
Hjón á fimmtugsaldri, sem hafa búið á Tenerife um árabil, segja andúð í garð ferðamanna og erlendra íbúa hafa færst í aukana á eyjunni. Þau greina frá þessu í viðtali við Canarian Weekly þar sem þau lýsa reynslu sinni af ógnandi veggjakroti og meintum aðgerðaleysi yfirvalda.
Hjónin segjast hafa rekist á veggjakrot með skilaboðunum „Kill a Tourist“ og „Fuck Tourists“ á vinsælum gönguleiðum við Punta del Hidalgo og Bollullo-ströndina. Þau hafi tilkynnt málið til sveitarfélaganna La Laguna og La Orotava en enn ekki fengið svar.
Þá segir annar aðilinn að hann hafi orðið fyrir áreiti vegna hvíts húðlitar síns og verið sakaður um að taka húsnæði og tækifæri frá heimamönnum. Hjónin, sem hafa búið á eyjunni í 16 ár, vinna þar og greiða skatta, segja slíka framkomu valda þeim verulegum áhyggjum.
Þau leggja áherslu á að gagnrýni á ferðamálastefnu sé eðlileg en að hótanir og ofbeldisboðskapur gagnvart ferðamönnum eða útlendingum verði aldrei réttlættur.
