsinu

Yngsti rafvirki Íslandssögunnar útskrifaður á Akureyri
Landið

Yngsti rafvirki Íslandssögunnar útskrifaður á Akureyri

Íslenskur fjallaskáli meðal þeirra bestu í Evrópu
Landið

Íslenskur fjallaskáli meðal þeirra bestu í Evrópu

Loka auglýsingu