1
Innlent

Icelandair sigraði hóp bifvélavirkja

2
Fólk

Selja einbýli með 5.000 fermetra lóð á höfuðborgarsvæðinu

3
Fólk

„Þetta krabbamein er það besta sem hefur komið fyrir mig.“

4
Pólitík

Segir orð Þorgerðar Katrínar innantóm

5
Innlent

Ætluðu að flytja 18 kíló af kóki í Ármúla

6
Innlent

Fór með börnin frá Íslandi án samþykkis föðurins

7
Peningar

Dýr veruleiki blasir við leigjendum á Íslandi

8
Heimur

Dularfullur fylgdarmaður sendiherra Trump vekur spurningar

9
Innlent

Hafnfirðingur missti hemilinn á gestunum

10
Heimur

Klámstjarnan Bonnie Blue stöðvuð af lögreglu

Til baka

Nýbygging Félagsbústaða vekur hroll og aðdáun

Hús sem verðlaunaarkitekt hannaði skiptir álitsgjöfum í tvö horn.

Háteigsvegur 59
Húsið umdeildaGuðjón telur það líta út eins og draugahús.
Mynd: Víkingur

Miklar umræður hafa skapast á Facebook-síðu Guðjóns Friðrikssonar sagnfræðings en hann birti færslu á samfélagsmiðlinum um nýlegt hús sem stendur við Háteigsveg 59. Húsið er í eigu borgarinnar og Félagsbústaða en það er hannað af Arnhildi Pálmadóttur, sem þykir einn fremsti arkitekt Íslands.

Guðjón er allt annað en sáttur með útlit hússins. „Ég er ekki einn af þeim sem hef allt á hornum mér varðandi nýbyggingar fjölbýlishúsa á höfuðborgarsvæðinu þó að auðvitað finnist mér þau misjafnlega falleg eins og gengur og gerist,“ skrifar Guðjón.

„Ég verð þó að játa að ég hálfpartinn hrökk í kút þegar mér var gengið upp að Sjómannaskóla í dag og sá tilsýndar þar í næsta nágrenni kolsvart nýtt hús sem lítur út eins og draugahús úr kvikmynd eftir Hitchcock. Það lá við að ég yrði myrkfælinn. Þegar ég gekk nær sá ég að klæðningin á húsinu voru sundursagaðar slitnar fjalir sem líta út eins og þær væri sviðnar eftir eld. Heimkominn fletti ég upp teikningum af húsinu á vef Reykjavíkurborgar og sá að umrætt hús er eftir enga aðra en Arnhildi Pálmadóttur sem fékk umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs á síðasta ári og er það teiknað fyrir Félagsbústaði. Vafalaust er húsið frumlegt og umhverfisvænt en enga að síður get ég ekki varist því að það setur að mér hroll þegar ég lít það augum.“

Háteigsvegur 59
Hallgrímur Helgason dásamar húsiðEgill Helgason vill meina að það sé ljótt og dapurt.
Mynd: Víkingur

Yfir 130 athugasemdir hafa verið ritaðar við færslu Guðjóns og er óhætt að segja að fólk skiptist í tvær fylkingar þegar kemur að húsinu. „Mikið er þetta dapurt og ljótt,“ skrifaði sjónvarpsmaðurinn Egill Helgason um húsið.

Andri Snær Magnason er hins vegar talsvert hrifinn af húsinu. „Viðurinn er sviðinn með japanskri aðferð, húsið minnir frekar á gömlu tjöruhúsin, af því ytra byrði er viður. Allt of mörg svört hús eða grá með þverliggjandi bárujárni eiga ofangreindan dóm skilið en ekki þetta. Það er fegurð í hugsun og dirfskunni,“ skrifar rithöfundurinn.

Fyrrverandi fjölmiðlamaðurinn Eiríkur Hjálmarsson tók í svipaðan streng og Andri og sagði að ytra byrði hússins væri frábært. Guðfinna Guðmundsdóttir, fyrrverandi borgarfulltrúi, segist hins vegar finna brunalykt við það eitt að horfa á húsið.

„Þetta finnst mér flott!“ skrifar fyrrverandi þingmaðurinn Margrét Tryggvadóttir. Heimspekingurinn Atli Harðarson segir að húsið tóni við myrkrið og kuldann, dumbunginn og drungann.

„Geggjað dæmi eftir heitasta arkitekt Íslands, Arnhildur er nýbúin að innrétta Forlagið á Fiskislóð, vinna Norðurlandaverðlaunin í arkitektúr, slá í gegn á arkitektabíennalnum í Feneyjum og er að reisa mjög metnaðarfulla og merkilega spennandi blokk á horni Skúlagötu og Frakkastígs,“ skrifar Hallgrímur Helgason við færslu Guðjóns, sem svarar honum með því að segja að það sé oftast mikill karakter í draugahúsum.

