1
Innlent

Ók á 193 kílómetra hraða og farþegi hlaut alvarlegan heilaskaða

2
Fólk

Selja friðlýst einbýli með stórkostlegu útsýni

3
Innlent

Hvetur fólk til að sniðganga tónleika Azealia Banks í Reykjavík

4
Innlent

58 ára manni stefnt vegna milljónaskuldar við Arion

5
Heimur

72 ára langamma hóf óvenjulegan feril eftir starfslok

6
Innlent

Lífeyrissjóður verzlunarmanna breytir um nafn

7
Pólitík

Bangsafélagið, Keilusambandið og Transkirkjan meðal þeirra sem fengu ekkert

8
Fólk

DeLorean-tímavél rúllaði um götur Reykjavíkur

9
Heimur

Fyrrverandi ráðherra og frjálsíþróttakona meðal látinna á Spáni

10
Innlent

Þingmannssonur ákærður

Til baka

Þórdís Kristmundsdóttir er fallin frá

Kerti
Mynd: KinoMasterskaya/Shutterstock

Þórdís Kristmundsdóttir, fyrrverandi prófessor í lyfjafræði við Háskóla Íslands, lést fimmtudaginn 11. júní.

Greint er frá andláti hennar í Morgunblaðinu.

Þórdís fæddist 13. nóvember 1948 og lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1968. Hún lauk síðar meistaraprófi og doktorsprófi í lyfjafræði frá Háskólanum í Manchester og hóf störf við Háskóla Íslands árið 1979. Árið 1986 var hún skipuð prófessor í lyfjagerðarfræði og varð önnur konan sem hlaut prófessorsstöðu við skólann.

Rannsóknir hennar beindust meðal annars að þróun lyfjaforma sem byggðu á sýkladrepandi fitusýrum og mónóglýseríðum til að fyrirbyggja sýkingar og meðhöndla húð- og slímhimnusjúkdóma. Hún birti fjölmargar vísindagreinar og hélt fyrirlestra um rannsóknir sínar.

Þórdís gegndi jafnframt fjölmörgum trúnaðar- og félagsstörfum, meðal annars fyrir Lyfjafræðingafélag Íslands, Háskóla Íslands og Krabbameinsfélag Íslands. Árið 2018 hlaut hún gullmerki Lyfjafræðingafélags Íslands fyrir framlag sitt til fagstéttarinnar.

Þórdís lætur eftir sig eiginmann, tvær dætur og sex barnabörn.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Guðrún Birna Gísladóttir er látin
Minning

Guðrún Birna Gísladóttir er látin

Sögufrægt sýslumannssetur við sjóinn komið á sölu
Myndir
Fólk

Sögufrægt sýslumannssetur við sjóinn komið á sölu

Bandarísk stjórnvöld þrýsta á íslenskt fyrirtæki vegna gagnaleka
Innlent

Bandarísk stjórnvöld þrýsta á íslenskt fyrirtæki vegna gagnaleka

Sigmundur Davíð svarar fyrir fjarveru sína úr öllum atkvæðagreiðslum
Pólitík

Sigmundur Davíð svarar fyrir fjarveru sína úr öllum atkvæðagreiðslum

Ökumaður kærður og bíllinn dreginn af vettvangi
Innlent

Ökumaður kærður og bíllinn dreginn af vettvangi

Lífeyrissjóður verzlunarmanna breytir um nafn
Innlent

Lífeyrissjóður verzlunarmanna breytir um nafn

Ók á 193 kílómetra hraða og farþegi hlaut alvarlegan heilaskaða
Innlent

Ók á 193 kílómetra hraða og farþegi hlaut alvarlegan heilaskaða

Fyrrverandi ráðherra og frjálsíþróttakona meðal látinna á Spáni
Heimur

Fyrrverandi ráðherra og frjálsíþróttakona meðal látinna á Spáni

Hildur sökuð um að fara rangt með staðreyndir
Innlent

Hildur sökuð um að fara rangt með staðreyndir

Bandaríkin æfa viðbrögð við kjarnorkustríði
Heimur

Bandaríkin æfa viðbrögð við kjarnorkustríði

72 ára langamma hóf óvenjulegan feril eftir starfslok
Heimur

72 ára langamma hóf óvenjulegan feril eftir starfslok

Leynilegt kínverskt geimfar sést á áður óbirtri gervihnattamynd
Heimur

Leynilegt kínverskt geimfar sést á áður óbirtri gervihnattamynd

Minning

Guðrún Birna Gísladóttir er látin
Minning

Guðrún Birna Gísladóttir er látin

Arnþór Örlygsson er fallinn frá
Minning

Arnþór Örlygsson er fallinn frá

Björgvin Birgisson er fallinn frá
Minning

Björgvin Birgisson er fallinn frá

Steingrímur Ingi Björnsson fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu látinn
Minning

Steingrímur Ingi Björnsson fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu látinn

Sigurlaug Guðmundsdóttir Rósinkranz er fallin frá
Minning

Sigurlaug Guðmundsdóttir Rósinkranz er fallin frá

Áslaug Arna kveður ömmu sína
Minning

Áslaug Arna kveður ömmu sína

Loka auglýsingu