1
Fólk

Einstök paradís úti á landi komin á sölu

2
Innlent

Íhugar að fara í mál við Sigfús

3
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

4
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

5
Minning

Björgvin Birgisson er fallinn frá

6
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

7
Skoðun

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

8
Innlent

Draumur Hannesar rættist ekki í Brasilíu

9
Innlent

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir

10
Heimur

Segir dularfulla skepnu hafa náðst á myndavél í Mexíkó

Til baka

Tíu grísir drápust í innbroti hjá Stjörnugrís

„Mótmæli eiga aldrei að bitna á dýrunum sjálfum.“

Lögreglubíll
Mynd: Víkingur

Stjörnugrís á Kjalarnesi varð fyrir innbroti aðfararnótt mánudagsins 11. maí og rannsakar lögreglan á höfuðborgarsvæðinu málið.

Við innbrotið var svínum sleppt lausum og drápust tíu smágrísir í kjölfarið. Þá þurfti einnig að aflífa einn grís sem hafði kjálkabrotnað.

Talið er að verknaðurinn hafi verið framinn undir formerkjum dýravelferðar.

Í tilkynningu frá Stjörnugrís, sem Vísir segir frá, kemur fram að brotist hafi verið inn í svínabú fyrirtækisins þar sem tvær hurðir voru brotnar upp og umfangsmiklar skemmdir unnar bæði á skrifstofuaðstöðu starfsfólks og inni í svínahúsunum.

Þar segir að innréttingar hafi verið rifnar upp, stíur opnaðar og hurðir skildar eftir opnar þannig að dýrin gengu laus bæði inni í húsunum og úti á túni.

Afleiðingarnar fyrir dýrin eru sagðar hafa verið mjög alvarlegar. Tíu smágrísir drápust í ringulreiðinni sem skapaðist og einn grís þurfti að aflífa vegna kjálkabrots. Þá hafi fjölmargar gyltur hlotið áverka, meðal annars orðið haltar og rispaðar, auk þess sem eitt fósturlát hafi þegar átt sér stað.

„Búast má við frekari afleiðingum á næstu dögum og vikum, meðal annars vegna streitu, mjólkurmissis hjá gyltum og mögulegra fleiri fósturláta,“ segir í tilkynningunni.

Fyrirtækið segir jafnframt að smitvörnum búsins hafi verið verulega raskað þar sem dýr úr mismunandi hópum blönduðust saman og sum þeirra komust út úr húsunum.

Málið hefur verið kært til Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og er nú til rannsóknar. Þá hefur Matvælastofnun og embætti yfirdýralæknis verið gert viðvart um atvikið.

Samkvæmt tilkynningunni benda bæði umfang og framkvæmd verknaðarins til þess að fleiri en einn hafi komið að innbrotinu. Þá þykja verksummerki gefa til kynna að verknaðurinn hafi verið framinn í nafni dýravelferðar, þrátt fyrir að hann hafi valdið dýrunum miklum þjáningum og tjóni.

„Þegar starfsfólk kom til vinnu um morguninn blasti við skelfileg sjón. Dýrin voru augljóslega í miklu uppnámi og í óreiðunni höfðu þau slasað bæði sig sjálf og hvert annað. Sérstaklega þungbært var að finna dauða grísi eftir nóttina,“ segir Geir Gunnar Geirsson, forstjóri fyrirtækisins.

Hann segir starfsfólkið hafa orðið fyrir miklu áfalli við að sjá bæði vinnustað sinn og dýrin í þessu ástandi og hafi því verið sent heim.

„Þetta er ekki aðeins töluvert eignatjón heldur fyrst og fremst mjög alvarlegt mál fyrir dýrin sjálf. Að ráðast inn að næturlagi, þegar dýrin eru í hvíld, valda hávaða, óreiðu og reka þau um húsin hafði veruleg áhrif á líðan þeirra og öryggi,“ segir hann.

Geir segir jafnframt að fyrirtækið hafi um nokkurt skeið unnið að undirbúningi framkvæmda sem eigi að bæta aðbúnað dýranna enn frekar, þó ákveðin mál hjá stjórnvöldum bíði enn úrlausnar.

Að lokum skorar hann á þá sem stóðu að verknaðinum að gefa sig fram.

„Það er eitt að mótmæla eða hafa skoðanir á búrekstri, en allt annað að valda dýrum þjáningu, meiðslum og dauða, raska ró þeirra og eyðileggja umhverfi þeirra í nafni málstaðar síns. Ég tel að allir hljóti að fordæma verknað af þessu tagi. Mótmæli eiga aldrei að bitna á dýrunum sjálfum.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Ísland getur ekki bannað ísraelskum ferðamönnum komu að eigin frumkvæði
Innlent

Ísland getur ekki bannað ísraelskum ferðamönnum komu að eigin frumkvæði

„Sú ákvörðun er hjá framkvæmdastjórn ESB sem hefur ekki beitt þeirri heimild gegn Ísrael“
Guðmundur Andri ætlaði á svið en örlögin höfðu önnur plön
Fólk

Guðmundur Andri ætlaði á svið en örlögin höfðu önnur plön

Nú er komið að þér, Krist­rún!
Skoðun

Svanur Már Snorrason

Nú er komið að þér, Krist­rún!

Leyniskjöl Pentagon afhjúpa frásagnir af dularfullum verum í Utah
Heimur

Leyniskjöl Pentagon afhjúpa frásagnir af dularfullum verum í Utah

Um sjötíu á sakamannabekk eftir milljónaránið
Innlent

Um sjötíu á sakamannabekk eftir milljónaránið

Lögreglan kölluð til vegna þriggja ára fótboltasnillings
Myndband
Sport

Lögreglan kölluð til vegna þriggja ára fótboltasnillings

„Skoða þarf aðrar leiðir en að drepa álftir“
Innlent

„Skoða þarf aðrar leiðir en að drepa álftir“

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir
Innlent

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir

Sagðist tilbúinn að játa morð gegn því að fá ostasteikarsamloku
Myndband
Heimur

Sagðist tilbúinn að játa morð gegn því að fá ostasteikarsamloku

Móðir flúði meint mygluhús með börnin en þarf að borga
Innlent

Móðir flúði meint mygluhús með börnin en þarf að borga

Vopnað lögreglulið kallað út vegna hótana í Bærum
Heimur

Vopnað lögreglulið kallað út vegna hótana í Bærum

Límdu yfir hraðamyndavél lögreglu
Landið

Límdu yfir hraðamyndavél lögreglu

„Ég nenni ekki enn einni einkavæðingu á innviðum“
Innlent

„Ég nenni ekki enn einni einkavæðingu á innviðum“

Innlent

Ísland getur ekki bannað ísraelskum ferðamönnum komu að eigin frumkvæði
Innlent

Ísland getur ekki bannað ísraelskum ferðamönnum komu að eigin frumkvæði

„Sú ákvörðun er hjá framkvæmdastjórn ESB sem hefur ekki beitt þeirri heimild gegn Ísrael“
„Ég nenni ekki enn einni einkavæðingu á innviðum“
Innlent

„Ég nenni ekki enn einni einkavæðingu á innviðum“

Um sjötíu á sakamannabekk eftir milljónaránið
Innlent

Um sjötíu á sakamannabekk eftir milljónaránið

„Skoða þarf aðrar leiðir en að drepa álftir“
Innlent

„Skoða þarf aðrar leiðir en að drepa álftir“

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir
Innlent

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir

Móðir flúði meint mygluhús með börnin en þarf að borga
Innlent

Móðir flúði meint mygluhús með börnin en þarf að borga

Loka auglýsingu