Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Andri Freyr lærði að hafa trú á sjálfum sér: „Maður þarf rétt hugarfar og þrautseigju“

Andri Freyr leikur eitt af aðalhlutverkunum í Eftirleikir
Andri Freyr leikur eitt af aðal­hlut­verk­unum í Eft­ir­leikir

Ný íslensk kvik­mynd byrj­aði fyrir stuttu í sýn­ingu hér á landi en það er spennu­myndin Eft­ir­leikir en hún fjallar um víta­hringi ofbeldis, hvernig það fær að krauma undir niðri og brýst út ef það fær að við­gang­ast.

Mannlíf ræddi við Andra Frey Sig­ur­páls­son, einn af aðal­leik­urum mynd­ar­innar, um Eft­ir­leiki en hann er einnig einn af fram­leið­endum hennar.

„Það er tvennt,“ sagði Andri þegar hann var spurður um hverju hann væri stolt­astur af varð­andi mynd­ina. „Í fyrsta lagi hversu vel kvik­mynda­gerðin á bak við hana heppn­að­ist. Við höfum sýnt hana á kvik­mynda­há­tíðum og verið með spurt og svarað eftir á og þar var end­ur­tekið þema að fólk hélt að við hefðum fengið styrki og gert hana fyrir tugi ef ekki hund­rað millj­ónir, eins og kvik­myndir kosta vana­lega. En svo er ekki raunin, ég held að hún hafi kostað sirka fjórar millj­ónir. Það sýnir líka hæfi­leika leik­stjór­ans, Ólafs Árheims, en hann sá einn um alla eft­ir­vinnslu mynd­ar­innar. Hitt er frammi­staða leik­ar­ana. Við lögðum mikla áherslu á leik­list­ar­hlið­ina og miðað við fyrstu við­brögð hefur það skilað sér. Öll hlut­verkin eru krefj­andi, enda erum við að sjá þessar per­sónur á stærstu örlaga­stundu lífs þeirra, og að sjá hvað Vivian og Jói G náðu að gera við þessi hlut­verk er ótrú­legt.“

Stilla úr mynd­inni

Nú hafa ekki margar íslenskar spennu­myndir verið gerðar, hvað kemur til að þið vilduð gera þannig mynd?

„Fyrst og fremst var pæl­ingin að gera mynd sem við sjálfir vildum sjá. Við pældum reyndar ekki mikið í hvaða teg­und af mynd við værum að gera, við vorum bara með þessa sögu og þessa per­sónur, það var svo út frá því sem við átt­uðum okkur á að þetta væri „þriller.“ Við höfum líka fengið að heyra það frá mörgum að þeim finnst þetta ekki beint vera hefð­bund­inn „íslensk“ mynd. En hvað það er við hana sem gerir upp­lifun­ina þannig get ég ekki alveg sett putt­ann á.“

Tók átta ár að gera myndina

„Ég held að það sem ég lærði mest er hvað þraut­seigja er mik­il­væg,“ sagði Andri um hvað hann lærði mest við gerð mynd­ar­innar. „Við byrj­uðum á þessu ferli árið 2016, nýút­skrif­aðir og metn­að­ar­fullir að mæta inn í brans­ann með látum. Helsti vegg­ur­inn sem mætti okkur var að það er ekki sjálf­gefið að fá pláss innan brans­ans, það þarf að vinna fyrir því. Að mörgu leyti var það grunn­ur­inn að mynd­inni, svarið við spurn­ing­unni um hvað getum við gert til að sýna að við eigum heima hérna. En það tók átta ár og verk­efnið fór oft upp í hillu á þeim tíma, líka leik­list­ar­draum­ur­inn að ein­hverju leyti þar sem þetta var yfir mjög langt tíma­bil eina leik­list­ar­tengda verk­efnið sem ég var að taka þátt í. En mik­il­væg­ustu lex­í­urnar leyn­ast einmitt á þessum erf­iðu tíma­bilum, maður þarf rétt hug­ar­far og þraut­seigju, láta þau styrkja sig í stað þess að brjóta niður. En það sem ég lærði mest er lík­leg­ast að hafa meiri trú á sjálfum mér.“

En hvað tekur svo við hjá Andra?

„Næsta skref er að láta reyna af meiri krafti á leik­list­ina. Svo á ég ein­hverjar 20 ein­ingar eftir af meist­ara­námi í rit­list sem ég stefni á að klára og samnýta þá kunn­áttu við leik­list­ina og halda áfram að búa til og skapa alls­konar skemmti­legt.“

Hægt er að sjá stiklu fyrir mynd­ina hér fyrir neðan en mynd sjálf er sýnd í Laug­ar­ás­bíó.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Heimur

Loch Ness-skrímslið sést oftar í ár en í fyrra

Innlent

Innlent

Katrín varar við alvar­legri ógn gervi­greindar

„En hvað með almenna borgara - finnst þeim skipta máli hver eða hvað er á bak við verkin?“
Innlent

Leik­fanga­byssu­menn­irnir verða ákærðir

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Innlent

Grind­verk í Garðabæ varð fyrir barð­inu á óboðnum gesti

Innlent

Átti að mæta á lög­reglu­stöð áður en dag­ur­inn var lið­inn