1
Innlent

Auður stal milljónum frá stéttarfélagi

2
Fólk

Einstaklega lítið einbýli á óvenju stórri lóð til sölu

3
Menning

Stór orð Siggu Beinteins

4
Innlent

Vildi ógilda þjóðaratkvæðagreiðsluna en fékk nei

5
Innlent

Lögreglustjóri og ríkissaksóknari teknir á beinið

6
Sport

Nýfædd dóttir Alberts varð vendipunkturinn í deilunum við Arnar

7
Heimur

Nýr maður ákærður í Lørenskog-málinu

8
Innlent

Ætlaði að slá í gegn í íslenska áfengisbransanum en lögreglan handtók hann

9
Innlent

Óánægður fíkniefnakaupandi mætti á lögreglustöð og óskaði eftir efnagreiningu

10
Innlent

Offita verði meðhöndluð sem langvinnur sjúkdómur

Til baka

Ranglega merkt við „lokið“ á verkefnalista meirihlutans

Verkefnunum meirihlutans er skipt í átta málaflokka

Hildur Björnsdóttir
Hildur BjörnsdóttirEr borgarstjóri Reykjavíkur
Mynd: Víkingur

Þegar nýr meirihluti Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins tók við stjórn í Reykjavík var vefsíðan verkefnalisti.is opnuð. Þar get borgarbúar fylgst með framvindu þeirra verkefna sem sett hafa verið fram í meirihlutasáttmála flokkanna.

Á vefsíðunni eru stefnumál meirihlutans útfærð og tímasett með það að markmiði að auka gagnsæi í stjórnsýslu borgarinnar og gera íbúum kleift að fylgjast með hvernig framkvæmd loforða og verkefna miðar áfram.

Verkefnunum er skipt í átta málaflokka: æskuárin, samgöngur, húsnæði, atvinnulíf og menningu, hreyfingu og útivist, efri árin, velferð og rekstur og umhirðu.

Meðal verkefna sem birt eru á listanum eru áform um að semja við einkaaðila um uppbyggingu hagkvæms húsnæðis fyrir leikskóla og dagheimili, endurskoðun deiliskipulags við Suðurlandsbraut og afnám reglna um hámarksfjölda bílastæða við nýbyggingar. Þá er einnig stefnt að lækkun fasteignaskatta á atvinnuhúsnæði, auknu aðgengi almennings að íþrótta- og skólahúsnæði borgarinnar og sérstöku átaki til að efla tæknifærni eldra fólks.

Öll verkefni á listanum eru merkt með skýrum tímaramma. Sum þeirra eiga að ná fram að ganga innan fyrstu 100 daga kjörtímabilsins, önnur innan 12 mánaða og enn önnur á fjögurra ára tímabili.

Öldungar og íslenski fáninn

Athygli vekur að nú þegar er búið að merkja „Lokið“ við tvö verkefni. Annars vegar við „Við ætlum að endurvekja öldungaráð borgarinnar og efla samstarf við hagsmunasamtök eldra fólks“ og hins vegar við „Við ætlum að draga íslenska fánann að húni daglega við Ráðhús Reykjavíkur.“

Nýr meirihluti er vissulega búinn að endurvekja öldungaráð borgarinnar og eru það Albert Guðmundsson og Björn Gíslason frá Sjálfstæðisflokknum og Steinunn Gyðju- og Guðjónsdóttir frá Samfylkingunni sem sitja í því ráði.

Eðli málsins samkvæmt hefur meirihlutinn þó ekki staðið við loforðið um fánamálið enda er kjörtímabilið nýhafið og ómögulegt að segja hvort íslenski fáninn verði dreginn að húni alla daga og getur margt spilað inn í, eins og t.d. veður og frí starfsmanna. Er því ranglega merkt að því máli sé lokið.

Mannlíf sendi fyrirspurn á alla oddvita meirihlutans um málið en fékk ekki nein svör.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Óánægður fíkniefnakaupandi mætti á lögreglustöð og óskaði eftir efnagreiningu
Innlent

Óánægður fíkniefnakaupandi mætti á lögreglustöð og óskaði eftir efnagreiningu

Trump við Tucker Carlson: „Við deyjum öll hvort sem er“
Myndband
Heimur

Trump við Tucker Carlson: „Við deyjum öll hvort sem er“

Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur karlmönnum
Innlent

Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur karlmönnum

Nýr maður ákærður í Lørenskog-málinu
Heimur

Nýr maður ákærður í Lørenskog-málinu

Ísraelsku heimildarmyndinni NAZA dreift ókeypis á netinu
Heimur

Ísraelsku heimildarmyndinni NAZA dreift ókeypis á netinu

Sagði Jay-Z hafa nauðgað sér en þau höfðu aldrei hist
Heimur

Sagði Jay-Z hafa nauðgað sér en þau höfðu aldrei hist

Hægri öfgamaður neitar að hafa eyðilagt bát
Heimur

Hægri öfgamaður neitar að hafa eyðilagt bát

Offita verði meðhöndluð sem langvinnur sjúkdómur
Innlent

Offita verði meðhöndluð sem langvinnur sjúkdómur

Lögreglustjóri og ríkissaksóknari teknir á beinið
Innlent

Lögreglustjóri og ríkissaksóknari teknir á beinið

Síðustu ferðir Noah litla raktar
Heimur

Síðustu ferðir Noah litla raktar

Myndband frá hafnaboltaleik vekur hörð viðbrögð á samfélagsmiðlum
Myndband
Heimur

Myndband frá hafnaboltaleik vekur hörð viðbrögð á samfélagsmiðlum

Kettlingur gerður að lukkudýri verktakafyrirtækis eftir björgun
Heimur

Kettlingur gerður að lukkudýri verktakafyrirtækis eftir björgun

Vildi ógilda þjóðaratkvæðagreiðsluna en fékk nei
Innlent

Vildi ógilda þjóðaratkvæðagreiðsluna en fékk nei

Pólitík

Eyjólfur sendir Morgunblaðinu tóninn
Pólitík

Eyjólfur sendir Morgunblaðinu tóninn

„Staðreyndirnar tala sínu máli“
Sigmundur Davíð vill afnema erfðafjárskattinn
Pólitík

Sigmundur Davíð vill afnema erfðafjárskattinn

Sjálfstæðismaður fékk 19 milljónir fyrir verk sem klúðraðist
Pólitík

Sjálfstæðismaður fékk 19 milljónir fyrir verk sem klúðraðist

Össur segir Karl Gauta hafa skotið úr launsátri
Pólitík

Össur segir Karl Gauta hafa skotið úr launsátri

Tóku saman föggurnar og fluttu í miðbæinn
Pólitík

Tóku saman föggurnar og fluttu í miðbæinn

Loka auglýsingu