Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Sýknaður eftir kynferðisleg Snapchat-samskipti við 14 ára stúlku

"Kann mjöög vel á snipin, hvenær og hvernig putt­arnir fara inn"

Héraðsdómur Reykjavíkur
Hér­aðs­dómur Reykja­víkur Mynd: BHJ

Karl­maður hefur verið sýkn­aður í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur af ákæru um kyn­ferð­is­brot gegn 14 ára stúlku. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa sent stúlkunni kyn­ferð­is­leg skila­boð í gegnum Snapchat á tíma­bil­inu frá febr­úar til maí 2023 og fyrir að hafa mælt sér mót við hana í þeim til­gangi að hafa við hana kyn­ferð­is­mök.

Ekki var ágrein­ingur um að mað­ur­inn hefði átt í sam­skiptum af kyn­ferð­is­legum toga við stúlk­una. Ágrein­ing­ur­inn laut hins vegar meðal ann­ars að því hvort hann hefði vitað hversu gömul hún var.

Stúlkan greindi lög­reglu frá því að mað­ur­inn hefði sent henni myndir af sér. Á sumar mynd­anna var skrif­aður texti með lýs­ingum á kyn­ferð­is­legum athöfnum, svo sem "Hvernig eg kyssi þig, stryk þer, held fast i hári, strýk lær­unum og gríp í þau, snerti þig utan frá, verður blaut í gegn áður en eg tek þig ur g strengnum.", "Kann mjöög vel á snipin, hvenær og hvernig putt­arnir fara inn og hreyf­ing­arnar/Læt þig halda i mig a meðan, en ekki runka, bara svo þu finnir fyrir mer harðna yfir þer blotna og stynja". Einnig var texti með skírskot­unum til pen­inga "Búa til svona cash rúm eins og í wolf of wallst" og mynd af húð­flúruðum karl­manni liggj­andi í rúmi með pen­inga­seðla sér við hlið. Ein mynd­anna með húð­flúraðri öxl inni­hélt text­ann "Svo næst sæki eg þig a i8 til að halla þer fram á hoodið"

Þá hefði hann óskað eftir myndum frá henni, viljað hitta hana og meðal ann­ars boðið henni á rúnt­inn. Þau hitt­ust þó aldrei.

Maðurinn neit­aði því að hafa vitað að stúlkan væri 14 ára þegar sam­skiptin áttu sér stað. Hann sagð­ist hafa talið hana vera 18 eða 19 ára og að hann hefði lokað á sam­skiptin þegar honum var greint frá raun­veru­legum aldri hennar.

Dómurinn taldi ákæru­valdið ekki hafa sýnt fram á, svo hafið væri yfir skyn­sam­legan vafa, að mað­ur­inn hefði vitað um aldur stúlkunnar.

Við sönn­un­ar­matið var meðal ann­ars horft til ósam­ræmis í fram­burði stúlkunnar og vin­konu hennar um það hvenær og hvernig mað­ur­inum hefði verið greint frá aldr­inum. Stúlkan sagð­ist hafa skrifað að hún væri fædd árið 2008 en vin­konan sagð­ist hafa séð skila­boð þar sem stóð að hún væri 14 ára. Umrædd skila­boð voru ekki meðal þeirra gagna sem afhent voru lög­reglu.

Dómurinn tók einnig til skoð­unar hvort mað­ur­inn hefði sýnt af sér sak­næmt gáleysi með því að ganga ekki úr skugga um aldur stúlkunnar. Ekki var talið sannað að svo hefði verið. Stúlkan hafði ekki sent honum mynd af and­liti sínu og dóm­ur­inn taldi sam­skiptin í heild ekki hafa gefið mann­inum sér­stakt til­efni til að ætla að hún væri yngri en hann taldi.

Þá taldi dóm­ur­inn ekki sannað að mað­ur­inn hefði mælt sér mót við stúlk­una í þeim til­gangi að eiga við hana kyn­ferð­is­mök, þótt hann hefði gefið í skyn að þau kynnu að hitt­ast og lýst kyn­ferð­is­legum fantasíum í því sam­hengi.

Maðurinn var því sýkn­aður af öllum kröfum ákæru­valds­ins. Miska­bóta­kröfu stúlkunnar, að fjár­hæð 1,5 millj­ónir króna, var vísað frá dómi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum