1
Innlent

Mæðgur settar í lífshættu á Langholtsvegi

2
Fólk

Kvartmilljarður fyrir þessa útsýnisperlu

3
Innlent

Sky Lagoon langdýrasta baðlónið

4
Innlent

Segir minnimáttarkennda karla tala niður til Valkyrjanna

5
Fólk

Linda Ben í trylltu stelpufjöri í Köben

6
Innlent

Kærasti grunaður um manndrápstilraun

7
Fólk

Landsliðshetja að verða faðir

8
Heimur

Kona lést eftir átta klukkustunda fegrunaraðgerð

9
Heimur

Sögðust vera með byssu og réðust gegn áhöfninni

10
Innlent

Lögreglan slökkti ljósin í samkvæminu

Til baka

Neyðarsímtöl komust ekki til skila eftir alvarlegt slys

„Óásættanlegt að búa við falskt öryggi“

Neyðarlínan
Elva S. BjörnsdóttirNeyðarlínan rannsakar sambandsleysi
Mynd: Neyðarlínan 112

Alvarlegt vinnuslys sem átti sér stað í Fljótsdal á þriðjudag hefur vakið hörð viðbrögð og miklar áhyggjur af fjarskiptaöryggi á landsbyggðinni. Slasaður bóndi segir það óásættanlegt að búa við falskt öryggi þegar neyðarnúmerið 112 bregst þegar mest á reynir. Málið tengist beint lokun eldri fjarskiptakerfa, en Ísland er fyrst Evrópulanda til að slökkva alfarið á 2G og 3G.

Fola slengt ofan á bónda

Slysið varð í Brekkugerði í Fljótsdal þegar verið var að vana fola. Eftir að geldingu lauk og hesturinn var að standa upp á ný reyndist hann reikull á fótum og fór að detta. Jóhann Frímann Þórhallsson, bóndi á bænum, reyndi að styðja við dýrið til að koma í veg fyrir fallið. Við það féll folinn ofan á Jóhann með þeim afleiðingum að hann tvíbrotnaði á vinstri fæti og marðist illa á ökkla og mjöðm. Eins og greint er frá í frétt RÚV liggur Jóhann nú inni á Sjúkrahúsinu á Akureyri en telur sig þó hafa sloppið tiltölulega vel þar sem höggið hefði getað lent á höfði eða baki.

Sambandsleysi hamlaði neyðarkalli

Dóttir Jóhanns og mágkona voru á vettvangi og reyndu þegar í stað að kalla eftir aðstoð. Erfiðleikar komu strax upp þegar dóttir hans reyndi í tvígang að hringja í Neyðarlínuna en fékk ekkert samband. Mágkona hans náði á endanum í gegn úr sínum síma og tókst að gera viðvart.

Í umfjöllun Austurfréttar kemur fram að sjúkrabíll hafi flutt Jóhann til Egilsstaða þaðan sem hann var fluttur með sjúkraflugi til Akureyrar. Á leiðinni kom í ljós að sjúkraflutningamenn náðu heldur ekki sambandi við mágkonuna vegna algjörs daufkerfis á svæðinu.

Jón Svanberg Hjartarson, framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar, staðfesti í samtali við RÚV að tæknilegar prófanir hafi farið af stað með fólkinu sem reyndi að tilkynna slysið. Rannsóknin bendir fremur til þess að um slæmt samband hafi verið að ræða (þar sem símtalið tengdist en hvorugur heyrði í öðrum) frekar en að símtölin hafi hreinlega mistekist, þótt fyrsta neyðarsímtalið hafi ekki skilað sér inn í símkerfið.

Gagnrýna lokun eldri kerfa í dreifbýli

Íbúar í Fljótsdal hafa fundið fyrir verulegri versnun á farsímasambandi eftir að fjarskiptafyrirtækin lokuðu 2G og 3G sendum sínum á síðasta ári. Brekkugerði er staðsett norðvestan Lagarfljóts, beint á móti Atlavík, sem er eitt vinsælasta útivistarsvæði og tjaldsvæði landsins þar sem mikill fjöldi fólks dvelur á sumrin.

Halla Auðunardóttir, oddviti Fljótsdalshrepps, staðfestir í samtali við Austurfrétt að íbúar hafi ítrekað kvartað undan versnandi sambandi og að mikið álag skapist á kerfið þegar margir ferðamenn sækja svæðið. Jóhann Frímann gagnrýnir stjórnvöld og fjarskiptafélög harðlega fyrir að afnema gamla kerfið áður en búið var að tryggja öryggi og fullnægjandi drægni nýrri kerfa í dreifbýli.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Landsliðshetja að verða faðir
Fólk

Landsliðshetja að verða faðir

Linda Ben í trylltu stelpufjöri í Köben
Myndir
Fólk

Linda Ben í trylltu stelpufjöri í Köben

Fjöldahandtökur í aðgerðum gegn hinsegin fólki í Tyrklandi
Heimur

Fjöldahandtökur í aðgerðum gegn hinsegin fólki í Tyrklandi

Sky Lagoon langdýrasta baðlónið
Innlent

Sky Lagoon langdýrasta baðlónið

Segir minnimáttarkennda karla tala niður til Valkyrjanna
Innlent

Segir minnimáttarkennda karla tala niður til Valkyrjanna

Sögðust vera með byssu og réðust gegn áhöfninni
Heimur

Sögðust vera með byssu og réðust gegn áhöfninni

Kona lést eftir átta klukkustunda fegrunaraðgerð
Heimur

Kona lést eftir átta klukkustunda fegrunaraðgerð

Dráp Rússa magnast þegar veturinn nálgast
Heimur

Dráp Rússa magnast þegar veturinn nálgast

Sextán létust í skelfilegum eldsvoða á hjúkrunarheimili
Heimur

Sextán létust í skelfilegum eldsvoða á hjúkrunarheimili

Kvartmilljarður fyrir þessa útsýnisperlu
Myndir
Fólk

Kvartmilljarður fyrir þessa útsýnisperlu

Lögreglan slökkti ljósin í samkvæminu
Innlent

Lögreglan slökkti ljósin í samkvæminu

Kærasti grunaður um manndrápstilraun
Innlent

Kærasti grunaður um manndrápstilraun

Landið

186 athugasemdir en laxinn syndir samt áfram
Landið

186 athugasemdir en laxinn syndir samt áfram

Leyfin heimila allt að 10.000 tonna eldi
Hvetja fólk til að sýna aðgát í Vestmanneyjum
Landið

Hvetja fólk til að sýna aðgát í Vestmanneyjum

Innanlandsflug tekur breytingum
Landið

Innanlandsflug tekur breytingum

Stórglæsilegar myndir af borgarísjaka við Íslandsstrendur vekja athygli
Myndir
Landið

Stórglæsilegar myndir af borgarísjaka við Íslandsstrendur vekja athygli

Bannað að veiða rjúpu á miðvikudögum
Landið

Bannað að veiða rjúpu á miðvikudögum

Loka auglýsingu