1
Fólk

Glúmur segir RÚV hafa gleymt stærstu stjörnu íslenska sjónvarpsins

2
Innlent

Unglingur bundinn og skilinn eftir í kjallara í Laugardal

3
Innlent

Fimm útlendingar gripnir með milljónir í reiðufé á Keflavíkurflugvelli

4
Innlent

Magnús tekinn fram yfir fyrrverandi þingmann

5
Innlent

Matthías Már ætlar að sigrast á krabbameininu

6
Innlent

Sálfræðingur skorar á ráðherra

7
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

8
Heimur

Áratugalöng leit endaði í faðmlagi systkina

9
Fólk

Gömul sál í nýjum búningi í Hafnarfirði til sölu

10
Innlent

Bruggaði ólöglega af krafti á Selfossi en lögreglan tæmdi lagerinn

Til baka

Rifjar upp óvenjulega undirritun Sigmundar Davíðs

„Þeir sögðu ekkert, þó þeir væru þráspurðir fram og til baka hvaða skoðun þeir hefðu á málunum,“

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi forsætisráðherraEr þingflokksformaður Miðflokksins
Mynd: Víkingur

Fyrrverandi þingmaður Pírata, Björn Leví Gunnarsson, segir misskilning og óskýra samskiptahætti skýra þá stöðu sem upp er komin eftir að Sigríður Andersen, þingflokksformaður Miðflokksins, sagðist ekki kannast við að samið hefði verið um lok umræðu á Alþingi um Evrópusambandsmál.

Í ítarlegri færslu fjallar Björn Leví um hvernig slíkur ágreiningur geti orðið til við þinglok og í samskiptum þingflokksformanna. Þar nefnir hann þrjár mögulegar skýringar á stöðunni.

Í fyrsta lagi segir hann að Sigríður Andersen hafi annaðhvort ekki rætt málið nægilega skýrt við eigin þingflokk eða ekki fengið upplýsingar um að samkomulag hefði legið fyrir.

Í öðru lagi segir hann að þingflokksformaður Miðflokksins hafi ekki gert athugasemdir á fundi þingflokksformanna og að forseti Alþingis hafi því túlkað þögnina sem samþykki allra aðila. Björn Leví segir slíkt þó hafa verið algengt hjá Miðflokknum á sínum tíma á Alþingi.

„Þeir sögðu ekkert, þó þeir væru þráspurðir fram og til baka hvaða skoðun þeir hefðu á málunum,“ skrifar hann og bætir við að það hafi verið mistök hjá forseta þingsins að líta á þögn sem samþykki.

Jafnframt gagnrýnir hann Miðflokkinn fyrir að svara ekki skýrt þegar óskað sé eftir afstöðu flokksins og segir það óheiðarlegt að láta hjá líða að hafna samkomulagi með skýrum hætti.

Þá segir Björn Leví að samkomulag hafi í raun legið fyrir við alla aðra flokka en Miðflokkinn og að aðrir þingmenn hafi einfaldlega hætt að eltast við afstöðu flokksins vegna þess hversu erfitt hafi reynst að fá skýr svör.

Hann rifjar einnig upp dæmi frá þinglokum þegar Píratar hafi farið fram á skriflegt samkomulag um þinglok vegna ágreinings um hvað hefði verið samþykkt. „Það tókst að lokum - nema hvað SDG skrifaði undir "samkvæmt samtali, SDG" - og komst þannig frá því að skrifa undir það sem stóð svart á hvítu á blaðinu.“

Að lokum bendir Björn Leví á að Sigríður Andersen sé sjálf þingflokksformaður og beri því sjálf ábyrgð á að vera upplýst um stöðu samninga og samkomulaga.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar
Pólitík

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar

Lögreglan rak nefið í mikið magn fíkniefna
Innlent

Lögreglan rak nefið í mikið magn fíkniefna

Netanyahu kærir ísraelska fjölmiðla
Heimur

Netanyahu kærir ísraelska fjölmiðla

Hættir sem forstjóri Landsvirkjunar
Innlent

Hættir sem forstjóri Landsvirkjunar

Mágur Toni Braxton lést í nótt
Heimur

Mágur Toni Braxton lést í nótt

Ristaðar og saltaðar pistasíur innkallaðar
Innlent

Ristaðar og saltaðar pistasíur innkallaðar

Tveir létust þegar sjúkraþyrla steyptist í sjóinn við Los Angeles
Heimur

Tveir létust þegar sjúkraþyrla steyptist í sjóinn við Los Angeles

Kennari dæmdur í fangelsi fyrir kaup og sölu á barnaníðsefni
Heimur

Kennari dæmdur í fangelsi fyrir kaup og sölu á barnaníðsefni

Laxveiðiferðin í Þverá endaði fyrir dómi
Innlent

Laxveiðiferðin í Þverá endaði fyrir dómi

Furðuverur fæðast í fjárhúsinu
Landið

Furðuverur fæðast í fjárhúsinu

Tæplega sjötugur brimbrettakappi stórslasaðist á Fuerteventura
Heimur

Tæplega sjötugur brimbrettakappi stórslasaðist á Fuerteventura

Lettland tilbúið að hýsa kjarnorkuvopn
Heimur

Lettland tilbúið að hýsa kjarnorkuvopn

Pólitík

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar
Pólitík

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar

„Við höfum á of mörgum sviðum verið með vægari reglur en nágrannaríki okkar“
Sósíalistar hafna öllum skerðingum á verkfallsrétti
Pólitík

Sósíalistar hafna öllum skerðingum á verkfallsrétti

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu
Pólitík

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“
Pólitík

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning
Pólitík

Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning

Loka auglýsingu