Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Rifust um launin og allt fór í háaloft

Við­ur­kenndi að hafa kallað hann meðal ann­ars apa, fávita og skít­hæl

Héraðsdómur Reykjaness sá um málið
Hér­aðs­dómur Reykja­ness sá um málið Mynd: Víkingur

Ónafn­greindur starfs­maður sem lenti í hörðum orða­skiptum við yfir­mann sinn og hót­aði honum ofbeldi á vinnu­stað missti rétt sinn til launa síð­asta mánuð upp­sagn­ar­frests. Þetta er nið­ur­staða Hér­aðs­dóms Reykja­ness, sem sýkn­aði fyr­ir­tækið sem mað­ur­inn starf­aði hjá af kröfu hans um greiðslu tæp­lega 700 þús­und króna.

Málið sner­ist um atvik sem áttu sér stað 31. júlí 2025. Starfs­mað­ur­inn hafði sagt starfi sínu lausu tveimur mán­uðum áður og var á þriggja mán­aða upp­sagn­ar­fresti. Hann hafði unnið í júní og júlí en mætti ekki aftur til vinnu eftir harka­legt rifr­ildi við fram­kvæmda­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins en fyr­ir­tækið er ekki nafn­greint í dóm­inum.

Tilefni deil­unnar var ágrein­ingur um skatta­frá­drátt af launum starfs­manns­ins. Aðilum bar ekki saman um nákvæm­lega hvað gerð­ist. Starfs­mað­ur­inn hélt því fram að fram­kvæmda­stjór­inn hefði reiðst, vísað honum af vinnu­staðnum og hótað að kalla til lög­reglu.

Fyr­ir­tækið lýsti atvikum með öðrum hætti. Þar var því haldið fram að starfs­mað­ur­inn hefði misst stjórn á skapi sínu, ausið sví­virð­ingum yfir fram­kvæmda­stjór­ann og hótað honum líf­láti og ofbeldi. Fyr­ir­tækið taldi hátt­sem­ina svo alvar­lega að heim­ilt hefði verið að rifta ráðn­ing­ar­sam­band­inu fyr­ir­vara­laust.

Starfs­mað­ur­inn leit­aði til VR í kjöl­farið og var vinnu­fram­lag hans boðið fram það sem eftir lifði upp­sagn­ar­frests­ins. Fyr­ir­tækið hafn­aði því og taldi ófor­svar­an­legt að mað­ur­inn sneri aftur á vinnu­stað­inn.

Fyrir dómi við­ur­kenndi starfs­mað­ur­inn að hafa öskrað á yfir­mann sinn og kallað hann meðal ann­ars apa, fávita og skít­hæl. Hann neit­aði hins vegar að hafa hótað honum. Fram­kvæmda­stjór­inn sagði mann­inn aftur á móti hafa hótað sér líf­láti og sagð­ist hafa ótt­ast að hann réð­ist á sig.

Dómurinn taldi sannað að starfs­mað­ur­inn hefði sagt að hann ætl­aði að rífa höf­uðið af yfir­manni sínum, eða að minnsta kosti ýjað að því. Einnig þótti sannað að hann hefði hreytt frek­ari ókvæð­is­orðum í yfir­mann­inn.

Að mati dóms­ins var hátt­semin veru­lega ámæl­is­verð og fól í sér svo gróft brot gegn trún­að­ar­skyldu starfs­manns­ins að fyr­ir­tæk­inu hefði verið heim­ilt að rifta ráðn­ing­ar­sam­band­inu fyr­ir­vara­laust og án frek­ari aðvör­unar.

Starfs­mað­ur­inn hafði kraf­ist 690.117 króna auk drátt­ar­vaxta vegna launa fyrir ágúst 2025. Fyr­ir­tækið var sýknað af kröf­unni og máls­kostn­aður lát­inn falla niður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum