Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Starfslok slökkviliðsstjóra tengjast fjárreiðum

„Stjórn Bruna­varna Árnes­sýslu lítur málið alvarlegum augum“

Slökkviliðsbíll
Slökkvi­liðs­bíll Myndin teng­ist ekki frétt­inni beint Mynd: Brynhildur Jensdóttir

Starfslok Péturs Péturs­sonar sem slökkviliðs­stjóra Bruna­varna Árnes­sýslu tengjast rannsókn á fjár­reiðum slökkviliðsins. Þetta kemur fram í yfir­lýsingu frá stjórn Bruna­varna Árnes­sýslu en RÚV sagði frá málinu.

Undan­farna daga hefur verið greint frá því að samkomulag hefði náðst um starfslok Péturs, en ekki hafði áður verið upplýst um ástæður þeirra.

Samkvæmt yfir­lýsingu stjórnar bárust upplýsingar við yfirferð á ákveðnum þáttum í starfsemi Bruna­varna Árnes­sýslu sem stjórn taldi rétt að vísa til rann­sóknar lögreglu. Málið snýr að fjár­reiðum slökkviliðsins.

„Stjórn Bruna­varna Árnes­sýslu lítur málið alvarlegum augum. Með hliðsjón af því að málið er nú komið til rann­sóknar hjá lögreglu telur stjórn ekki rétt að tjá sig frekar um efni þess að svo stöddu,“ segir í yfir­lýsingunni.

Þar er jafnframt áréttað að rann­sóknin fari fram samkvæmt lögum og að réttur allra aðila verði virtur.

Í kjölfar starfs­loka Péturs hefur Lárus Kristinn Guðmundsson, vara­slökkviliðs­stjóri, verið ráðinn tíma­bundið í starf slökkviliðs­stjóra.

Stjórn Bruna­varna Árnes­sýslu segir rekstur slökkviliðsins óbreyttan og að öll lögbundin þjónusta verði veitt með sama hætti og áður. Þá sé viðbragðs­geta slökkviliðsins óbreytt.

Starfs­menn Bruna­varna Árnes­sýslu voru upplýstir um ástæður starfs­lokanna í bréfi sem sent var þeim í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim