Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Matthías heppinn að sleppa lifandi eftir ákeyrslu rútu

Leita að rútu sem ók bíl upp að vegg og hvarf í Hafn­ar­firði

Bíllinn eftir ákeyrsluna
Bíllinn eftir ákeyrsl­una Bíllinn er illa far­inn eftir rút­una Mynd: Skjáskot

Birna Dögg Elen­oru­dóttir leitar nú til almenn­ings eftir upp­lýs­ingum um alvar­legt umferð­ar­slys sem varð snemma morg­uns í Hafn­ar­firði í fyrra­dag, mið­viku­dag­inn 15. jan­úar, þar sem rúta keyrði á bíl unnusta hennar, Matth­í­asar Karls Arn­ar­sonar, og ók síðan af vett­vangi.

Í Facebook-færslu lýsir Birna atvik­inu og biður fólk um aðstoð:

„SOS! Þurfum hjálp almenn­ings ❤️“

Hún segir mann sinn hafa verið á leið til vinnu frá Reykja­vík til Kefla­víkur þegar slysið varð.

„Í gær var mað­ur­inn minn að keyra í vinn­una snemma morg­uns frá Reykja­vík til Kefla­víkur og í Hafn­ar­firði rétt hjá völl­unum er hann að keyra á vinstri akrein þegar rúta keyrði á hann og kremur hann upp við veggriðið og keyrir burt!“

Að sögn Birnu hefur rútan ekki fund­ist og tjónið er mikið.

„Rútan hefur ekki fund­ist og bíll­inn er lík­leg­ast ónýtur. Bíll sem hann er nýbú­inn að fjár­festa í.“

Hún segir fjöl­skyld­una reiða sig á bíl­inn í dag­legu lífi, þar sem eig­in­maður hennar keyri dag­lega milli Reykja­víkur og Kefla­víkur vegna vinnu og barna.

„Hann keyrir dag­lega til og frá Kefla­víkur vegna vinnu og barna og getur því ekki verið bíl­laus.“

Birna gagn­rýnir jafn­framt trygg­inga­kerfið harð­lega og segir trygg­inga­fé­lagið hafna aðstoð þar sem ekki náð­ist að skrá bíl­númer rút­unnar.

„En okkar æðis­lega land! Sem lætur okkur borga him­in­háar trygg­ingar neita að hjálpa okkur þar sem við náðum ekki bíll­núm­er­inu á rút­unni! Hættum að borga trygg­ingar? Til hvers? Skíta land.“

Hún greinir frá því að slysið hafi átt sér stað á bil­inu klukkan 07:15 til 07:20 að morgni dags.

„Anywho! Þetta gerð­ist um 07:15–07:20 í gær 15.01.26 og rútan er lík­leg­ast vel tjónuð bíl­stjóra­megin að aftan!! Bíllinn er brúnn svo það lík­leg­ast sést!“

Að lokum hvetur Birna fólk til að hafa augun opin og koma upp­lýs­ingum á fram­færi.

„PLÍS HAFIÐ AUGUN OPIN OG HJÁLPIÐ OKKUR ❤️“

BíllinnBæði dekk og hjóla­bún­aður beygl­uð­ust inn og fram­end­inn skekkt­ist

Í sam­tali við Mannlíf segir Birna Dögg að mað­ur­inn hennar líði ágæt­lega núna en að þetta hafi verið mikið áfall og að hún merki smá áfallasteituröskun hjá honum.

„Hann er ágætur, en þetta var rosa­legt sjokk enda var rútan á miklum hraða og ég finn fyrir smá PTSD við­brögðum frá honum eftir þetta þegar við erum að keyra í umferð­inni.“

Þá segir hún að þetta hefði getað orðið dauða­slys, þar sem rútan stopp­aði ekki.

„Mest af öllu að okkur þykir það rosa sorg­legt að rútan stopp­aði ekki því þarna hefði þetta geta orðið dauða­slys, hann lá á flaut­unni en rútan hélt áfram.“

Birna seg­ist hafa sent tölvu­póst á flest rútu­fé­lög á svæð­inu en hefur aðeins fengið svar frá tveimur þeirra. Einnig höfðu þau sam­band við lög­regl­una sem tók af þeim skýrslu.

„Ég er búin að senda tölvu­póst á flest öll rútu­fé­lög og staði sem mig dettur í hug, hef fengið svar frá tveimur, fjöl­skyldan mín stökk til og lá yfir rútum á Kefla­vík­ur­flug­velli í gær og við á BSÍ, löggan mætti á svæðið og tók skýrslu og lof­aði að þau myndu rann­saka þetta og leita af rút­unni, höfum ekk­ert heyrt frá lögg­unni meira um það.“

Fólk sem telur sig hafa orðið vitni að atvik­inu eða séð skemmda rútu á svæð­inu á umræddum tíma er hvatt til að hafa sam­band við hlut­að­eig­andi aðila.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas