1
Fólk

Glúmur segir RÚV hafa gleymt stærstu stjörnu íslenska sjónvarpsins

2
Innlent

Unglingur bundinn og skilinn eftir í kjallara í Laugardal

3
Innlent

Fimm útlendingar gripnir með milljónir í reiðufé á Keflavíkurflugvelli

4
Innlent

Magnús tekinn fram yfir fyrrverandi þingmann

5
Innlent

Matthías Már ætlar að sigrast á krabbameininu

6
Innlent

Sálfræðingur skorar á ráðherra

7
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

8
Heimur

Áratugalöng leit endaði í faðmlagi systkina

9
Fólk

Gömul sál í nýjum búningi í Hafnarfirði til sölu

10
Innlent

Bruggaði ólöglega af krafti á Selfossi en lögreglan tæmdi lagerinn

Til baka

Skrifað undir tvær viljayfirlýsingar um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis

„Það er frumskylda sveitarfélaga að stuðla að því að fólk geti eignast öruggt heimili.“

Heiða Björg Hilmisdóttir
Heiða Björg Hilmisdóttir
Mynd: Víkingur

Tvær viljayfirlýsingar um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Reykjavík á næstu árum voru undirritaðar á föstudaginn.

Annars vegar var samið við Bjarg íbúðafélag og hins vegar við Félag íslenskra náttúrufræðinga (FÍN) og Visku, stéttarfélag háskólamenntaðra. Verkefnin eru sögð falla vel að markmiðum húsnæðisstefnu Reykjavíkurborgar um fjölbreytt húsnæðisframboð og aukna félagslega blöndun í hverfum borgarinnar.

Samkvæmt samkomulaginu við Bjarg hyggst Reykjavíkurborg úthluta félaginu lóðum með byggingarrétti fyrir búseturéttar- og leiguíbúðir á nokkrum svæðum, þar á meðal í Gufunesi, á Veðurstofuhæð, í Grundarhverfi á Kjalarnesi og á Kringlureit. Í viljayfirlýsingunni við FÍN og Visku er jafnframt gert ráð fyrir vilyrði um uppbyggingu á þróunarlóðum.

Í báðum samningunum er lögð áhersla á fjölbreyttar húsagerðir, blandaðar íbúðategundir innan hverfa og aukið framboð smærri íbúða fyrir ólíka hópa samfélagsins. Þá munu félögin framselja Félagsbústöðum 5 til 10 prósent íbúða á kostnaðarverði.

Borgarráð samþykkti einnig að Bjarg íbúðafélag taki við lóðarvilyrði fyrir byggingarrétti á allt að 50 íbúðum við Leirtjörn vestur í Úlfarsárdal. Lóðin hafði áður verið úthlutað Leigufélagi aldraðra og er gert ráð fyrir að þar verði byggt hagkvæmt húsnæði fyrir eldri borgara.

„Ég fagna þessum viljayfirlýsingum mjög og þessu öfluga samstarfi um uppbyggingu fjölbreytts og aðgengilegs húsnæðis í Reykjavík,“ sagði Heiða Björg Hilmisdóttir. „Það er frumskylda sveitarfélaga að stuðla að því að fólk geti eignast öruggt heimili á viðráðanlegum kjörum og með þessum verkefnum tökum við mikilvæg skref til að mæta þeirri ábyrgð af festu og metnaði.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar
Pólitík

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar

Lögreglan rak nefið í mikið magn fíkniefna
Innlent

Lögreglan rak nefið í mikið magn fíkniefna

Netanyahu kærir ísraelska fjölmiðla
Heimur

Netanyahu kærir ísraelska fjölmiðla

Hættir sem forstjóri Landsvirkjunar
Innlent

Hættir sem forstjóri Landsvirkjunar

Mágur Toni Braxton lést í nótt
Heimur

Mágur Toni Braxton lést í nótt

Ristaðar og saltaðar pistasíur innkallaðar
Innlent

Ristaðar og saltaðar pistasíur innkallaðar

Tveir létust þegar sjúkraþyrla steyptist í sjóinn við Los Angeles
Heimur

Tveir létust þegar sjúkraþyrla steyptist í sjóinn við Los Angeles

Kennari dæmdur í fangelsi fyrir kaup og sölu á barnaníðsefni
Heimur

Kennari dæmdur í fangelsi fyrir kaup og sölu á barnaníðsefni

Laxveiðiferðin í Þverá endaði fyrir dómi
Innlent

Laxveiðiferðin í Þverá endaði fyrir dómi

Furðuverur fæðast í fjárhúsinu
Landið

Furðuverur fæðast í fjárhúsinu

Tæplega sjötugur brimbrettakappi stórslasaðist á Fuerteventura
Heimur

Tæplega sjötugur brimbrettakappi stórslasaðist á Fuerteventura

Lettland tilbúið að hýsa kjarnorkuvopn
Heimur

Lettland tilbúið að hýsa kjarnorkuvopn

Pólitík

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar
Pólitík

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar

„Við höfum á of mörgum sviðum verið með vægari reglur en nágrannaríki okkar“
Sósíalistar hafna öllum skerðingum á verkfallsrétti
Pólitík

Sósíalistar hafna öllum skerðingum á verkfallsrétti

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu
Pólitík

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“
Pólitík

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning
Pólitík

Segir Sjálfstæðisflokkinn blekkja kjósendur um fríverslunarsamning

Loka auglýsingu