Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

„Snorri veit nákvæmlega hvað hann er að gera með þessu“

Fyrr­ver­andi fram­kvæmd­ar­stjóri Sam­tak­anna 78 hjólar í Snorra Másson

Snorri Másson
Snorri Másson Daníel segir Snorra vita nákvæm­lega hvað hann sé að gera Mynd: Víkingur

Daníel E. Arn­ars­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmd­ar­stjóri Sam­tak­anna 78, gagn­rýnir Snorri Másson, vara­for­mann Mið­flokk­ur­inn, harð­lega í Facebook-færslu í kjöl­far umræðu hans um sýni­leika regn­boga­fán­ans í grunn­skólum lands­ins.

Í færsl­unni segir Daníel að Snorri viti vel hvað hann sé að gera með ummælum sínum og að umræðan snú­ist ekki um raun­veru­leg vanda­mál. Hann bendir á að regn­boga­fán­inn sé tákn hinsegin fólks og að nær­vera hans í skólum sé með­vituð ákvörðun starfs­fólks til að skapa öruggt og opið umhverfi fyrir alla nem­endur. Daníel skrifar:

„Elsku Snorri. Hugsa til hans. Myndi hlæja ef þetta væri ekki svona skað­legt. Snorri veit nákvæm­lega hvað hann er að gera með þessu. Regn­boga­fán­inn er tákn okkar hinsegin fólks og er sýni­legur í skólum lands­ins af því að starfs­fólk skóla vill búa til umhverfi þar sem öll eru vel­komin og á sama tíma sýna hinsegin krökkum aukna við­leitni. En Snorri veit þetta alveg.“

Daníel sakar Snorra um að skapa vís­vit­andi ágrein­ing og beina athygl­inni frá mik­il­væg­ari mál­efnum. Að hans mati sé verið að „trufla, búa til hávaða“ og finna vanda­mál þar sem þau séu ekki til staðar.

„Ef það er regn­boga­fáni í dag þá er það eitt­hvað annað á morgun, en almætti forði honum að ræða mál­efni sem raun­veru­lega skiptir fólkið í þessu landi máli.“

Hann segir jafn­framt ámæl­is­vert að kjör­inn full­trúi Alþingis nýti stöðu sína með þessum hætti í stað þess að vinna að hags­muna­málum almenn­ings. Hann gagn­rýnir að ráð­ist sé að minni­hluta­hópum ítrekað í stað þess að beina kröftum að brýnni verk­efnum sam­fé­lags­ins.

„Mér finnst magnað að maður sem er kjör­inn á Alþingi, sem er valda­hlut­verk, með mýmörg verk­efni til að bæta hag fólks velji frekar að búllía minni­hluta­hópa við hvert tæki­færi. Það er nóg að gera í öllum mála­flokkum rík­is­ins, ég er viss um það, en í stað­inn velur hann þetta.“

Í færsl­unni hafnar Daníel einnig þeirri orð­ræðu sem byggi á ótta við ákveðna hópa og nefnir sér­stak­lega inn­flytj­endur og trans­fólk. Hann segir mik­il­vægt að sam­fé­lagið bygg­ist á við­ur­kenn­ingu, virð­ingu og fjöl­breyti­leika fremur en ótta.

„Það er ekk­ert að ótt­ast inn­flytj­endur og það er ekk­ert að ótt­ast trans fólk. Það er ekki hollt að vera hræddur við það sem við ekki þekkjum, þá förum við bara að sofa illa, fá maga­sár og verðum að lokum reið og döpur.“

Að lokum lýsir hann óánægju með fram­göngu kjör­inna full­trúa sem, að hans mati, tali niður til fólks og dragi úr virði ákveð­inna hópa. Hann kallar eftir jákvæð­ari nálgun þar sem lögð er áhersla á að efla sam­fé­lagið og styðja við alla lands­menn.

„Ég per­sónu­lega er kom­inn með nóg af kjörnum full­trúum sem tala niður til fólks­ins í land­inu, segja okkur hvað er ekki hægt að gera og tala um að ákveðnir hópar sam­fé­lags­ins séu minna virði. Því það er alveg hægt að tala fólk upp, fagna fólk­inu okkar og vinna fyrir land og þjóð. Eða var þetta fólk ekki kosið til þess að gera það?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Vefur Félagsins Ísland-Palestína liggur niðri eftir árásina og óvíst er hvort hægt verði að endurheimta hann.
Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu