1
Peningar

Japis enn og aftur gjaldþrota

2
Innlent

Mollý nú löglegt á Íslandi

3
Minning

Margrét Jónsdóttir er fallin frá

4
Pólitík

„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“

5
Heimur

Paola Márquez látin aðeins 30 ára gömul

6
Innlent

Fundu rúma milljón í reiðufé í bíl

7
Heimur

Ferðamaður lést á Kanarí

8
Heimur

Matt Brown látinn aðeins 43 ára gamall

9
Fólk

Draumaeinbýli í miðbænum til sölu

10
Innlent

Innkalla hættulegar bílstólafestingar

Til baka

Segir hugmyndir um varðhald barna „dystópískar“

„Ég vil ekki segja þeim alveg strax að Ísland vill læsa börn inni líka.“

Alma Mjöll Ólafsdóttir
Alma Mjöll ÓlafsdóttirAlma Mjöll er ábyrgðarmaður söfnunarinnar
Mynd: Facebook

Alma Mjöll Ólafsdóttir, sérfræðingur hjá Jafnlaunastofu og fyrrverandi rannsóknarblaðamaður, hvetur almenning til að skrifa undir undirskriftasöfnun gegn frumvarpi um brottfararstöð þar sem heimilt væri að vista börn í varðhaldi.

Í persónulegri Facebook-færslu lýsir hún daglegu lífi með börnum sínum á meðan hún vinnur að söfnuninni:

„Ég sit upp í rúmi að skrifa á meðan börnin mín Flóki og Lísa sitja frammi og kjafta. Á sirka fimm sek fresti kallar Flóki: mamma þetta og mamma hitt.“

Hún segir tilganginn með skrifunum vera skýran:

„Ég er að safna undirskriftum á undirskriftalista: Við læsum börn ekki inni: Nei við Brottfararstöð!“

Alma segist eiga erfitt með að útskýra fyrir börnum sínum hvað málið snýst um:

„Ég vil ekki segja þeim alveg strax að börn og foreldrar þeirra eru víða um heim læst inni fyrir það eitt að vera á flótta og fá ekki að vera í landinu sem þau flúðu í. Ég vil ekki segja þeim alveg strax að Ísland vill læsa börn inni líka.“

Í færslunni leggur hún áherslu á að börn eigi ekki að vera í slíkum aðstæðum:

„Börn eiga ekki að vera í varðhaldsbúðum, börn eiga að vera á róló, að hlæja fram á nótt með frænkum sínum, í skóla og út í sólinni.“

Alma segir að hún telji að almenningur sé sammála um þetta grundvallaratriði:

„Ég þori hins vegar að trúa að flestir íslendingar séu sammála um það að við læsum börn ekki inni fyrir það að vera á flótta.“

Hún gagnrýnir jafnframt hugmyndina um varðhald hælisleitenda:

„Sjálf vil ég ekki að neinn sé læstur inni fyrir það að vera á flótta, fullorðinn eða barn. Mér finnst það dystópísk hugmyndafræði.“

Í lok færslunnar hvetur hún fólk eindregið til að taka þátt:

„Ég set undirskriftarlistann í athugasemd og hvet ykkur, nei ég bið ykkur um að skrifa undir.“

Hún þakkar einnig þeim sem þegar hafa stutt framtakið og nefnir sérstaklega Salvöru Gullbrá Þórarinsdóttur og Gígju Söru Björnsson fyrir að skrifa undir og styðja málið.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu auglýst laust til umsóknar
Innlent

Embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu auglýst laust til umsóknar

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu fer með stjórn lögregluliðs í stærsta lögregluumdæminu
„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“
Pólitík

„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“

Fundu rúma milljón í reiðufé í bíl
Innlent

Fundu rúma milljón í reiðufé í bíl

Mollý nú löglegt á Íslandi
Innlent

Mollý nú löglegt á Íslandi

Ofbeldisfullur lögreglumaður rekinn eftir rannsókn
Myndband
Heimur

Ofbeldisfullur lögreglumaður rekinn eftir rannsókn

Paola Márquez látin aðeins 30 ára gömul
Heimur

Paola Márquez látin aðeins 30 ára gömul

Hundar halda áfram að bíta fólk í Reykjavík
Innlent

Hundar halda áfram að bíta fólk í Reykjavík

Bjarndýr réðst á fólk inn í verksmiðju
Heimur

Bjarndýr réðst á fólk inn í verksmiðju

Innkalla hættulegar bílstólafestingar
Innlent

Innkalla hættulegar bílstólafestingar

Útlendingar mættu ekki fyrir dóm
Innlent

Útlendingar mættu ekki fyrir dóm

Draumaeinbýli í miðbænum til sölu
Myndir
Fólk

Draumaeinbýli í miðbænum til sölu

Pólitík

„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“
Pólitík

„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“

Brynjar Níelsson opnar sig um eigin vinnumáta
„Ég tel að þessar breytingar verði til hagsbóta fyrir lögreglu“
Pólitík

„Ég tel að þessar breytingar verði til hagsbóta fyrir lögreglu“

Inga farin í veikindaleyfi
Pólitík

Inga farin í veikindaleyfi

Kamilla gagnrýnir niðurskurð á Þjóðarbókhlöðunni
Pólitík

Kamilla gagnrýnir niðurskurð á Þjóðarbókhlöðunni

Segir Morgunblaðið vera „málgagn hins neikvæða nöldurs”
Pólitík

Segir Morgunblaðið vera „málgagn hins neikvæða nöldurs”

Gylfi Ólafsson nýr bæjarstjóri Ísafjarðar
Pólitík

Gylfi Ólafsson nýr bæjarstjóri Ísafjarðar

Loka auglýsingu