1
Peningar

Japis enn og aftur gjaldþrota

2
Innlent

Mollý nú löglegt á Íslandi

3
Minning

Margrét Jónsdóttir er fallin frá

4
Pólitík

„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“

5
Heimur

Paola Márquez látin aðeins 30 ára gömul

6
Innlent

Fundu rúma milljón í reiðufé í bíl

7
Heimur

Ferðamaður lést á Kanarí

8
Heimur

Matt Brown látinn aðeins 43 ára gamall

9
Fólk

Draumaeinbýli í miðbænum til sölu

10
Innlent

Innkalla hættulegar bílstólafestingar

Til baka

„Stundum er betra að skila auðu“

Jódís Skúla varar við Miðflokknum

Jódís Skúladóttir
Jódís SkúladóttirJódís spyr hvort siðferðisgildi eigi að ráða kjörseðlinum
Mynd: Alþingi

Jódís Skúladóttir, fyrrverandi þingkona Vinstri grænna, varpar fram spurningum um siðferðilega ábyrgð kjósenda í færslu á Facebook og veltir fyrir sér hvort rétt sé að styðja flokk ef hluti stefnu hans fer gegn grundvallarsannfæringu.

„Mig langar að spyrja af einlægni og af því að mig langar að skilja. Ef þú ert að mestu leyti sammála stefnumálum einhvers flokks en eitthvað eitt í stefnuskránni fer algerlega gegn sannfæringu þinni, kýstu þá flokkinn?“ skrifar hún.

Jódís rifjar upp eigin reynslu úr stjórnmálum og aðild sinni að VG:

„Ef ég svara fyrir mig þá var ég félagi í VG af því að nánast allt í stefnu þeirra var eitthvað sem ég trúi á. Það truflaði mig alltaf og ég fór aldrei í neinar grafgötur með það hvað VG var og er rosalega mikill höfuðborgar flokkur. Þetta átti fyrst og fremst við um forystuna sem barðist gegn flugvellinum í Vatnsmýrinni sem að mínu mati fer gegn stefnu um félagslegt réttlæti. Einnig var dapurlegt áhugaleysið um risastórt náttúruverndarmál eins og fiskeldi í Seyðisfirði í hrópandi andstöðu við gildi hreyfingarinnar.

Ég mat stöðuna samt lengst af þannig að ég ætti meira sameiginlegt með VG en ekki og ég yrði bara að hafa hátt um það sem ég gæti ekki samþykkt. Atkvæði veitt VG var betra og hættu minna en atkvæði greitt einhverjum öðrum.“

Í færslunni fjallar hún einnig um aukið fylgi Miðflokksins í skoðanakönnunum og segir skiljanlegt að ákveðin stefnumál flokksins höfði til kjósenda:

„Nokkur dæmi um áherslur eru td lægri skattar og minna regluverk, hagsmunir landsbyggðarinnar, vernd íslensks landbúnaðar og sjávarútvegs og gagnrýni á hátt vaxtastig og stöðu skuldugra heimila. Þetta talar nú heldur betur til margra!“

Hún setur þó fyrirvara við slíkan stuðning og bendir á að ekki sé hægt að aðskilja einstök stefnumál:

„En ef atkvæði veitt þessum góðu málum merkir, og er óaðskiljanlegt við, atkvæði veitt harðari stefnu í innflytjenda- og hælismálum (hvar flokkurinn hefur ítrekað skellt fram röngum tölfræðilegum upplýsingum)? Eða ef atkvæði veitt þessum góðu málum merkir atkvæði veitt harðri andstöðu og markvissri aðför að hinsegin fólki?“

Jódís gagnrýnir þjóðernisstefnu flokksins og varar við afleiðingum hennar:

„Miðflokkurinn er þjóðernissinnaður íhaldsflokkur. [...] En það er rosalega hættulegt að fylgja bara öldunni og kjósa eitthvað sem fer gegn siðferðislegum gildum okkar og ýtir undir sundrungu og jaðarsetningu stórs hluta þjóðarinnar.“

Að lokum leggur hún áherslu á að kjósendur beri ábyrgð á vali sínu:

„Atkvæði greitt þjóðernissinnuðum íhaldsflokki er atkvæði greitt gegn mennsku og kærleika í garð hluta fólks á Íslandi. Það er ekki hægt að aðskilja það frá öðrum stefnumálum og þú verður að vera fullkomlega meðvitaður/meðvituð/meðvitað um það þegar þú leggur þitt atkvæði undir. Stundum er betra að skila auðu.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu auglýst laust til umsóknar
Innlent

Embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu auglýst laust til umsóknar

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu fer með stjórn lögregluliðs í stærsta lögregluumdæminu
„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“
Pólitík

„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“

Fundu rúma milljón í reiðufé í bíl
Innlent

Fundu rúma milljón í reiðufé í bíl

Mollý nú löglegt á Íslandi
Innlent

Mollý nú löglegt á Íslandi

Ofbeldisfullur lögreglumaður rekinn eftir rannsókn
Myndband
Heimur

Ofbeldisfullur lögreglumaður rekinn eftir rannsókn

Paola Márquez látin aðeins 30 ára gömul
Heimur

Paola Márquez látin aðeins 30 ára gömul

Hundar halda áfram að bíta fólk í Reykjavík
Innlent

Hundar halda áfram að bíta fólk í Reykjavík

Bjarndýr réðst á fólk inn í verksmiðju
Heimur

Bjarndýr réðst á fólk inn í verksmiðju

Innkalla hættulegar bílstólafestingar
Innlent

Innkalla hættulegar bílstólafestingar

Útlendingar mættu ekki fyrir dóm
Innlent

Útlendingar mættu ekki fyrir dóm

Draumaeinbýli í miðbænum til sölu
Myndir
Fólk

Draumaeinbýli í miðbænum til sölu

Pólitík

„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“
Pólitík

„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“

Brynjar Níelsson opnar sig um eigin vinnumáta
„Ég tel að þessar breytingar verði til hagsbóta fyrir lögreglu“
Pólitík

„Ég tel að þessar breytingar verði til hagsbóta fyrir lögreglu“

Inga farin í veikindaleyfi
Pólitík

Inga farin í veikindaleyfi

Kamilla gagnrýnir niðurskurð á Þjóðarbókhlöðunni
Pólitík

Kamilla gagnrýnir niðurskurð á Þjóðarbókhlöðunni

Segir Morgunblaðið vera „málgagn hins neikvæða nöldurs”
Pólitík

Segir Morgunblaðið vera „málgagn hins neikvæða nöldurs”

Gylfi Ólafsson nýr bæjarstjóri Ísafjarðar
Pólitík

Gylfi Ólafsson nýr bæjarstjóri Ísafjarðar

Loka auglýsingu