1
Peningar

Japis enn og aftur gjaldþrota

2
Innlent

Mollý nú löglegt á Íslandi

3
Minning

Margrét Jónsdóttir er fallin frá

4
Pólitík

„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“

5
Heimur

Paola Márquez látin aðeins 30 ára gömul

6
Innlent

Fundu rúma milljón í reiðufé í bíl

7
Heimur

Ferðamaður lést á Kanarí

8
Heimur

Matt Brown látinn aðeins 43 ára gamall

9
Fólk

Draumaeinbýli í miðbænum til sölu

10
Innlent

Innkalla hættulegar bílstólafestingar

Til baka

„Þetta með kreditkort borgarstjóra skiptir Reykvíkinga ekki rassgat máli“

Fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðismanna var ákveðin í umræðu um komandi kosningar

Ragnheiður Ríkharðsdóttir
Ragnheiður RíkharðsdóttirEr fyrrum Alþingismaður.
Mynd: Bragi Þór Jósefsson/Alþingi

Ragnheiður Ríkharðsdóttir, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins og bæjarstjóri Mosfellsbæjar, gagnrýndi í Silfri Egils í gær þann tón sem einkennt hefur pólitíska umræðu að undanförnu og segir miður að stjórnmál snúist í auknum mæli um að ráðast að pólitískum andstæðingum í stað þess að ræða málefni af yfirvegun og ábyrgð.

Bæjarstjórinn fyrrverandi segir mikilvægt að fólk geti rætt stjórnmál út frá eigin gildum og markmiðum með málefnalegum hætti. Að hennar mati sé of algengt að farið sé „í manninn en ekki boltann“ í opinberri umræðu.

Ragnheiður kallar eftir aukinni umræðu um raunveruleg verkefni stjórnmálanna og vill að kjósendur fái skýr svör um hvað frambjóðendur hyggist gera nái þeir kjöri og hvaða mál þeir ætli að leggja áherslu á.

Hún bendir jafnframt á að íbúar hafi mestar áhyggjur af grunnþjónustu sveitarfélaga, þar á meðal grunnskólum, leikskólum og annarri þjónustu sem snerti daglegt líf fólks. „Það þarf að ræða það sem skiptir máli og skiptir íbúa sveitarfélaganna máli. Þetta með kreditkort borgarstjóra skiptir Reykvíkinga ekki rassgat máli.“

Þá leggur hún áherslu á ábyrgð í orðræðu stjórnmálamanna og segir mikilvægt að rætt sé um bæði einstaklinga og málefni af virðingu. Hún telur nauðsynlegt að nýir fulltrúar í Reykjavíkurborg nálgist verkefni sín af málefnalegum hætti og leggi fram skýra sýn á hvernig þeir hyggist bæta borgina.

Að sögn Ragnheiðar er það einna óþægilegast í pólitík þegar stjórnmálamenn stilla sér upp sem þeim einum sem búi yfir réttum lausnum á meðan aðrir séu gerðir lítils virði.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu auglýst laust til umsóknar
Innlent

Embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu auglýst laust til umsóknar

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu fer með stjórn lögregluliðs í stærsta lögregluumdæminu
„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“
Pólitík

„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“

Fundu rúma milljón í reiðufé í bíl
Innlent

Fundu rúma milljón í reiðufé í bíl

Mollý nú löglegt á Íslandi
Innlent

Mollý nú löglegt á Íslandi

Ofbeldisfullur lögreglumaður rekinn eftir rannsókn
Myndband
Heimur

Ofbeldisfullur lögreglumaður rekinn eftir rannsókn

Paola Márquez látin aðeins 30 ára gömul
Heimur

Paola Márquez látin aðeins 30 ára gömul

Hundar halda áfram að bíta fólk í Reykjavík
Innlent

Hundar halda áfram að bíta fólk í Reykjavík

Bjarndýr réðst á fólk inn í verksmiðju
Heimur

Bjarndýr réðst á fólk inn í verksmiðju

Innkalla hættulegar bílstólafestingar
Innlent

Innkalla hættulegar bílstólafestingar

Útlendingar mættu ekki fyrir dóm
Innlent

Útlendingar mættu ekki fyrir dóm

Draumaeinbýli í miðbænum til sölu
Myndir
Fólk

Draumaeinbýli í miðbænum til sölu

Pólitík

„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“
Pólitík

„Ég þurfti að samþykkja hana á sínum tíma með æluna í hálsinum“

Brynjar Níelsson opnar sig um eigin vinnumáta
„Ég tel að þessar breytingar verði til hagsbóta fyrir lögreglu“
Pólitík

„Ég tel að þessar breytingar verði til hagsbóta fyrir lögreglu“

Inga farin í veikindaleyfi
Pólitík

Inga farin í veikindaleyfi

Kamilla gagnrýnir niðurskurð á Þjóðarbókhlöðunni
Pólitík

Kamilla gagnrýnir niðurskurð á Þjóðarbókhlöðunni

Segir Morgunblaðið vera „málgagn hins neikvæða nöldurs”
Pólitík

Segir Morgunblaðið vera „málgagn hins neikvæða nöldurs”

Gylfi Ólafsson nýr bæjarstjóri Ísafjarðar
Pólitík

Gylfi Ólafsson nýr bæjarstjóri Ísafjarðar

Loka auglýsingu