Að lokum segir Guðjón segja að það verði víst ekki deilt um smekk.

Þá hefur lífleg umræða um húsið skapast í Arkitektúruppreisnin á Íslandi - Byggjum fallegt aftur. Þar eru sömuleiðis deildar meiningar.

Húsið var hins vegar kynnt af Félagsbústöðum í vetur og vígt af Einari Þorsteinssyni borgarstjóra, ásamt Heiðu Björg Hilmisdóttur, núverandi borgarstjóra.

Þar sagði að „nýtt fallegt hús“ hefði verið vígt. „Arkitekt hússins, Arnhildur Pálmadóttir hlaut nýverið umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs fyrir þverfaglega nálgun og áherslu á minnkaða kolefnislosun og endurnýtingu byggingarefnis, en stór hluti kjarnans er unnin úr endurnýttu timbri. Meðal annars fengu afgangar af steinflísum sem féllu til við byggingu Smiðju, skrifstofubyggingar Alþingis, nýtt hlutverk í íbúðakjarnanum, en þær prýða nú gólf í anddyri hans. Fleira byggingarefni var endurnýtt, svo sem afgangstimbur frá Húsasmiðjunni, afgangsgluggar frá Gluggagerðinni og afgangstimbur frá Byko en öll gáfu fyrirtækin efnið til verkefnisins.“

Á síðunni Byggjum grænni framtíð er verkefninu lýst nánar.

Hvað finnst þér um útlit hússins?

Háteigsvegur 59
Mynd: Víkingur
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Karlmenn taka leynilega upp myndbönd af konum til að græða peninga
Heimur

Karlmenn taka leynilega upp myndbönd af konum til að græða peninga

Fórnarlömb leyndrar myndatöku stíga fram
Íranar vara við orkuskorti í vetur eftir árásir Bandaríkjanna og Ísraels
Heimur

Íranar vara við orkuskorti í vetur eftir árásir Bandaríkjanna og Ísraels

Öllu starfsfólki NetApp á Íslandi sagt upp
Innlent

Öllu starfsfólki NetApp á Íslandi sagt upp

Ísland dælir milljörðum í menntakerfið en kennslutíminn mun styttri en erlendis
Innlent

Ísland dælir milljörðum í menntakerfið en kennslutíminn mun styttri en erlendis

Sala sýklalyfja fyrir dýr jókst um rúm 21 prósent
Innlent

Sala sýklalyfja fyrir dýr jókst um rúm 21 prósent

Halla og Skjöldur setja á markað íslenska förðunarmerkið Just Makeup
Fólk

Halla og Skjöldur setja á markað íslenska förðunarmerkið Just Makeup

Tveir ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á Vopnafirði
Innlent

Tveir ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á Vopnafirði

James Acaster fékk kvíðakast við tökur á Celebrity Traitors
Heimur

James Acaster fékk kvíðakast við tökur á Celebrity Traitors

Höfundur South Park nafngreinir hópnauðgara við Cornell-háskóla
Heimur

Höfundur South Park nafngreinir hópnauðgara við Cornell-háskóla

Fimm bjargað úr báti og kona sótt úr sjó á Kanaríeyjum
Heimur

Fimm bjargað úr báti og kona sótt úr sjó á Kanaríeyjum

Kalla eftir aukinni réttarvernd dýra
Innlent

Kalla eftir aukinni réttarvernd dýra

Nýjar Google Earth-myndir sýna umfang eyðileggingarinnar á Gaza
Heimur

Nýjar Google Earth-myndir sýna umfang eyðileggingarinnar á Gaza

Innlent

Öllu starfsfólki NetApp á Íslandi sagt upp
Innlent

Öllu starfsfólki NetApp á Íslandi sagt upp

Starfsemin á Íslandi lögð niður
Viðkvæmar íslenskar konur nýttar til að fá landvistarleyfi
Innlent

Viðkvæmar íslenskar konur nýttar til að fá landvistarleyfi

Ísland dælir milljörðum í menntakerfið en kennslutíminn mun styttri en erlendis
Innlent

Ísland dælir milljörðum í menntakerfið en kennslutíminn mun styttri en erlendis

Sala sýklalyfja fyrir dýr jókst um rúm 21 prósent
Innlent

Sala sýklalyfja fyrir dýr jókst um rúm 21 prósent

Tveir ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á Vopnafirði
Innlent

Tveir ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á Vopnafirði

Kalla eftir aukinni réttarvernd dýra
Innlent

Kalla eftir aukinni réttarvernd dýra

Loka auglýsingu