Síðastliðinn fimmtudag eignuðustu Lísbet Sigurðardóttir, lögfræðingur og formaður SUS, og héraðsdómslögmaðurinn Jóhannes Tómasson, dóttur en þetta er fyrsta barn þeirra.
Lísbet tilkynnti fæðingu stúlkunnar á Instagram um helgina:

„Lítil fullkomin Jóhannesdóttir kom loksins í heiminn þann 9. desember klukkan 22:22.
Hún er reyndar ekki svo lítil heldur heilar 16 merkur og 52 sentimetrar.
Við foreldrarnir erum í skýjunum með hana og hlökkum til að halda áfram að kynnast henni.“

Mannlíf óskar nýbökuðum foreldrum til hamingju með nýjan erfingja.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir