1
Fólk

Einstök paradís úti á landi komin á sölu

2
Innlent

Íhugar að fara í mál við Sigfús

3
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

4
Minning

Björgvin Birgisson er fallinn frá

5
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

6
Innlent

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir

7
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

8
Skoðun

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

9
Innlent

Draumur Hannesar rættist ekki í Brasilíu

10
Heimur

Flugmaður sá eitthvað á stærð við fjórar brauðristar á himni

Til baka

Viðkvæmir hvattir til að halda sig innandyra

Svifryksmengun nær yfir heilsuverndarmörkum í Reykjavík

Svifryk
Svifryk í borginniViðkvæmir eru beðnir um að halda sig innandyra
Mynd: Reykjavik.is

Styrkur svifryks (PM10) mældist hár á loftgæðamælistöðum í Reykjavík í morgun. Samkvæmt mælingum var gildi PM10 klukkan 12 við Grensásveg 93,4 míkrógrömm á rúmmetra, sem er nær tvöfalt yfir sólarhringsheilsuverndarmörkum sem eru 50 míkrógrömm á rúmmetra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Uppruni mengunarinnar er fyrst og fremst ryk frá umferð. Þar sem götur eru þurrar og vindur hægur þyrlast ryk auðveldlega upp og helst lengur á lofti. Rykbinding var framkvæmd aðfaranótt miðvikudags, en vegna veðuraðstæðna hefur hún ekki dugað til að halda mengun innan marka. Rykbinding er samvinnuverkefni Reykjavíkurborg og Vegagerðin.

Veðurspá gerir ráð fyrir áframhaldandi hægum vindi á morgun og því er hætta á frekari svifryksmengun. Lítil úrkoma er í kortunum fram yfir miðja næstu viku. Að sögn yfirvalda verður skoðað hvort grípa þurfi til frekari rykbindingar til að draga úr mengun.

Viðkvæmir hvattir til að forðast langa útivist

Fólk sem er viðkvæmt fyrir í öndunarfærum, aldraðir og börn eru hvött til að forðast útivist í lengri tíma og takmarka líkamlega áreynslu. Almenningur er jafnframt hvattur til að draga úr notkun einkabílsins þar sem því verður við komið, til dæmis með því að fresta óþarfa ferðum, nýta almenningssamgöngur, sameinast í bíla eða velja vistvænni samgöngumáta.

Fyrirtæki eru hvött til að hvetja starfsfólk til fjarvinnu á svifryksdögum ef mögulegt er og draga úr akstri eftir fremsta megni.

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum í borginni og mun senda frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef tilefni er til. Hægt er að fylgjast með styrk svifryks og annarra mengandi efna á vefnum loftgaedi.is, þar sem einnig má sjá kort yfir mælistaði víðs vegar um landið.

Svifryk skaðlegt heilsu

Svifryk er fínasta gerð rykagna sem kemst auðveldlega niður í öndunarfærin. Heilsuverndarmörk fyrir PM10 miðast við 50 míkrógrömm á rúmmetra á sólarhring. Helsti uppruni svifryks er uppspænt malbik, sót – einkum frá díselbruna – auk jarðvegsagna, salts, ösku og annarra smárra agna.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Daniel beið eftir pakka með ferðaútvarpi en fékk fangelsisdóm
Innlent

Daniel beið eftir pakka með ferðaútvarpi en fékk fangelsisdóm

Dómurinn taldi skýringar hans verulega ótrúverðugar
Ítrekað brotist inn í Bæjarins Beztu við BYKO
Myndir
Innlent

Ítrekað brotist inn í Bæjarins Beztu við BYKO

Sjö ára stúlka sem særðist í skotárás í skóla komin af gjörgæslu
Heimur

Sjö ára stúlka sem særðist í skotárás í skóla komin af gjörgæslu

Ísland getur ekki bannað ísraelskum ferðamönnum komu að eigin frumkvæði
Innlent

Ísland getur ekki bannað ísraelskum ferðamönnum komu að eigin frumkvæði

Guðmundur Andri ætlaði á svið en örlögin höfðu önnur plön
Fólk

Guðmundur Andri ætlaði á svið en örlögin höfðu önnur plön

Nú er komið að þér, Krist­rún!
Skoðun

Svanur Már Snorrason

Nú er komið að þér, Krist­rún!

Leyniskjöl Pentagon afhjúpa frásagnir af dularfullum verum í Utah
Heimur

Leyniskjöl Pentagon afhjúpa frásagnir af dularfullum verum í Utah

Um sjötíu á sakamannabekk eftir milljónaránið
Innlent

Um sjötíu á sakamannabekk eftir milljónaránið

Lögreglan kölluð til vegna þriggja ára fótboltasnillings
Myndband
Sport

Lögreglan kölluð til vegna þriggja ára fótboltasnillings

„Skoða þarf aðrar leiðir en að drepa álftir“
Innlent

„Skoða þarf aðrar leiðir en að drepa álftir“

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir
Innlent

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir

Sagðist tilbúinn að játa morð gegn því að fá ostasteikarsamloku
Myndband
Heimur

Sagðist tilbúinn að játa morð gegn því að fá ostasteikarsamloku

Innlent

Daniel beið eftir pakka með ferðaútvarpi en fékk fangelsisdóm
Innlent

Daniel beið eftir pakka með ferðaútvarpi en fékk fangelsisdóm

Dómurinn taldi skýringar hans verulega ótrúverðugar
Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir
Innlent

Köttur skildi eftir sig tjón upp á tæpar tvær milljónir

Ítrekað brotist inn í Bæjarins Beztu við BYKO
Myndir
Innlent

Ítrekað brotist inn í Bæjarins Beztu við BYKO

Ísland getur ekki bannað ísraelskum ferðamönnum komu að eigin frumkvæði
Innlent

Ísland getur ekki bannað ísraelskum ferðamönnum komu að eigin frumkvæði

Um sjötíu á sakamannabekk eftir milljónaránið
Innlent

Um sjötíu á sakamannabekk eftir milljónaránið

„Skoða þarf aðrar leiðir en að drepa álftir“
Innlent

„Skoða þarf aðrar leiðir en að drepa álftir“

Loka auglýsingu