1
Fólk

Glúmur segir RÚV hafa gleymt stærstu stjörnu íslenska sjónvarpsins

2
Innlent

Unglingur bundinn og skilinn eftir í kjallara í Laugardal

3
Innlent

Konan er fundin

4
Innlent

Fimm útlendingar gripnir með milljónir í reiðufé á Keflavíkurflugvelli

5
Innlent

Magnús tekinn fram yfir fyrrverandi þingmann

6
Heimur

Móðir ákærð fyrir hrottalega árás á börn sín

7
Innlent

Matthías Már ætlar að sigrast á krabbameininu

8
Innlent

Sálfræðingur skorar á ráðherra

9
Innlent

Bylting við flugstöðina

10
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

Til baka

Ólafur Ragnar sakar já-hliðina um „leikhúsfarsa“

Forsetinn fyrrverandi með hörku skot

Ólafur Ragnar Grímsson
Ólafur Ragnar GrímssonEr fyrrverandi forseti Íslands
Mynd: Brynhildur Jensdóttir

Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, gagnrýnir harðlega kosningaherferð þeirra sem hvetja landsmenn til að greiða atkvæði með í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Beinir hann meðal annars spjótum sínum að leikaranum Pálma Gestssyni og segir herferðina vera orðna að „leikhúsfarsa“.

Ummæli Ólafs Ragnars komu í kjölfar færslu Sverris Helgasonar, stuðningsmanns Miðflokksins, á samfélagsmiðlinum X. Sverrir birti þar auglýsingu frá já-hliðinni og sagði:

„Ég er ansi hrifinn af þessari nýju kosningaherferð já-manna þar sem þeir fá alla helstu leikara landsins til þess að gera grín af því hversu heimskir allir sem kjósa nei eru.“

Ólafur Ragnar tók undir gagnrýnina og sagði þjóðaratkvæðagreiðslur vera æðsta form lýðræðis, þar sem vilji þjóðarinnar kæmi fram í gegnum heiðarlega umræðu og rökræður.

„Nú er já-hliðin að breyta þessu í leikhúsfarsa með því að ráða leikara til að flytja málstað sinn,“ skrifaði Ólafur Ragnar.

Hann lét þar ekki staðar numið heldur sagði uppgjöf geta birst í ýmsum myndum. Já-hliðin hefði nú gefist upp á því að láta ráðherra og þingmenn flytja málstað sinn og þess í stað fengið leikara úr gamanþættinum Spaugstofunni til verksins.

Þar vísaði Ólafur Ragnar til Pálma Gestssonar, sem um árabil var einn af lykilmönnum Spaugstofunnar, og leikur í auglýsingunni. Sagði fyrrverandi forsetinn leikarann fenginn til að „endurtaka klisjur“ já-hliðarinnar.

Ummæli Ólafs Ragnars hafa vakið athygli á samfélagsmiðlum en hann hefur sjálfur tekið virkan þátt í umræðunni um þjóðaratkvæðagreiðsluna.

Pálmi svarar Ólafi á Facebook og segir einfaldlega: „Miklir menn erum við Hrólfur minn…. og búnir að gleyma íslenskunni…“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Netanyahu kærir ísraelska fjölmiðla
Heimur

Netanyahu kærir ísraelska fjölmiðla

Fjölmiðlarnir uppljóstruðu um vitneskju forsætisráðherrans um yfirvofandi hryðjuverkaárás Hamas-liða 7. október 2023.
Hættir sem forstjóri Landsvirkjunar
Innlent

Hættir sem forstjóri Landsvirkjunar

Mágur Toni Braxton lést í nótt
Heimur

Mágur Toni Braxton lést í nótt

Ristaðar og saltaðar pistasíur innkallaðar
Innlent

Ristaðar og saltaðar pistasíur innkallaðar

Tveir létust þegar sjúkraþyrla steyptist í sjóinn við Los Angeles
Heimur

Tveir létust þegar sjúkraþyrla steyptist í sjóinn við Los Angeles

Kennari dæmdur í fangelsi fyrir kaup og sölu á barnaníðsefni
Heimur

Kennari dæmdur í fangelsi fyrir kaup og sölu á barnaníðsefni

Laxveiðiferðin í Þverá endaði fyrir dómi
Innlent

Laxveiðiferðin í Þverá endaði fyrir dómi

Furðuverur fæðast í fjárhúsinu
Landið

Furðuverur fæðast í fjárhúsinu

Tæplega sjötugur brimbrettakappi stórslasaðist á Fuerteventura
Heimur

Tæplega sjötugur brimbrettakappi stórslasaðist á Fuerteventura

Lettland tilbúið að hýsa kjarnorkuvopn
Heimur

Lettland tilbúið að hýsa kjarnorkuvopn

Fjórir í haldi vegna fimm kílóa amfetamínsendingar
Innlent

Fjórir í haldi vegna fimm kílóa amfetamínsendingar

Sálfræðingur skorar á ráðherra
Innlent

Sálfræðingur skorar á ráðherra

Matthías Már ætlar að sigrast á krabbameininu
Innlent

Matthías Már ætlar að sigrast á krabbameininu

Pólitík

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu
Pólitík

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu

„Þetta eru þeir sem vilja bara skattleggja almúgann - ekki auðmenn“
Segir orð Þorgerðar Katrínar innantóm
Pólitík

Segir orð Þorgerðar Katrínar innantóm

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“
Pólitík

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning
Pólitík

Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning

Sósíalistar hafna öllum skerðingum á verkfallsrétti
Pólitík

Sósíalistar hafna öllum skerðingum á verkfallsrétti

Loka auglýsingu