Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Brynjar og Björn Leví rifust á Facebook: „Þú ert semsagt í hugtakaútúrsnúningum?

Athugið, myndin er samsett.
Athugið, myndin er sam­sett.

Brynjar Níelsson og Björn Leví Gunnarsson áttu í ritdeilu á Facebook í gær. Ástæðan er færsla Brynjars um vantrausts­tillöguna á dómsmála­ráðherrann þar sem Brynjar segist hafa verið „þvingaður í leikhúsið við Austur­völl“.

„Ég hef aldrei verið sérstak­lega hrifinn af leikhúsi og allra síst þegar það er fært niður á Austur­völl og þjóð­kjörnir fulltrúar taka að sér stærstu hlut­verkin í endur­sýndum verkum. Ég var þvingaður í leikhúsið við Austur­völl þegar endursýnt var verkið „Vantrausts­tillaga á dómsmála­ráðherra“ í annað sinn á skömmum tíma. Ástæða sýningarinnar núna var sú að dómsmála­ráðherra hefði brotið þing­skaparlög samkvæmt minnis­blaði lögfræðings á skrif­stofu Alþingis með því að neita Útlendinga­stofnun um að afhenda þinginu gögn.“ Svona byrjar færsla Brynjars. Heldur hann svo áfram og segir að minnis­blaðið segi ekkert til um lögbrot Jóns Gunnars­sonar og þá fullyrðir Brynjar að Útlendinga­stofnun hafi ekki neitað að afhenda gögn til þingsins.

„Nú er það svo að minnis­blaðið segir ekkert um meint lögbrot ráðherra og svo er það alrangt að Útlendinga­stofnun hafi neitað að afhenda gögn til þingsins. Þingið fær öll umbeðin gögn sem til eru og yfirlit um þau ef þess er óskað, en það á engan rétt til að krefjast þess að stofnunin sinni efnislegri meðferð mála í forgangi fyrir þingið, eins og var ástundað áður en núverandi ráðherra tók við embætti. Þegar stofnunin hefur lokið lögbundnu verkefni að gera umsagnir vegna umsókna um ríkis­borgararétt er þinginu afhent þær umsvifa­laust. Ástæða fyrir breyttu verklagi af hálfu ráðuneytisins var sú að ekki mætti mismuna fólki við afgreiðslu mála eftir því hvort sótt var um ríkis­borgarrétt til Alþingis eða til Útlendinga­stofnunar. Þessi forgangur þingsins leiddi einnig til þess að verulegur dráttur varð á úrlausn mála þeirra sem sóttu um ríkisborgararrétt til stofnunar, sem Umboðs­maður Alþingis hafði gert athuga­semdir við. Þetta breytta verklag er því í samræmi við jafnræðis­reglu í stjórnar­skrá og ákvæði stjórnsýslu­laga. Þetta ætti öllum að vera ljóst, meira að segja þessum sérkenni­legu lögspekingum stjórnar­andstöðunnar.

Stóra vanda­málið sem við ættum að vera að ræða er það að Alþingi er að taka að sér stjórnsýslu­störf í stórum stíl og ákvarða um ríkis­borgararétt framhjá almenna kerfinu með handahófs­kenndum og geðþótta­legum hætti. Það var aldrei tilgangurinn heldur að málin væru afgreidd af stjórn­völdum(ÚTL) og fyrir þingið kæmu einstaka mál sem sérstök rök ættu við um veitingu ríkis­borgar­réttar án þess að umsækjandi uppfyllti skilyrði laga um að fá ríkis­borgararétt. Ég skil ekkert í því að Íslands­deild Transparency International hafi ekki gagnrýnt þetta fyrir­komulag hjá þinginu og látið til sín taka.

Þessi uppákoma í þinginu kringum vantrausts­tillöguna er lýsandi dæmi fyrir störf stjórnar­andstöðunnar og gagns­leysi hennar. Þau er ekki í pólitík sem snertir hagsmuni þjóðarinnar. Nú eru víðsjár­verðir tímar í efnahags­málum og verðbólga mikil. En þetta lið hefur ekkert fram að færa í þeirri glímu. Það er eins og það líti svo á að það hafi verið kosið á þing til að gæta hagsmuna allra annarra en íbúa þessa lands. Og það er sérstak­lega sorglegt að sjá Viðreisn hoppa á Pírata­vagninn í pólitík. Það er erfitt að taka af stað upp brekku í fjórða gír og verður enn erfiðara þegar helsta málgagn þeirra hefur lagt upp laupana.“

Þessari færslu svaraði fjöldi manns, flestir voru á því að Brynjar færi með rétt mál og einhver hrósaði honum fyrir málefna­lega færslu. Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata var ekki í þeim hópi.

„Mjög sætir útúr­snúningar hjá þér. Hvar fékkstu uppskriftina?“ skrifaði Píratinn í athugasemd sem Brynjar svaraði um hæl: „Þetta er kjarni málsins og þarf því engar uppskriftir.“

Björn Leví var ekki lengi að svara með laga­bókstafinn með sér í liði: „nú?

Á 51. gr. ekki við af því að hún er í kafla um eftirlit Alþingis? Þrátt fyrir að kaflinn fjalli um eftirlit Alþingis og almennar umræður?Getur Alþingi bara óskað eftir gögnum sem þarf ekki að „búa til“?Geta stjórn­völd bara ákveðið að bíða með að svara gagna­beiðni frá Alþingi þangað til það hentar þeim?

Hvaða aðili er með forræði á veitingu ríkis­borgara­réttar með lögum samkvæmt stjórnar­skrá? Getur ráðherra ákveðið það einhliða að breyta því?“

Þessu svaraði hinn löglærði aðstoðar­maður: „Alþingi getur óskað eftir hvaða gögnum sem er. Það á hins vegar engan rétt á því að framkvæmda­valdið klári sín störf eftir 51. gr. þing­skaparlaga. Krafa um efnislega . meðferð framkvæmda­valdsins á málum er alveg ótengt gagna­beiðni þingsins. Umsögn er ekki hluti að gagna­beiðni þingsins. Alþingi veitir ríkisborgrarétt samkvæmt stjórnar­skrá. Þingið getur gertþað sem það vill með lögum og ráðherra er ekkert að reyna breyta því. Þið eruð stífluð úr frekju. Mér finnst sérkennilegt að flokkur sem berst gegn spillingu er fremstur í flokki að vilja að þingið veiti ríkis­borgararétt eftir geðþótta og órökstudd.“

Pírata­þing­maðurinn spurði þá hvort Brynjar sé í hugtaka­útúr­snúningum: „Þú ert semsagt í hugtaka­útúr­snúningum? Af því að það er bara sagt gögn og upplýsingar í 51. gr. en ekki umsögn þá virki 51. greinin ekki?

Þú áttar þig á því hversu rosalega þunn rök það eru, ekki satt? Svona miðað við að það er ítrekað beðið um minnis­blað skv. heimild 51. gr.Ertu þá að segja að stjórn­völd ætli að hætta að skila minnis­blöðum sem beðið er um í krafti 51. gr (þriðjungur nefndar) út af því að það eru ekki gögn eða upplýsingar?

… ég hlakka mikið til þess að heyra lögfræði­lega útúr­snúninga um þetta.“

En aldrei komu lögfræði­legu útúr­snúningarnir frá Brynjari því hann virðist hafa kúplað sig út úr rifrildunum. Skoðana­bræður hans hins vegar mölduðu í móinn en það mun ekki vera rakið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim