Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Bjarni vill selja Íslandspóst þegar ríkið hefur komið rekstrinum í lag

„Þegar búið er að koma lagaum­gjörð um þessa starf­semi í betra horf, eins og við höfum verið að gera núna, þá sé ekk­ert því til fyr­ir­stöðu að ríkið selji þennan rekstur,“ segir Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, í við­tali við Frétta­blaðið.

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra. Mynd/ Bára Huld Beck
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra. Mynd/ Bára Huld Beck

„Hins vegar held ég að það hafi ekki verið aðstæður til þess und­an­farin miss­eri eða ár að hefja und­ir­bún­ing að slíkri sölu vegna þess hvernig rekst­ur­inn hefur gengið.” Rík­is­end­ur­skoð­andi birti á dög­unum úttekt á rekstri Íslands­pósts ohf. Úttektin var fram­kvæmd að beiðni fjár­laga­nefndar Alþingis.

Þar kemur fram að upp­safnað tap Íslands­póst milli 2013-2018 sé 246 millj­ónir króna. Alþingi veitti félag­inu lán í sept­em­ber 2018 til að bregð­ast við greiðslu­vand­anum. Alls 500 millj­ónir króna á 6,2% vöxtum til eins árs.

Fjár­hags­vandi Íslands­pósts ohf. stafar meðal ann­ars af því að dreif­ing pakka­send­inga frá útlöndum hefur reynst félag­inu kostn­að­ar­söm. Þá hefur sam­dráttur í bréf­send­ingum ekki feng­ist að fullu bættur með hækkun á gjald­skrá. Heild­ar­fjár­fest­ingar félags­ins á árinu 2018 voru of miklar miðað við greiðslu­getu þess.

„Okkur er það ljóst núna að til dæmis alþjón­ustu­kvöðin sem hvílt hefur á fyr­ir­tæk­inu hefur ekki verið nógu vel fjár­mögnuð sem birt­ist meðal ann­ars í nýlegum úrskurði Póst- og fjar­skipta­stofn­unar,“ sagði Bjarni. Rík­is­end­ur­skoð­andi telur að félagið megi ganga lengra í hag­ræð­ingu í starf­semi sinni. Þá megi sam­eina betur dreifi­kerfi bréfa og pakka í þétt­býli í stað þess að reka þar tvö­falt dreifi­kerfi.

„Það er hluti af þeirri þjón­ustu sem ber sig ekki á sam­keppn­is­grund­velli og þá verður ríkið að gera þjón­ustu­samn­ing um það og í þeim þjón­ustu­samn­ingi getum við ákveðið þjón­ustu­stigið og verð­lagn­ingu. En að öðru leyti eigi þetta fyr­ir­tæki bara að vera að keppa á sam­keppn­is­grund­velli.“

Svan­hildur Hólm Vals­dóttir, aðstoð­ar­maður fjár­mála­ráð­herra, sat í stjórn Íslands­pósts frá 2014 þar til nú í vor og var lengst af vara­for­maður stjórnar. Þrátt fyrir það kemur fram í skýrslu rík­is­end­ur­skoð­unar að fjár­mála­ráðu­neytið hafi ítrekað kallað eftir grein­ingum og upp­lýs­ingum um mál­efni Íslands­pósts án þess að grein­ing­ar­vinnan skil­aði sér til ráðu­neyt­is­ins.

Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, bendir á í grein sem hún birti í Mog­un­blað­inu á dög­unum að stjórn Íslands­pósts hafi dregið að veita Rík­is­end­ur­skoðun svör við fyr­ir­spurnum og bein­línis óskað eftir því að Rík­is­end­ur­skoðun haldi upp­lýs­ingum frá Alþingi. „Skýrsla rík­is­end­ur­skoð­unar er væg­ast sagt svört og því má velta fyr­ir sér hvort fé­lagið sé heppi­legt til samn­inga­gerðar við ríkið,“ skrifar Helga Vala. „Öllum var kunn­ugt um bága fjár­hags­stöðu fé­lags­ins enda hafði Alþingi sam­þykkt að lána hinu ógreiðslu­færa op­in­bera hluta­fé­lagi 1.500 millj­ón­ir króna á fjár­lög­um þessa árs til að fé­lagið gæti sinnt sinni grunn­skyldu, að koma bréf­um og böggl­um milli húsa. Alþingi var hins veg­ar ekki kunn­ugt um hvernig á því stóð að fé­lagið stóð svona illa né var það upp­lýst um hver aðdrag­andi þess var utan ein­staka skýr­ing­ar stjórn­enda. Þá var einnig óljóst hver bar ábyrgð, hvað stjórn fé­lags­ins vissi um ástandið og hvað ráðu­neyt­in tvö sem með mál­efni fé­lags­ins fara, fjár­mála­ráðu­neytið og sam­göngu­ráðu­neytið vissu um stöðu fé­lags­ins. Áður en að kynn­ingu skýrsl­unn­ar kom viss­um við held­ur ekki að stjórn­end­ur fé­lags­ins hefðu dregið það mjög að veita Rík­is­end­ur­skoðun umbeðnar upp­lýs­ing­ar né að stjórn­end­ur hefðu ít­rekað óskað eft­ir því við Rík­is­end­ur­skoð­anda að hann leyndi Alþingi til­tekn­um upp­lýs­ing­um um rekst­ur fé­lags­ins. Um það feng­um við upp­lýs­ing­ar á fundi fasta­nefnda Alþing­is í gær! Er al­veg víst að þetta fé­lag sé heppi­leg­asti aðil­inn til starf­ans?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas