1
Fólk

Krefjast þess að Jasmine verði rekin úr Love Island

2
Fólk

Daði Freyr og Árný bæta við sig gagnamagni

3
Heimur

Mótorhjólamaður lést í umferðaslysi á Tenerife

4
Fólk

Edda Falak selur gullfallega íbúð

5
Heimur

Áhrifavaldur með Alzheimer er látinn, 49 ára

6
Innlent

Matvælastofnun varar við tveimur vörum

7
Pólitík

Brynjar Níelsson vill styrkja samband Íslands við Bandaríkin

8
Heimur

Vilhjálmur sagður „öskureiður“

9
Innlent

Ugla Stefanía óttast hatursglæpi á Íslandi eftir voðaverkið í Berlín

10
Heimur

Borgarstjóri Berlínar er orðlaus

Til baka

Segir Einar Þorsteins hafa ráðist að sér með ógeðfelldum hætti

Þingmaðurinn vandar Samtökunum '78 ekki kveðjurnar

Snorri Másson
Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins
Mynd: Víkingur

Snorri Másson, varaformaður Miðflokksins, segir að umræðan sem skapaðist í vetur í kjölfar ummæla hans um regnbogafánann og flöggun hinseginfána í skólum hafi byggst á rangfærslum og ósanngjarnri túlkun. Þetta kom fram í viðtali hans í þættinum Spjallið með Frosta Logasyni á Brotkasti.

Snorri hafnaði því að hann eða Miðflokkurinn væru andvíg réttindum samkynhneigðra og sagði að hvorki innan flokksins né í eigin málflutningi hefði verið stuðningur við að skerða jafnan rétt fólks vegna kynhneigðar. Að hans mati hafi andstæðingar hans vísvitandi snúið út úr orðum hans og látið líta svo út að hann væri að ráðast gegn réttindum hinsegin fólks.

Í viðtalinu gagnrýndi hann jafnframt Einar Þorsteinsson, oddvita Framsóknarflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur, harðlega vegna ummæla sem Einar lét falla í kjölfar Kastljóssviðtals Snorra síðasta haust. „Svo eru svona týpur eins og Einar Þorsteinsson í Framsókn sem hefur ráðist að mér með ógeðfelldum hætti, svo það sé sagt, og hefur grafið undan sínum trúverðugleika,“ sagði Snorri.

Snorri ítrekaði þó að hann hefði efasemdir um flöggun hinseginfána í skólum. Að hans mati hefði regnboga- og transfáninn þróast í pólitískt tákn sem tengdist ákveðinni hugmyndafræði fremur en almennri samstöðu. Hann sagði markmið sitt vera að vernda börn og ungmenni sem glímdu við erfiðar félagslegar aðstæður eða kynvitundarvanda og taldi mikilvægt að fleiri sjónarmið fengju vægi í umræðunni. Hann sagði einnig að ekki ætti að líta svo á að Samtökin '78 hefðu eitt umboð til að móta stefnu eða ráðgjöf um slík málefni.

Annað sem Snorra sagði í þættinum:

 Ég segi bara maður á mann að það vakir einlæglega fyrir mér að hjálpa börnum sem eru í viðkvæmri stöðu félagslega, eiga erfitt uppdráttar eða erfitt með sjálft sig eða eru í krísu á unga aldri. Ég sem manneskja ber djúpa samúð með þessu og markmið mitt í þessari umræðu er að taka utan um þennan viðkvæma og brothætta hóp í samfélaginu. Er leiðin til þess að taka utan um þennan hóp þessi almenna lína, sem hefur verið ráðandi, og þessi fáni er að hluta til tákn fyrir þessa nálgun, að til dæmis ef barn sem er mjög ruglað í ríminu segist vera hvorki strákur né stelpa, eða segist vera af öðru kyni en það fæddist í líffræðilega, er þá nálgunin, til þess að taka utan um barnið og hjálpa því, að segja já, þetta er rétt og nú þurfum við að koma þér í viðeigandi leiðréttingu, að leiðrétta líkama þinn, sem er þar með gallaður, þú hefur þá fæðst í röngum líkama. Er þá eina rétta leiðin til að styðja við barnið að segja já og amen við því sem barnið segir? Það er gagnrýnin, að þessi fáni er að hluta til tákn fyrir að þetta sé eina nálgunin, að það eigi alltaf að „staðfesta kyn“ barnsins.

Þá er búið að snúa umræðunni þannig að þetta sé eina leiðin til að styðja við þennan hóp, sem mér er sannarlega í mun um að hjálpa og gæti raunar ekki verið áhugasamari um neitt verkefni í allri pólitíkinni en að tryggja að unga kynslóðin, að henni líði sem best, að hún standi með sjálfri sér og fái þrifist. Það eru allir krakkar þar undir og öll börn eiga rétt á að fá að þroskast með góðum hætti inn í þessi erfiðu ungdómsár, þetta eru flókin ár. 

Ein leiðin er þá að segja já og amen, vera með félagsmiðstöðvar þar sem þessi tákn eru alls staðar, tákn um að hér sé engum efasemdum lýst um að það sé alveg eins líklegt að börn séu að fæðast í röngu kyni eða geti verið af blönduðum kynjum. Ég veit auðvitað vel að það er mikið af fullorðnu fólki sem lifir samkvæmt þessari heimssýn og hefur skipt um atgervi og upplifir sig af öðru kyni og ég hef alltaf sagt mjög skýrt að ég set mig ekki upp á móti því, fólk er eins og það vill vera, þótt ég síðan lýsi minni heimssýn, eins og ég sé þetta. 

