Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Starfsmaður Borgarsögusafnsins hjólar í borgarstjórn

„Nú á að draga veru­lega úr forn­leifa­rann­sóknum og leggja af eina helstu skraut­fjöður safns­ins, húsa­rann­sóknir.“

Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur
Hildur Björns­dóttir, borg­ar­stjóri Reykja­víkur Gerður er afar ósátt við nýj­ustu upp­sagna­hr­inu borg­ar­innar Mynd: BHJ

Gerður Róberts­dóttir, sagn­fræð­ingur og verk­efna­stjóri muna­vörslu á Borg­ar­sögu­safni Reykja­víkur, segir nýj­ustu upp­sagnir hjá Reykja­vík­ur­borg geta haft alvar­leg áhrif á rann­sóknar- og minja­vörslu­starf safns­ins. Hún gagn­rýnir sér­stak­lega fyr­ir­hug­aðan nið­ur­skurð í forn­leifa­rann­sóknum og að húsa­rann­sóknir eigi að leggj­ast af.

Þetta kemur fram í færslu Gerðar á Facebook þar sem hún seg­ist ekki geta orða bund­ist vegna þeirra breyt­inga sem boð­aðar hafa verið á starf­semi safns­ins.

Gerður segir að með ákvörð­un­inni sé vegið að rann­sóknum sem hafi verið mik­il­vægur þáttur í starf­semi Borg­ar­sögu­safns um ára­tuga­skeið. Hún bendir á að for­veri safns­ins, Árbæj­ar­safn, hafi verið braut­ryðj­andi í rann­sóknum á bygg­ing­ar­arfi Reykja­víkur.

„Get ekki orða bund­ist.

Alvar­lega er vegið að rann­sóknum Borg­ar­sögu­safns Reykja­víkur með nýj­ustu upp­sagn­ar­hr­inu borg­ar­stjórnar. Nú á að draga veru­lega úr forn­leifa­rann­sóknum og leggja af eina helstu skraut­fjöður safns­ins, húsa­rann­sóknir.“

Segir verið að leggja niður áratuga faglegt starf

Í færslu sinni rifjar Gerður upp störf Nönnu Her­manns­sonar, fyrsta borg­arminja­varðar Reykja­víkur, sem gegndi emb­ætt­inu á árunum 1974 til 1984. Hún segir Nönnu hafa lagt grunn að fag­legri minja­vörslu og rann­sóknum á bygg­ing­ar­arfi borg­ar­innar.

Undir hennar stjórn hafi verið þróuð skipu­leg skrán­ing húsa og mann­vist­ar­leifa og teknar upp aðferðir til að meta sögu­legt og menn­ing­ar­legt gildi eldri byggðar.

Mark­miðið hafi verið að tryggja að hús, götur og minjar fyrri tíma yrðu skráð, rann­sökuð og varð­veitt á fag­legum for­sendum.

Gerður nefnir Grjóta­þorp sem dæmi um svæði þar sem rann­sóknir safns­ins hafi haft áhrif á verndun sögu­legrar byggðar. Rann­sókn­irnar hafi sýnt fram á ein­stakt menn­ing­ar­sögu­legt gildi hverf­is­ins.

Tveimur af þremur sagt upp

Samkvæmt Gerði er tveimur af þeim þremur starfs­mönnum Borg­ar­sögu­safns sem bera ábyrgð á þessum verk­efnum sagt upp í nýj­ustu upp­sagn­ar­hr­inu borg­ar­innar.

Hún telur ákvörð­un­ina skerða veru­lega getu safns­ins til að sinna rann­sóknum, skrán­ingu og verndun menn­ing­ar­arfs Reykja­víkur.

„Um leið er grafið undan því fag­lega starfi sem byggt hefur verið upp á ára­tugum og á rætur að rekja til frum­kvöðla á borð við Nönnu Her­manns­son,“ skrifar Gerður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum