Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Segir tíma átaka og ósættis innan SÁÁ vera liðinn

Ein­ar Her­manns­son, stjórn­ar­maður í SÁÁ, sækist eftir formennsku SÁÁ. Þór­ar­inn Tyrf­ings­son sækist einnig eftir sæti for­manns. Einar ræddi málið í morgun­útvarpi Rásar 2 og sagðist vilja skapa frið innan samtak­anna. Hann segir samskipti sín og Þórarins alltaf hafa verið góð og að hann gæti hugsað sér að nýta Þórarinn í verkefni innan SÁÁ verði hann sjálfur kjörinn formaður.

Einar sagði tíma ósættis og átaka innan SÁÁ vera liðinn. Hann sagði sitt framboð snúast um að vilja skapa gott samstarf innan SÁÁ, að það væri nauðsynlegt til að starfið „gangi smurt.“

Þegar hann var spurður út í muninn á honum og Þórarni sagði Einar að hans framboð snerist um að skapa frið og traust og horfa til framtíðar.

Hann bætti við að nú þyrfti að einblína á að skapa góða vinnustaðar­menningu sem byggir á góðum samskiptum innan SÁÁ í stað þess að vera í átökum í fjöl­miðlum.

Hann tók fram að SÁÁ gæti vel nýtt krafta Þórarins í einhverjum verkefnum þar sem hann hafi mikla reynslu og að þeirra samskipti hafi alltaf veri góð. „Hann hefur náttúru­lega gert gríðar­lega gott starf fyrir SÁÁ í gegnum tíðina,” sagði Einar um Þórarinn.

Átökin hafa áhrif út á við

Aðspurður hvort að ósættið sem hefur ríkt innan veggja SÁÁ um nokkurt skeið hafi breytt skoðun fólks á SÁÁ sagði Einar að það gæti vel verið en kvaðst vona að átökin muni ekki hafa langtíma­áhrif á sýn fólks á samtökin. Hann tók þá fram að samtökin finna fyrir mikilli velvild í samfélaginu. „Það sést til dæmis á álfa­sölunni,“ sagði hann.

Næsta þriðjudag verður aðal­fundur SÁÁ haldinn þar sem nýr formaður samtak­anna verður kosinn.

Þess má geta að Mannlíf fjallaði um átökin innan SÁÁ fyrr á árinu. Þá sagði Þórarinn í samtali við Mannlíf að hann ætti enga sök á ástandinu sem upp er komið. „Ég er hryggur yfir því hvernig staðan er. Ég á enga sök á því og hef hvergi komið þarna nærri á nokkurn hátt enda ekki með neitt umboð til þess. Fólk verður bara að axla sína ábyrgð í þessu,“ sagði Þórarinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Náttfata­veisla unglings­stúlkna endaði í harmleik

Um 50 ungmenni mættu í veisluna eftir að hún hafði verið auglýst á netinu
Heimur

„Þekktasta klámstjarna Ítalíu“ vill verða borgar­stjóri Rómar

Heimur

Tveggja barna faðir skotinn til bana á þakkar­gjörðar­daginn

Heimur

Sautján ára skóla­stúlka lést eftir árás

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Maðurinn var handtekinn 17. mars en sleppt skömmu síðar. Honum var vikið úr starfi meðan rannsóknin stóð yfir.

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu