Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Innrás eða útrás?

Í nýjasta tölu­blaði Mannlífs er fjallað um stöðu Arion banka og íslenskra banka­kerfið í frétta­skýr­ingu Kjarnans.

Mynd / Hákon Davíð Björnsson
Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Við­mæl­endur Kjarnans á fjár­mála­mark­aði sögðu umræðu um íslenska banka­kerfið nokkuð eins­leita þessi miss­erin. Flestir ræddu um slakan rekstr­ar­grunn og ofmönnun – eins og „þið blaða­snáp­arnir“, svo vitnað sé beint í einn við­mæl­and­ann – en of fáir ræddu um hvað væri fram undan. Sú sýn væri ekki spenn­andi fyrir íslenskt fjár­mála­kerfi, að það geti ekki þjón­u­stað útflutn­ings­hlið fjár­mála­kerf­is­ins af nægi­legum metn­aði. Þótt útrás­ar­hug­takið væri ekki beint í tísku þá væri það samt spurn­ing hvernig banka­kerfið ætti að geta stutt við íslenskt efna­hags­líf til fram­tíðar án góðra teng­inga við alþjóð­lega fjár­mála­mark­aði. Staðan í dag er þannig að allt íslenska banka­kerfið er með um 89 pró­sent eigna sinna í íslenskum eignum en ell­efu pró­sent í erlendum.

Annar mögu­leiki er líka alveg fyrir hendi, og raunar farið að sjást glitta í hann. Það er að inn­reið tækni­fyr­ir­tækja inn á fjár­mála­mark­aði muni verða veru­lega umfangs­mikil á næstu miss­erum, og Ísland muni ekki geta und­an­skilið sig frá þessu.

Benedikt Gíslason, banka­stjóri Arion banka, hefur sagt að bank­inn hafi metnað til þess að efla enn frekar fjár­tækni sína, til að vera sam­keppn­is­hæfur á þessu sviði. Bæði Íslands­banki og Lands­bank­inn hafa einnig haft þessar áherslur.

En spurn­ing­arnar hvað þessa þróun varðar, eru mun frekar tengdar heild­ar­mynd fjár­mála­kerf­is­ins á Íslandi og hvernig það muni þró­ast. Hvernig munu okkar kerf­is­lægt mik­il­vægu bankar – og Arion banki þar með­tal­inn – takast á við það þegar greiðslu­miðlun opn­ast upp á gátt, tækni­fyr­ir­tæki fara að bjóða upp á þjón­ustu, eins og lán og nútíma­lega banka­þjón­ustu, þvert á landa­mæri. Það má líkja því sem nú á sér stað við hálf­gerða inn­rás, í þessu sam­hengi. Lítið fjár­mála­kerfi, sem styðst við eitt minnsta mynt­kerfi í heimi, gæti átt erfitt með að aðlag­ast þessum breyt­ingum. Áherslur fyr­ir­tækja eins og Amazon og Apple hafa birst neyt­endum á und­an­förnu ári, en bæði fyr­ir­tækin hafa boðið sér­stök greiðslu­kort og hafa farið beint inn á fjár­mála­markað í Banda­ríkj­unum með þeim, og þannig kom­ist inn í greiðslu­mats­kerfi (Credit Score) fjár­mála­geirans.

Flestar spár gera ráð fyrir að tæknirisarnir í heim­inum muni fara hratt og örugg­lega inn á neyt­enda­markað með fjár­mála­þjón­ustu, og hefur Amazon nú þegar sýnt á spilin með inn­byggðu afslátt­ar­kerfi sínu fyrir alla kort­hafa Amazon-greiðslu­korts. Líklega líður ekki á löngu þar til lán og trygg­ingar fara að bjóð­ast frá tækni­fyr­ir­tækj­unum, enda eru þau með fulla vasa fjár og búa yfir ítar­legum gögnum um neyt­endur, sem hjálpar til við að greina áhættu.

Þrátt fyrir að þetta virð­ist langt í burtu, frá íslenskum veru­leika, þá þarf það ekki að vera raunin. Innan fárra ára gætu tækni­fyr­ir­tækin hafið inn­reið á íhalds­saman fjár­mála­markað af miklu meiri krafti en þau hafa nú þegar gert.

Ítarlega er fjallað um málið á vef Kjarnans og í nýjasta tölu­blaði Mannlífs.

Texti / Þórður Snær Júl­í­us­son og Magnús Hall­dórs­son

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas