Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Lögreglan rannsakar grunsamlega bruna í bílum

Lögreglan að störfum í miðborginni Mynd/Lára Garðarsdóttir
Lög­reglan að störfum í mið­borg­inni Mynd/Lára Garð­ars­dóttir

Eitt og annað gekk á í gær­kvöldi og í nótt sam­kvæmt dag­bók lög­regl­unnar á Höf­uð­borg­ar­svæð­inu en umferða­laga­brot voru helst í brennid­epli.

Lög­reglan frá Lög­reglu­stöð 1 sem þjón­ustar Aust­ur­bæ­inn, Miðbæinn, Vesturbæ og Sel­tjarn­ar­nesið, stöðv­aði öku­mann sem keyrði á 64 km/klst þar sem leyfður hámarks­hraði er 30 km/klst. Var hann fluttur á lög­reglu­stöð þar sem hann var sviptur öku­rétt­indum í þrjá mán­uði.

Ökumaður sem lék sér að því að missa veg­grip var sektaður fyrir athæfið. Þá varð umferð­ar­ó­happ í Laug­ar­dalnum þar sem bif­reið var ekið aftan á aðra. Reyndist tjón­vald­ur­inn stút­ungs­fullur og var hann því hand­tek­inn vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis. Hann gisti í fanga­klefa og það sama gildir um far­þega í bílnum sem neit­aði að gefa upp nafn og kenni­tölu.

Umferða­ó­happ varð er bif­reið og reið­hjóla­maður skullu saman. Var reið­hjóla­mað­ur­inn fluttur og á bráða­mót­töku með minni­háttar meiðsli. Var hann tals­vert ölv­aður og verður hann kærður fyrir að hafa reynt að stjórna reið­hjóli undir áhrifum áfengis.

Lög­reglan sem þjón­ustar Hafn­ar­fjörð, Garðabæ og Álftanes hand­tók öku­mann grun­aðan um akstur undir áhrifum fíkni­efna. Reyndist hann einnig aka án gildra öku­rétt­inda. Þá var til­kynnt um eld í öku­tæki í iðn­að­ar­hverfi. Stuttu síðar var aftur til­kynnt um bruna í öku­tæki skammt frá. Málið er í rann­sókn.

Lög­reglan sem ann­ast Kópavog og Breið­holt hafði afskipti af öku­menn sem voru í röð við bíla­lúgu á veit­inga­stað. Hafði annar þeirra ekið aftan á bíl­inn sem var fyrir framan hann í röð­inni.

Til­kynn­ing barst lög­reglu sem starfar í Graf­ar­vogi, Mos­fellsbæ og Árbænum, vegna elds í raf­magns­töflu í fjöl­býli. Tilkynnt var um ljósan reyk og hafði raf­magn í hús­næð­inu slegið út. Um var að ræða minni­háttar tjón. Þá varð umferð­ar­ó­happ þar sem bif­reið var ekið á umferð­ar­ljós og ljósa­staur. Talið er að öku­mað­ur­inn hafi ekið of hratt miðað við aðstæðu og runnið til á blautu mal­bik­inu. Minni­háttar meiðsl varð á öku­mann­inum.

Leigu­bíl­stjóri óskaði eftir aðstoð eftir að far­þegi neit­aði að borga fyrir far. Var far­þeg­inn rok­fullur og erf­iður í sam­skiptum eftir því. Á hann von á að vera kærður fyrir fjár­svik.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas