1
Innlent

Heimir Örn aftur dæmdur fyrir umsáturseinelti

2
Innlent

Eigendur Sóltúns handteknir

3
Innlent

Alnafni ráðherra dæmdur í fangelsi

4
Innlent

Auglýsa eftir sjö prestum

5
Fólk

Halla stórglæsileg í afmælisveislu

6
Innlent

Líkir Sönnu við Zohran Mamdani

7
Landið

Ók rútu við Landmannalaugar án réttinda

8
Fólk

Óska eftir tilboðum í stórkostlegt einbýli við tennisvöll

9
Innlent

Bílvelta í Mosfellsbæ

10
Fólk

Gríðarstór gersemi í Garðabæ til sölu

Til baka

Skírnir Garðarsson

Um hótanir og lágmenningu

adalmynd-mynd-kristinn-magnusson-stundin-20161221_st_skirnir_065

Almannaréttur er sá réttur sem almenningi er áskilinn í lögum til frjálsra afnota af landi og landsgæðum, til farar um land og vötn. 

Þannig eru nú lög um náttúruvernd og almannahagsmuni borgaranna, sett til að tryggja rétt almennings til frjálsra ferða án þess að eiga á hættu að fá á sig hótanir um lögregluaðgerðir.

Ef hins vegar sveitastjórar, oddvitar eða aðrir heimamenn taka þátt í að hamla og tálma almenningi ferðir um landið er hætta á ferðum.

Svoleiðis hegðun hlýtur að teljast brot á almennum hegningarlögum, 225 grein, (brot gegn frjálsræði manna). 

Þetta hlýtur einnig að teljast brot á lögum nr. 60, 10. apríl 2013 (um almannarétt og náttúruvernd).

Undanfarin ár hafa heilu jarðirnar, oft með vatns- eða veiðiréttindum, komist í eigu fjárfesta, útlendra auðmanna, eða braskara. Þá eru oftar en ekki settir upp hengilásar, skilti og jafnvel öryggismyndavélar, til þess eins að fæla sauðsvartan almenning frá, því slíku liði er illa við að borgarar landsins séu að þvælast um.

Sums staðar hafa heimamenn, jafnvel sveitarstjórarnir sjálfir, að ekki sé talað um oddvitana, sem eru nú meira og minna úti að aka í almennum stjórnsýslureglum, tekið þátt í þesu með undirlægjuhátti, því ekki má styggja þá sem ríkir eru af peningum eða jarðnæði, það er gömul saga og ný.

Einni undantekningu man ég þó eftir þegar sveitarstjóri Mýrdalshrepps lét hafa eftir sér að hann gæti ómögulega borið virðingu fyrir útlendum auðmanni sem keypt hafði upp heila jörð í Mýrdalnum og hafði sá formlega óskað eftir því að fá að hafa hana í friði, en á landi auðjöfursins eru mikil vatns- og veiðiréttindi. Rök sveitarstjórans voru skýr, "hvernig á maður að bera virðingu fyrir einhverjum sem maður hefur aldrei séð?.

Sveitarstjóri Mýrdalshrepps á þakkir inni hjá mér og öðrum vegna  þess arna. Sömu sögu er ekki að segja um oddvita tveggja sveita fyrir vestan norðan, nefnilega Dalabyggðar og Langanesbyggðar, en báðir hafa sýnd af sér hreinan undirlæjuhátt gagnvart frekjudöllum sem hafa horn í síðu almennings.

Rök oddvitanna eru „að braskararnir verði í skjóli auðs síns að hafa sína hentisemi" og að þeir „verði að fá að hafa sínar skoðanir í friði", eins og oddviti Langanesbyggðar orðar það snilldarlega í skilaboðum til undirritaðs nýverið. Forsaga þess máls er að mér bárust nýverið hótanir frá stýrimanni hjá Eimskip, sem virðist hafa fjárfest í jörð í Langanesbyggð, hafði stýrimaður uppi stór orð um að hann hefði lögregluna með sér í liði og vei þeim sem myndi tylla tá á spildu hans nyrðra.

Svona lagað gengur ekki og má segja að þarna sé um að ræða algert rugl, en svona pótindátar eru náttúrulega bara að sýna almenningi köldu hliðina.

Ég hvet almenning til að kynna sér réttindi sín og fara að dæmi sveitarstjóra Mýrdalshrepps, sem reyndar er einhver sá óhræddasti og beinskeyttasti sveitarstjórnarmaður sem ég veit að nefna.

Góða ferð um lönd og strönd góðir hálsar.

Skírnir Garðarsson

Höfundur er prestur og áhugamaður um útivist, (þó ekki strangar fjallgöngur.)

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Inga Dögg Kristinsdóttir er fallin frá
Minning

Inga Dögg Kristinsdóttir er fallin frá

Eigendur Sóltúns handteknir
Innlent

Eigendur Sóltúns handteknir

Ferðamenn á Kanarí geta andað léttar
Heimur

Ferðamenn á Kanarí geta andað léttar

Hjólreiðamaður hryggbrotinn eftir að ekið var á hann
Myndband
Heimur

Hjólreiðamaður hryggbrotinn eftir að ekið var á hann

Trump segist hafa gert „þjóðsöng samkynhneigðra“ aftur vinsælan
Myndband
Heimur

Trump segist hafa gert „þjóðsöng samkynhneigðra“ aftur vinsælan

Asískir karlmenn dæmdir fyrir skjalafals
Innlent

Asískir karlmenn dæmdir fyrir skjalafals

Gríðarstór gersemi í Garðabæ til sölu
Myndir
Fólk

Gríðarstór gersemi í Garðabæ til sölu

Fluttur á bráðamóttöku eftir slys í Hafnarfirði
Innlent

Fluttur á bráðamóttöku eftir slys í Hafnarfirði

Einn handtekinn eftir að hafa sett rottueitur í barnamat
Heimur

Einn handtekinn eftir að hafa sett rottueitur í barnamat

Alnafni ráðherra dæmdur í fangelsi
Innlent

Alnafni ráðherra dæmdur í fangelsi

Kieran Smyth ákærður fyrir morðtilraun á Norður-Írlandi
Heimur

Kieran Smyth ákærður fyrir morðtilraun á Norður-Írlandi

Skoðun

Eflum og byggjum upp Eyrina
Skoðun

Darri Rafn Hólmarsson

Eflum og byggjum upp Eyrina

Hulan fellur
Skoðun

Ragnar Erling Hermannsson

Hulan fellur

Ég er kominn heim
Skoðun

Ragnar Erling Hermannsson

Ég er kominn heim

Burt með dýraeftirlit hjá Matvælastofnun
Skoðun

Magnús Georg Jensen Margeirsson

Burt með dýraeftirlit hjá Matvælastofnun

Kæra borgarstýra
Skoðun

Ragnar Erling Hermannsson

Kæra borgarstýra

Þegar leyndardómar Evrópu komu til Íslands
Skoðun

Ragnar Erling Hermannsson

Þegar leyndardómar Evrópu komu til Íslands

Loka auglýsingu