Síðan er það hitt hvernig við hjálpum börnunum. Það er svo ótrúlegt hvernig því er snúið að þessi málflutningur snúist á einhvern hátt um það að vinna gegn hagsmunum þessa barna. Það er til dæmis ný finnsk rannsókn, sem er mjög vönduð, margra áratuga rannsókn, á áhrifum þess að börn sem eru í kynáttunarvanda að þau fari inn í eitthvert afbrigði af kynskiptimeðferð eða að þau fái að staðfesta nýja kynið, að áhrifin til langs tíma eru ekki jákvæð fyrir börnin. Andleg heilsa batnar ekki. Sumir myndu segja að þú þurfir ekki rannsókn til að staðfesta þetta en ég held að það sé ekkert vitlaust að við byggjum þetta á rannsóknum og að íslensk stjórnvöld byggi þetta á rannsóknum. 

Hitt varðar svo þá staðhæfingu að trans fólk eða hinsegin fólk, að eina ástæðan fyrir þeirra vanlíðan sé viðhorf samfélagsins. Að ef það myndi breytast myndi vanlíðanin hverfa. En rannsóknin bendir til þess að gögnin styðji þetta ekki, vegna þess að eftir því sem víðsýni og umburðarlyndi gagnvart þessum málaflokki hefur vaxið, hefur vanlíðanin vaxið sömuleiðis. Þetta orsakasamband bendir til þess að aðrir undirliggjandi þættir kunni að vera valdurinn að vanlíðan þessa hóps. Þá eru nefndir margir þættir sem er mikil fylgni með til dæmis gagnvart börnum sem eru trans, það er einhverfa, félagskvíði, áföll, tengslaerfiðleikar, margvísleg svona vandamál.

Ég segi að ef þú tekur þessi vandamál og ýtir þeim til hliðar, lætur eins og þau séu ekki í gangi, ferð þá og einblínir í staðinn á þessa hugmynd um að manneskjan sé í röngu kyni og reynir að leysa það, þá ertu að gera illt verra. Þá ertu að valda skaða og þess vegna hafa Finnar á undanförnum árum breytt algjörlega um nálgun frá því að kerfið allt segi já, amen og hér eru fánar og umburðarlyndi, yfir í ábyrgari nálgun fullorðinna einstaklinga sem taka utan um börnin í þessum vanda, umvefja þau hjá sérfræðingum sem reyna að hjálpa þeim að finna leið út úr sínum vanda og helst leið sem felur ekki í sér svona líkamlegt inngrip sem enginn veit hvaða afleiðingar hefur til lengri tíma og er algjörlega ógagnreynd vísindaleg meðferð, jafnvel þótt læknar og hjúkrunarfræðingar í mörgum tilvikum kannski þori ekki að tjá sig um málið.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Vilhjálmur sagður „öskureiður“
Heimur

Vilhjálmur sagður „öskureiður“

„Summer Holiday“ færslan dýpkar gjána á milli bræðranna
Arnhildur ráðin tónlistarstjóri Glerárkirkju
Landið

Arnhildur ráðin tónlistarstjóri Glerárkirkju

Óbirt myndefni: Graham kallaði stríðið við Íran „það besta sem ég hef gert“
Myndband
Heimur

Óbirt myndefni: Graham kallaði stríðið við Íran „það besta sem ég hef gert“

Héraðssaksóknari kærir frávísun máls gegn Skúla Tómasi
Innlent

Héraðssaksóknari kærir frávísun máls gegn Skúla Tómasi

Mannskæð skothríð á matarhátíð
Heimur

Mannskæð skothríð á matarhátíð

Matvælastofnun varar við tveimur vörum
Innlent

Matvælastofnun varar við tveimur vörum

Elsti atvinnuknattspyrnumaður heims skoraði sitt fyrsta mark í tæp fjögur ár
Myndband
Sport

Elsti atvinnuknattspyrnumaður heims skoraði sitt fyrsta mark í tæp fjögur ár

Svifvængsmaður fannst eftir leit við Mýrdalsjökul
Innlent

Svifvængsmaður fannst eftir leit við Mýrdalsjökul

Hjón létust í drónaárás Úkraínu
Heimur

Hjón létust í drónaárás Úkraínu

Þegar fortíðin rænir okkur nútíðinni
Fólk

Þegar fortíðin rænir okkur nútíðinni

Sjónvarpsmaðurinn og grínistinn Bill Oddie er látinn
Heimur

Sjónvarpsmaðurinn og grínistinn Bill Oddie er látinn

Krefjast þess að Jasmine verði rekin úr Love Island
Fólk

Krefjast þess að Jasmine verði rekin úr Love Island

Pólitík

Brynjar Níelsson vill styrkja samband Íslands við Bandaríkin
Pólitík

Brynjar Níelsson vill styrkja samband Íslands við Bandaríkin

„Þetta hlýtur að vera eitthvert met í úrræðaleysi.“
Boða harðari aðgerðir og þyngri refsingar
Pólitík

Boða harðari aðgerðir og þyngri refsingar

Sigmundur Davíð jarmar um Þorgerði Katrínu
Pólitík

Sigmundur Davíð jarmar um Þorgerði Katrínu

Utanríkisráðuneytið forðast efnisleg svör um fund Marco Rubio
Pólitík

Utanríkisráðuneytið forðast efnisleg svör um fund Marco Rubio

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands
Pólitík

Svanhildur Hólm sat umdeilda ráðstefnu Marco Rubio fyrir hönd Íslands

Umdæmisráð barnaverndar heyra sögunni til
Pólitík

Umdæmisráð barnaverndar heyra sögunni til

Loka auglýsingu