1
Peningar

Helgi í Góu verður ríkari

2
Pólitík

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið

3
Innlent

Kom til Íslands til að sækja skítuga peninga

4
Heimur

Fékk veskið aftur 51 ári eftir að það týndist

5
Innlent

Móðir vill að horfinn sonur verði úrskurðaður látinn

6
Innlent

Stórfurðulegur þjófnaður á Suðurnesjum

7
Innlent

Stórfelldir fíkniefnainnflytjendur handteknir á Laugavegi

8
Fólk

Garðabæjardraumurinn til sölu með heitum og köldum potti

9
Innlent

Framkvæmdastjóri sýknaður af fjárdrætti eftir gagnrýni dómsins á rannsóknina

10
Innlent

Laxveiðiferðin í Þverá endaði fyrir dómi

Til baka

Vill skipta út allri borgarstjórn Reykjavíkur

„Það er komin mikil valdþreyta í Ráðhúsið“

Egill Helgason
Egill HelgasonEr einn þekktasti stjórnmálaskýrandi landsins.
Mynd: RÚV

Fjölmiðlamaðurinn og stjórnmálaskýrandinn Egill Helgason er orðinn þreyttur á núverandi borgarfulltrúum ef marka má nýjan pistil sem hann birti á samfélagsmiðlum. Þar telur hann að það sé lítill munurinn á flokkunum en borgin sé þjökuð af skrifræði.

„Ég hef ekki farið dult með þá skoðun að þurfi að skipta út í borgarstjórninni í Reykjavík og fá inn nýtt fólk,“ skrifar Egill um málið en tekur fram að honum sé eiginlega sama hvaðan fólkið komi því flokkarnir séu sammála um flesta hluti.

„Þetta tengist líka því að langstærstur hluti af fé borgarstjórnarinnar fer í fyrirfram ákveðin og að miklu leyti lögbundin verkefni,“ segir fjölmiðlamaðurinn og það sé fjarska lítill sjóður sem borgarfulltrúar hafi til að ráðstafa að vild.

„En það er komin mikil valdþreyta í Ráðhúsið, sama fólk situr þar ár út og ár inn í sama þrasinu,“ heldur hann áfram. „Borgin virðist býsna þjökuð af vaxandi skrifræði - það er held ég nauðsyn að einfalda kerfið. Að öllu óbreyttu óttast ég að borgarstjórnarkosningarnar í vor verði mjög harðar en að umræðan fyrir kosningarnar verði ekki að sama skapi frjó. Að því er lýtur að mínum áhugamálum finnst mér nauðsynlegt að fari fram einhvers konar uppgjör gagnvart skelfilegri öfugþróun í skipulagsmálum og byggingalist. Það er reyndar langt í frá bara bundið við Reykjavík - dæmin sjáum við víðar um höfuðborgarsvæðið.“

Þá hvetur hann borgar- og bæjarfulltrúa til að lesa nýjustu bók Andra Snæs Magnússonar en hún nefnist Jötunsteinn.

„Þess utan eiga borg, bæir og ríki hæglega að geta komið sér saman um aðgerðir í húsnæðismálum - sérstaklega fyrir ungt fólk og leigjendur. Og það þarf að endurskoða álagningu fasteignagjalda - þar verður ríkið líka að koma að. Gengur ekki að síhækkandi fasteignagjöld séu svo mikilvægur tekjustofn,“ skrifar Egill að lokum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Shape sendir frá sér nýtt lag eftir 24 ára hlé
Menning

Shape sendir frá sér nýtt lag eftir 24 ára hlé

„Við erum sennilega eitt af þessum böndum sem trúa því að þau eigi eitthvað eftir ósagt.“
Uppljóstrarinn sem afhjúpaði leyndarmál Manchester City sviptur vitnavernd
Heimur

Uppljóstrarinn sem afhjúpaði leyndarmál Manchester City sviptur vitnavernd

Daði Már hafnar ósætti við fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar
Pólitík

Daði Már hafnar ósætti við fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar

Dularfull innbrot á heimilum finnskra þingmanna
Heimur

Dularfull innbrot á heimilum finnskra þingmanna

Merkúríus gæti verið að skreppa saman hraðar en áður var talið
Heimur

Merkúríus gæti verið að skreppa saman hraðar en áður var talið

Hundruðum leikfanga rigndi yfir knattspyrnuvöll í Tyrklandi
Myndband
Sport

Hundruðum leikfanga rigndi yfir knattspyrnuvöll í Tyrklandi

Stórfurðulegur þjófnaður á Suðurnesjum
Innlent

Stórfurðulegur þjófnaður á Suðurnesjum

Maó leitar að sögum í hversdagsleikanum
Menning

Maó leitar að sögum í hversdagsleikanum

Dansaði samfellt í tæpa 177 klukkustundir
Myndband
Heimur

Dansaði samfellt í tæpa 177 klukkustundir

Foreldrar börðust gegn barnavernd og höfðu betur
Innlent

Foreldrar börðust gegn barnavernd og höfðu betur

Keypti bandaríska ofurtækni og smyglaði henni til Kína
Heimur

Keypti bandaríska ofurtækni og smyglaði henni til Kína

Kom til Íslands til að sækja skítuga peninga
Innlent

Kom til Íslands til að sækja skítuga peninga

Nýjar upplýsingar um misheppnaða aftöku Christu Pike
Heimur

Nýjar upplýsingar um misheppnaða aftöku Christu Pike

Pólitík

Daði Már hafnar ósætti við fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar
Pólitík

Daði Már hafnar ósætti við fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar

Vísar á bug sölu á Landsvirkjun
Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum
Pólitík

Eyjólfur herðir tökin á leigubílunum

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið
Pólitík

Lætur stjórnarandstöðuna hafa það óþvegið

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar
Pólitík

Vill gera ríkari kröfur til útlendinga sem vilja búa hér til frambúðar

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu
Pólitík

Hefur áhyggjur af fylgi flokka sem sækja í átt að öfga hægrinu

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“
Pólitík

Össur líkir Hildi Sverrisdóttur við „prinsessuna á bauninni“

Loka auglýsingu