Fátt hefur verið talað um jafn mikið í dag og Snorra Másson, varaformann Miðflokksins, eftir að hann gagnrýndi sýnileika regnbogafánans í grunnskólum landsins.
Fjölmargir þjóðþekktir einstaklingar hafa gagnrýnt þingmanninn, meðal annars aðrir þingmenn og biskup Íslands, og þá hefur Miðflokkurinn á Hornafirði gagnrýnt Snorra, án þess þó að nefna hann á nafn, í Facebook-færslu.
Hinsegin kórinn birti nú í kvöld myndband á samfélagsmiðlum þar sem Snorra er svarað og tala margir á samfélagsmiðlunum um að um gæsahúðarmyndband sé að ræða.































Athugasemdir