1
Peningar

Japis enn og aftur gjaldþrota

2
Innlent

Mollý nú löglegt á Íslandi

3
Minning

Margrét Jónsdóttir er fallin frá

4
Pólitík

„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“

5
Heimur

Paola Márquez látin aðeins 30 ára gömul

6
Innlent

Fundu rúma milljón í reiðufé í bíl

7
Heimur

Ferðamaður lést á Kanarí

8
Heimur

Matt Brown látinn aðeins 43 ára gamall

9
Fólk

Draumaeinbýli í miðbænum til sölu

10
Innlent

Innkalla hættulegar bílstólafestingar

Til baka

„Ríkisstjórnin þarf ekki samþykki frá Morgunblaðinu“

Sveinn Andri sakar Morgunblaðið um áróður gegn ESB-viðræðum

Sveinn Andri Sveinsson
Sveinn Andri SveinssonSveinn Andri er ósáttur við Morgunblaðið
Mynd: Facebook

Stjörnulögmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson gagnrýnir harðlega umfjöllun Morgunblaðið um mögulegt áframhald aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið í nýrri Facebook-færslu.

Í færslunni sakar hann blaðamenn Morgunblaðsins um að reyna að gera viðræðuferli ríkisstjórnarinnar tortryggilegt.

„Hinir keyptu blaðamenn Morgunblaðsins rembast eins og rjúpan við staurinn að gera hið gagnsæja viðræðuferli ríkisstjórnarinnar við ESB tortryggilegt,“ skrifar Sveinn Andri.

Hann bendir á að fyrirhugað ferli vegna hugsanlegrar ESB-aðildar sé skýrt kveðið á um í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar og byggi á tveimur þjóðaratkvæðagreiðslum.

„Stjórnarsáttmáli ríkisstjórnarinnar kveður á um að íslenzka þjóðin fái að ákveða það með þjóðaratkvæðagreiðslu hvort haldið verði áfram að ræða um aðild að Evrópusambandinu eða ekki. Verði það samþykkt, þá mun reyna á hvort viðunandi aðildarsamningur næst eða ekki,“ skrifar hann.

Hann segir að ef ríkisstjórnin telji hugsanlegan samning ásættanlegan verði hann lagður fyrir þjóðina í annarri atkvæðagreiðslu.

„Telji ríkisstjórnin fyrir sitt leyti að aðildarsamningur sé ásættanlegur, þá verður sá samningur borinn undir þjóðina í atkvæðagreiðslu nr. 2. Gagnsærra og lýðræðislegra verður það ekki.“

Sveinn Andri segir jafnframt ekkert óeðlilegt við að ráðherrar ræði þessi mál við erlenda leiðtoga.

„Það er ekkert að því að forystukonur ríkisstjórnarinnar greini í samtölum við evrópska þjóðarleiðtoga að þetta séu plön ríkisstjórnarinnar; allt í samræmi við stjórnarsáttmála.“

Að lokum segir hann að íslensk stjórnvöld þurfi ekki samþykki annarra fyrir slíkum samskiptum.

„Ríkisstjórn Íslands þarf hvorki samþykki frá Valhöll né Morgunblaðinu fyrir samtölum sínum við erlenda ráðamenn.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu auglýst laust til umsóknar
Innlent

Embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu auglýst laust til umsóknar

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu fer með stjórn lögregluliðs í stærsta lögregluumdæminu
„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“
Pólitík

„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“

Fundu rúma milljón í reiðufé í bíl
Innlent

Fundu rúma milljón í reiðufé í bíl

Mollý nú löglegt á Íslandi
Innlent

Mollý nú löglegt á Íslandi

Ofbeldisfullur lögreglumaður rekinn eftir rannsókn
Myndband
Heimur

Ofbeldisfullur lögreglumaður rekinn eftir rannsókn

Paola Márquez látin aðeins 30 ára gömul
Heimur

Paola Márquez látin aðeins 30 ára gömul

Hundar halda áfram að bíta fólk í Reykjavík
Innlent

Hundar halda áfram að bíta fólk í Reykjavík

Bjarndýr réðst á fólk inn í verksmiðju
Heimur

Bjarndýr réðst á fólk inn í verksmiðju

Innkalla hættulegar bílstólafestingar
Innlent

Innkalla hættulegar bílstólafestingar

Útlendingar mættu ekki fyrir dóm
Innlent

Útlendingar mættu ekki fyrir dóm

Draumaeinbýli í miðbænum til sölu
Myndir
Fólk

Draumaeinbýli í miðbænum til sölu

Pólitík

„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“
Pólitík

„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“

Brynjar Níelsson opnar sig um eigin vinnumáta
„Ég tel að þessar breytingar verði til hagsbóta fyrir lögreglu“
Pólitík

„Ég tel að þessar breytingar verði til hagsbóta fyrir lögreglu“

Inga farin í veikindaleyfi
Pólitík

Inga farin í veikindaleyfi

Kamilla gagnrýnir niðurskurð á Þjóðarbókhlöðunni
Pólitík

Kamilla gagnrýnir niðurskurð á Þjóðarbókhlöðunni

Segir Morgunblaðið vera „málgagn hins neikvæða nöldurs”
Pólitík

Segir Morgunblaðið vera „málgagn hins neikvæða nöldurs”

Gylfi Ólafsson nýr bæjarstjóri Ísafjarðar
Pólitík

Gylfi Ólafsson nýr bæjarstjóri Ísafjarðar

Loka auglýsingu